Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gæsluvarðhald og geðrannsókn Konan sem grunuð er um að hafa stungið fimm ára telpu með hnífi í brjóstið 27. september síðastliðinn hefur nú undirgengist geðrannsókn. Dómari mun síðan byggja á matsgerð um sakhæfi konunnar. 18.11.2009 05:15
Átta Pólverjar fyrir rétti vegna þjófnaða Nokkur viðbúnaður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær vegna fjölda sakborninga sem þá mættu fyrir rétt í umfangsmiklu þjófnaðarmáli. Þar eru átta manns af pólskum uppruna, um og yfir tvítugu, sökuð um aðild að fjölda þjófnaðarmála víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári. 18.11.2009 05:15
Segir samræmd próf vera ofmetna aðferð Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður starfshóps um námsmat í grunnskólum Reykjavíkurborgar, hafnar því að ekki verði haft samráð við fagaðila. Formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur kvartaði yfir því í Fréttablaðinu í gær og taldi líklegt að niðurstaða hópsins yrði gefin fyrirfram. 18.11.2009 05:00
Flosi hættur Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar á næsta ári. Flosi tók sæti í bæjarstjórn árið 1998 og var áður varamaður í fjögur ár. 18.11.2009 05:00
Hundruð milljóna í tekjur Um sjötíu sjúklingar koma til landsins í hverjum mánuði frá Færeyjum, Grænlandi og Noregi til þess að gangast undir augnaðgerðir eða lýtaaðgerðir. 18.11.2009 05:00
Dugar í eina sprengju á ári Í nýrri skýrslu Alþjóðakjarnorkueftirlitsins segir að Íranar hafi flutt háþróaðan tæknibúnað til auðgunar úrans á stað sem áður var leynilegur. Vinnsla þar eigi að hefjast árið 2011. 18.11.2009 05:00
Dregur úr notkun sýklalyfja hérlendis Dregið hefur úr notkun sýklalyfja hér á landi fyrstu níu mánuði ársins segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Hann segir skýringu ekki liggja fyrir. Hugsanlega spari fólk við sig sýklalyf þegar fjárhagurinn versnar, líkt og gerst hafi undanfarið. 18.11.2009 04:45
Verðum að skerpa sýn okkar og vita hvert stefnir Reynsla kennara og annars starfsfólks af framkvæmd skólastefnunnar Skóli án aðgreiningar verður til umræðu á ráðstefnu sem haldin verður á morgun. Ráðstefnan er önnur af þremur ráðstefnum sem fjalla um skólastefnuna sem hefur verið hin opinbera menntastefna Íslands síðan árið 1994. 18.11.2009 04:45
Sérfræðiskýrsla er í smíðum Sérfræðingur á vegum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EFS) vinnur nú að úttekt á fjármálum sveitarfélagsins Álftaness. Sveitarfélagið leitaði aðstoðar FES um síðustu mánaðamót vegna mikils fjárhagsvanda. 18.11.2009 04:45
Aðrir skili líka læknisvottorði Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi vill að aðrir borgarfulltrúar leggi fram vottorð frá lækni um að þeir séu hæfir til að sitja í borgarstjórn. Í ræðu á fundi borgarstjórnar í gær sagði Ólafur tillögu setta fram til að jafnræðis yrði gætt meðal borgarfulltrúa. Eins og kunnugt er var Ólafur krafinn um læknisvottorð er hann sneri aftur til starfa í borgarstjórn eftir veikindafrí vegna þunglyndis fyrr á þessu kjörtímabili. Í tillögu Ólafs felst að þeim sem ekki hafi þegar lagt fram slíkt vottorð verði gert það skylt. - gar 18.11.2009 04:15
Ákærður fyrir fjöldamorð Níræður Þjóðverji, Adolf Storms að nafni, hefur verið ákærður fyrir þátttöku í fjöldamorðum í þorpinu Deutsch Schützen í Austurríki í lok mars árið 1945, aðeins fáeinum dögum fyrir lok seinni heimsstyrjaldarinnar. 18.11.2009 04:15
Léku sér að rúgbrauði Það var líflegt á Café Loka við Lokastíg í gær þegar boðið var upp á rúgbrauðsveislu í tilefni Athafnaviku. Meðal annars var boðið upp á framandi rétti á borð við rúgbrauðsís og rúgbrauðskex. 18.11.2009 04:15
Tólf hundruð fóru með strætó Rúmlega tólf hundruð farþegar nýttu sér strætóferðir milli Sandgerðis, Garðs og Reykjanesbæjar í október, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. Byrjað var að bjóða upp á slíkar ferðir í byrjun október. 18.11.2009 04:15
43 þúsund slaufur seldust Metár var í sölu bleiku slaufunnar, en alls seldust um 43.000 slaufur í átaki Krabbameinsfélagsins í október. 18.11.2009 04:00
Rannsaka þurfi fyrir sjóvarnir Hugsanlegt er að ráðast þurfi í rannsóknir á hæðarbreytingum lands og öðrum þáttum er snerta sjóvarnir í Bolungarvík til að hægt sé að meta það með hvaða hætti er best að verja byggð og mannvirki fyrir ágangi sjávar á svæðinu. Þetta kemur fram í drögum að aðalskipulagi Bolungarvíkur fyrir árin 2008-2020 og sagt er frá á vef Bæjarins bestu. 18.11.2009 04:00
Ísland enn í hópi tíu bestu Ísland er enn í hópi tíu efstu ríkjanna á lista samtakanna Transparency International yfir spillingarstig ríkja heims. 18.11.2009 04:00
Dreifingin er enn að þéttast Útbreiðsla á Fréttablaðinu eftir breyttar áherslur í dreifingu blaðsins á landsbyggðinni er sífellt að styrkjast. Á síðustu dögum hafa í hóp dreifingaraðila bæst Skeljungur á Hellissandi, Grillskálinn á Patreksfirði, Hlíðarkaup á Sauðárkróki, Mónakó á Bakkafirði og Söluskálinn Björk á Hvolsvelli. Þess má geta að Fréttablaðinu hefur ekki áður verið dreift á Bakkafirði og Patreksfirði. Það er fyrirtækið Pósthúsið sem annast dreifingu Fréttablaðsins. - gar 18.11.2009 04:00
Fer ekki yfir viðmið WHO Brennisteinsvetnismengun af virkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði fer ekki yfir viðmiðunarmörk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), líkt og sagt var í Fréttablaðinu í gær. 18.11.2009 04:00
Ekkert gert með umbeðin álit Þingmenn stjórnarandstöðunnar – einkum Sjálfstæðisflokksins – harma að nefndarálit um Icesave-frumvarpið hafi verið afgreitt úr fjárlaganefnd í fyrrakvöld. Telja þeir málið hafa verið óútrætt og furða sig á að ekkert hafi verið gert með álit efnahags- og skattanefndar um málið sem fjárlaganefnd bað þó sérstaklega um. 18.11.2009 04:00
Söfnun hrundið af stað fyrir Kvennaathvarfið Í tilefni af frétt um bága fjárhagsstöðu Kvennaathvarfsins hefur verið stofnað styrktarsíðu á Facebook fyrir athvarfið. „Styrkjum athvarfið um þá upphæð sem við getum látið af hendi rakna, það þarf ekki að vera mikið en margt smátt gerir eitt stórt. Hver króna gerir gagn," segir á síðunni en þar er gefið upp reikningsnúmer Kvennaathvarfsins. 17.11.2009 22:14
Laugalækjarskóli sigraði Skrekk Það var Laugalækjarskóli sem sigraði í kvöld Skrekk, hæfileikakeppni Íþrótta- og tómstundasviðs fyrir Grunnskólana í Reykjavík. Það voru átta skólar sem kepptu í úrslitunum fyrir troðfullu húsi í Borgarleikhúsinu. Í öðru sæti var Hagaskóli og í því þriðja Seljaskóli. 17.11.2009 21:56
Ólafur F. vill stöðva bruðlið Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, vill draga úr kostnaðarsamri yfirbyggingu í borginni og fækka fagráðum og sviðum borgarinnar úr 9 í 7. Hann vill mennta- og leikskólaráð annars vegar og hins vegar velferðar- og mannréttindaráð. Ólafur lagði fram tillögu þess efnis á fundi borgarstjórnar í dag, en hann telur brýnt að bruðlið í borgarstjórn veðri stöðvað. 17.11.2009 21:41
Palin telur ólíklegt að hún bjóði sig fram Sarah Palin, varaforsetaefni repúblikana í síðustu forsetakosningum í Bandaríkjunum, telur ólíklegt að hún bjóði sig fram til forseta árið 2012. Hún vill þó ekki útiloka það. Framtíðin verði að leiða það í ljós. Þetta kom fram í spjallþætti Oprah Winfrey í gær. 17.11.2009 20:52
Eignir Baldurs Guðlaugssonar kyrrsettar Sérstakur saksóknari hefur krafist kyrrsetningar á eignum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, í tengslum við rannsókn á meintum innherjaviðskiptum Baldurs þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum rétt fyrir hrun. Þetta er í fyrsta sinn sem sérstakur saksóknari beitir slíkri heimild. 17.11.2009 18:29
Tillaga um eldfjallagarð samþykkt í borgarstjórn Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum að hefja undirbúning stofnun eldfjallagarðs á Reykjanesskaga. Tillagan var lögð fram af borgarfulltrúum Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og VG. 17.11.2009 21:01
Ferðakostnaðurinn hefur lækkað um 72% Ferðakostnaður Reykjavíkurborgar hefur það sem af er á árinu lækkað um 72% miðað við sama tímabil árið 2008. Fram kemur í tilkynningu að skrifstofa borgarstjóra hafi rýnt í allar ferðaheimildir með tilliti til markmiðs og kostnaðar. Það hafi leitt til þess að ferðakostnaður hefur lækkað umtalsvert á síðustu mánuðum. 17.11.2009 19:30
Ögmundur: Viðbrögð Samfylkingarinnar koma á óvart Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, segir að það hafi komið sér á óvart að þingmönnum Samfylkingarinnar þætti óeðlilegt að þingmaður annars stjórnarflokksins gerðist formaður samtaka sem berjist gegn aðild að Evrópusambandinu á sama tíma og ríkisstjórnin sæki um aðild að sambandinu. Hann spyr hvort einungis megi tala fyrir inngöngu. 17.11.2009 19:28
Litháarnir áfram í varðahaldi Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir fimm Litháum. Þeir hafa verið í haldi vegna mansalsmálsins á Suðurnesjum. Mennirnir verða í haldi til annars desember. Lögreglan segir rannsókn málsins miða vel. 17.11.2009 19:04
Bílskúrsfúskurum hefur fjölgað Hvers konar fúsk í kringum bílaviðgerðir hefur aukist gríðarlega í kjölfar bankahrunsins. Bílskúrsviðgerðarmenn hafa sprottið upp eins og gorkúlur en viðgerðirnar skila sjaldan tilætluðum árangri. Fjölmörg dæmi eru um hálf bremsulausa bíla í umferðinni vegna þessa. 17.11.2009 18:58
Stjórnin sögð keyra Icesave í gegnum Alþingi Stjórnarandstaðan sakaði ríkisstjórnina í dag um að reyna keyra Icesave frumvarpið í gegnum Alþingi. Fjárlaganefnd lauk sinni umfjöllun um frumvarpið í gær þrátt fyrir mótmæli minnihlutans. 17.11.2009 18:48
Dregur úr reykingum landsmanna Dregið hefur úr reykingum landsmanna um helming síðustu tuttugu ár samkvæmt nýrri könnun sem Lýðheilsustöð lét gera. Tæpur þriðjungur landsmanna reykti árið 1989, en um fimmtán prósent nú. Einnig hefur dregið úr reykingum það sem af er ári. Lítill munur mælist á kynjunum í þessum efnum. 17.11.2009 18:42
Dýpkun Landeyjahafnar fyrsta glætan Ríkisstjórninni hefur enn ekki tekist að hleypa neinum nýjum framkvæmdum í gang í landinu eftir að hún tók við völdum. Fyrstu merki um að kyrrstaðan sé að rofna sjást nú með útboði á lokaáföngum Landeyjahafnar. 17.11.2009 18:38
Leikskólasvið borgarinnar þarf að spara hálfan milljarð Hugmyndir eru um að leggja niður 35 þúsund króna greiðsla til foreldra sem eru heima með ung börn eftir að fæðingarorlofi lýkur, svonefnda Þjónustutryggingu. 17.11.2009 18:36
Drengurinn verður í umsjá ömmu sinnar Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur ákveðið að níu ára drengur sem til stóð að senda í fóstur út á land í síðustu viku verði í umsjá ömmu sinnar Helgu Elísdóttur þar til forsjármál móður hans verður tekið fyrir hjá dómstólum í janúar næstkomandi. 17.11.2009 17:39
Nýsköpunarmessa HÍ á morgun Nýsköpunarmessa Háskóla Íslands fer fram á Háskólatorgi á morgun milli klukkan þrjú og sex. Þá verða ýmis sprotafyrirtæki sem eiga rætur sínar að rekja til HÍ með örkynningar auk þess sem þau kynna starfsemi sína á kynningarbásum á torginu. Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands verða einnig veitt. 17.11.2009 17:02
21 býður sig fram hjá Framsókn í Reykjavík 21 býður sig fram á framboðslista Framsóknarflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna 29. maí 2010. Valið fer fram á kjörfundi 28. nóvember á Hótel Loftleiðum. 17.11.2009 17:01
Forsætisráðherra Hollands svaraði Jóhönnu Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra Hollands, hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur svarbréf við bréfi sem hún sendi henni þann 28. ágúst síðastliðinn vegna Icesave deilunnar. Í bréfi sínu bað Jóhanna 17.11.2009 16:32
Hafa gaman af álfatrú Íslendinga Fjölmiðlar á Norðurlöndunum hafa fjallað talsvert um álfatrú Íslendinga undanfarna daga. Tilefnið er könnun sem Terry Gunnell prófessor við Háskóla Íslands gerði á þessari trú. 17.11.2009 16:09
Síbrotamaður dæmdur í 18 mánaða fangelsi Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður á Akureyri hlaut í dag fangelsisdóm fyrir ýmis brot. 17.11.2009 15:44
Sex mánaða skilorð fyrir líkamsárás Nítján ára gamalla piltur var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag fyrir að hafa lamið dyravörð ítrekað í andlitið og veitt honum hnéspark í kvið á skemmtistaðnum Valaskjálf á Egilsstöðum í apríl síðastliðnum. 17.11.2009 15:05
Viltu sofa hjá pabba? Fimmtíu og fimm ára gamall maður á Taivan hefur verið handtekinn fyrir að tæla um tuttugu konur til fylgilags við sig. Hann þóttist þá vera pabbi sinn. 17.11.2009 14:20
Nýtum hugsanlega bara hluta af lánum frá Norðurlöndum Til greina kemur að ríkisstjórnin nýti aðeins hluta af því láni sem Íslendingum stendur til boða frá Norðurlöndunum. Norrænu ríkin ætla lána Íslendingum 2,5 milljarða bandaríkjadala. Lánið verður afgreitt í fjórum hlutum sem eru bundnir við endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnhagsáætlun Íslands. 17.11.2009 13:52
Ásmundur ætlar að gera Samfylkingunni lífið leitt Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, ætlar að gera Samfylkingunni lífið leitt. Þetta sagði Ásmundur, sem er nýkjörinn formaður Heimssýnar, á opnum fundi Vinstri grænna á Sauðárkróki í gærkvöldi, að því er fréttavefurinn Feykir greinir frá. 17.11.2009 13:22
Vonast eftir því að önnur umræða klárist í þessari viku Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, var spurður að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun hvort hann telji líklegt að Alþingi nái að afgreiða Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar í þessari viku. 17.11.2009 12:13
Skipa þingnefnd til að taka við niðurstöðum Rannsóknarnefndar Alþingi mun skipa þingmannanefnd sem mun taka fyrir og vinna úr niðurstöðum Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að forsætisnefnd muni leggja fram frumvarp um nefndina á allra næstu dögum. Hún gerir ráð fyrir að nefndin verði skipuð fyrir jól. 17.11.2009 12:07