Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
NATO boðar tilfæringar í Afganistan Anders Fogh Rasmussen framkvæmdastjóri NATO segir að byrjað verði að flytja hersveitir frá vissum héruðum í Afganistan strax á næsta ári. 17.11.2009 10:01
Þungt haldinn eftir fall Maður liggur þungt haldinn á spítala eftir að hafa fallið úr nokkurri hæð af húsi í Grafarholti í nótt. Óljóst er um málavöxtu og verst lögregla allra frétta af málinu. Um er að ræða karlmann á þrítugsaldri og liggur hann á gjörgæslu Landspítalans. 17.11.2009 09:14
Misheppnuð innbrotstilraun í Breiðholti Innbrotsþjófur gerði tilraun til þess að brjótast inn á heimili í Seljahverfi í nótt. Hann reyndi að spenna upp glugga á húsinu en þurfti frá að hverfa sökum þess hve vel var gengið frá gluggum og hespum. Þá var brotist inn í bíl í Fellunum í Breiðholti í nótt en lögregla hefur ekki upplýsingar um hverju var stolið. 17.11.2009 07:37
Washington Redskins þurfa ekki að breyta um nafn Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að krafa sjö indíána um að ruðningsliðið Washington Redskins breyti um nafn komi of seint fram. 17.11.2009 07:19
Maður skotinn fyrir utan hnefaleikaklúbb Rúmlega tvítugur maður var skotinn niður fyrir utan hnefaleikaklúbb í bænum Køge á Austur-Sjálandi í gær. Maðurinn var að koma af hnefaleikaæfingu þegar hann varð fyrir skotinu sem kom í hægri mjöðm hans. 17.11.2009 07:16
Hækkun lestarfargjalda í Bretlandi Bretar mega búast við allt að fimmtán prósenta hækkun lestarfargjalda í janúar hjá stærstu rekstraraðilum járnbrautarlesta landsins, svo sem First Great Western og South Western Trains. 17.11.2009 07:05
Geimskot Atlantis gekk að óskum Bandaríska geimferjan Atlantis hóf sig á loft frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni klukkan hálfátta að íslenskum tíma í gærkvöldi og gekk skotið að óskum. 17.11.2009 07:02
Vill innlenda orkugjafa „Með athafnateygjunni ætla ég að reka smiðshöggið á áætlun um orkuskipti, að í stað innflutts eldsneytis verði notuð innlend framleiðsla á bílaflotann,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Hún setti Alþjóðlegu athafnavikuna í Norræna húsinu í gær og tók á sama tíma við fyrstu Athafnateygjunni svokölluðu. 17.11.2009 06:00
Atvinnumissir unnustu er mögulega orsök árásarinnar Fórnarlamb skotárásar í Breiðholti talið hafa sagt unnustu árásarmanns upp störfum. Árásarmaðurinn bankaði upp á á heimili mannsins um hálf fjögur aðfaranótt sunnudags. Hann situr í gæsluvarðhaldi. Konan var látin laus undir kvöld í gær. Afbrotafræðingur 17.11.2009 06:00
Hrædd um börnin á leiðinni í bótaviðtöl „Börnin mín fara ekki að drepa sig hérna til þess eins að fá bætur,“ segir Soffía Nönnudóttir, móðir þriggja stálpaðra ungmenna á Þingeyri. Hún er afar ósátt við kröfur Vinnumálastofnunar um að atvinnulaus börn hennar sæki reglulega fundi og námskeið á Ísafirði til að halda bótum. Það kalli á að þau fari akandi yfir Gemlufallsheiðina sem á þessum árstíma geti verið glerhál og stórhættuleg. 17.11.2009 06:00
Lögreglumenn sæti vopnaleit í Leifsstöð Ósamræmi er milli þess sem flugmálastjórn segir um það hverjir eiga að vera undanþegnir öryggisleit í Leifsstöð og þess sem Keflavíkurflugvöllur ohf. segir vera sína starfsvenju. 17.11.2009 05:45
Leysa einungis úr ágreiningsmálum Persónuvernd hefur hafnað því að úrskurða um lögmæti kortavefsjár sem opin var á vefsíðu Kópavogsbæjar. Ástæðan er sú að vefsjánni var lokað eftir að íbúi í bænum kærði hana til Persónuverndar. 17.11.2009 05:30
Hafa lagað sig að lífi á bótum Atvinnulaus ungmenni á aldrinum 18 til 24 ára hafa mörg hver aðlagað sig því líferni að vera á bótum. Þetta kemur fram í niðurstöðum rýnihópagreiningar sem kynnt var á fundi norrænna atvinnumálaráðherra sem fram fór í Reykjavík í síðustu viku. Kannaðar voru aðstæður og viðhorf í fimm hópum, þremur í Reykjavík og tveimur á Suðurnesjum. Í greiningunni kemur fram að í mörgum tilvikum búi ungmennin í foreldrahúsum, hafi snúið sólarhringnum við og hafi hvorki áhuga á skóla né vinnu. 17.11.2009 05:30
Atvinnuleysisbætur lækki hjá fólki undir 25 ára aldri Hluti atvinnuleysisbóta fólks á aldrinum 18 til 24 ára verður notaður til að fjármagna menntunarkosti, gangi eftir hugmyndir í drögum að nýjum lögum um atvinnuleysistryggingar. 17.11.2009 05:15
Brennisteinsvetni mælist yfir mörkum Hæstu toppar brennisteinsvetnismengunar í Hveragerði fara yfir heilsuverndarviðmið Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), en sólarhringsmeðaltal er töluvert undir þeim viðmiðum. Þetta kemur fram í mælingum Umhverfisstofnunar. Engin viðmið eru til hér á landi um þessa mengun, en þau eru í vinnslu í umhverfisráðuneytinu. 17.11.2009 05:15
Sagði frelsið vera styrk Bandaríkjanna „Við reynum ekki að troða neinu stjórnskipulagi upp á nokkra þjóð,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti við háskólanema í Shanghaí. Hann er nú staddur í Kína, og hefur lagt á það áherslu í ferðinni að Bandaríkjamenn hafi engan áhuga á að hefta vöxt Kína með nokkrum hætti. 17.11.2009 05:00
Vilja stuðning Evrópuríkja Palestínustjórn hefur beðið Evrópusambandið um stuðning við þau áform Palestínumanna að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna viðurkenni sjálfstætt ríki Palestínu án samþykkis Ísraels. 17.11.2009 05:00
Líkur á að mein í lungum greinst fyrr „Líkur benda til að greina megi lungnakrabbamein fyrr og á lægra stigi en algengast er nú. Rannsóknir á notkun tölvusneiðmyndatækni til skimunar skera úr um það en niðurstaðna úr þeim er að vænta innan fárra missera. Slík tækni er fyrir hendi hér á landi,“ segir Tómas Guðbjartsson, prófessor við HÍ og yfirlæknir á skurðdeild Landspítalans. 17.11.2009 04:45
Segir enn rétt að hafa ekki gert árás á Íran Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segist ekki sjá eftir því að hafa haldið að sér höndum þegar byltingarstjórnin í Íran tók 52 Bandaríkjamenn í gíslingu árið 1979. 17.11.2009 04:45
Finnst Strauss-Kahn skauta létt yfir „Ég vil ekki halda því fram að framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi farið með staðlausa stafi. Mér fannst hann skauta létt yfir þessa tengingu en hann verður að bera ábyrgð á því sjálfur,“ sagði Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, á Alþingi í gær. 17.11.2009 04:45
Ætla að efla aðstoð við landbúnað í þróunarríkjum „Í heiminum er meira en nóg til af mat,“ segir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinu þjóðanna. „Samt þarf meira en milljarður manna að líða hungur. Þetta er óþolandi.“ 17.11.2009 04:30
Meirihlutinn sagður sýna skólunum vanvirðingu „Mér finnst það fráleitt að taka ekki þá fagmenn sem starfa við þetta dags daglega í skólunum með í umræðuna. Það má segja að þetta sé ákveðin vanvirða við það starf sem fram fer í skólunum,“ segir Hreiðar Sigtryggsson, formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur. 17.11.2009 04:30
Ástralíustjórn biðst afsökunar Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, baðst í gær afsökunar á framferði Ástrala, sem tóku illa á móti þúsundum munaðarlausra barna frá Bretlandi. 17.11.2009 04:30
Hörpudiskur enn í lágmarki Hörpudisksstofninn í Breiðafirði er enn í lágmarki, miðað við útkomu árlegrar mælingar Hafrannsóknastofnunar. Mælingarnar voru gerðar á Dröfn RE dagana seint í október. 17.11.2009 04:15
Læknar kvilla mannfólksins „Ég hef verið mjög upptekin en spái í að hafa opið hús á laugardag,“ segir Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Villimey á Tálknafirði. Aðalbjörg er jafnframt einn af fjölmörgum talsmönnum Alþjóðlegu athafnavikunnar. 17.11.2009 04:15
Samkynhneigt par í hjónaband Tveir karlmenn í Argentínu, þeir José Maria Di Bello og Alex Freyre, hafa fengið leyfi til að ganga í hjónaband. Athöfnin verður haldin 1. desember næstkomandi. 17.11.2009 04:00
Áhrif kreppu á velferðarríkið Guðmundur Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, heldur í dag fyrirlestur í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands. Yfirskrift fyrirlestraraðarinnar er Hvað er kreppa? Fyrirlestur Guðmundar ber titilinn Velferðarríkið og efnahagskreppur á Íslandi. 17.11.2009 04:00
Málþing um mansal eftir leiksýningu Leikfélag Akureyrar stendur fyrir málþingi um mansal í Ketilhúsinu á Akureyri í dag. Málþingið fer fram að lokinni sýningu á leikritinu Lilju. Leikritið byggir á sannsögulegu kvikmyndinni Lilja 4-ever og segir frá örlögum sextán ára stúlku frá Litháen sem seld var mansali í kynlífsiðnað til Svíþjóðar. 17.11.2009 04:00
Fái 32 milljónir fyrir vegstæðið Eigendur jarðarinnar Miðfells við Þingvallavatn eiga að fá 32 milljónir króna vegna eignarnáms á samtals 13,45 hekturum lands undir vegstæði nýs Lyngdalsheiðarvegar. 17.11.2009 03:45
23.000 tonn veidd af norsk-íslenskri síld Íslensk skip veiddu 11.127 tonn af norsk-íslenskri síld í norskri lögsögu í októbermánuði. Auk þess veiddu þau 12.035 tonn í síldarsmugunni. 17.11.2009 03:45
Íslenskur skóli tekur þátt Fjölbrautaskóli Snæfellinga hefur verið valinn til þess að taka, í samstarfi við Nýherja, þátt í afmælishátíð bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA í Bandaríkjunum, sem haldin er í tilefni þess að 40 ár eru um þessar mundir liðin frá því að maður steig fyrst fæti á tunglið. 17.11.2009 03:45
Icesave afgreitt úr fjárlaganefnd Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans var afgreitt úr fjárlaganefnd Alþingis í kvöld með atkvæðum stjórnarmeirihlutans gegn atkvæðum minnihlutans. Varaformaður nefndarinnar á von á því að frumvarpið verði lagt fram sem þingmál á morgun. 16.11.2009 20:27
Vigdís veitti verðlaun á degi íslenskrar tungu Hátt í sjötíu grunnskólanemar í Reykjavík tóku við íslenskuverðlaunum menntaráðs við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag á degi íslenskrar tungu. Verndari verðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, en markmið þeirra er að auka áhuga grunnskólanema á móðurmálinu og hvetja þá til framfara í tjáningu talaðs máls og ritaðs. 16.11.2009 23:26
Fækkun farsímamastra gæti aukið geislun Geislavarnastofnanir Finnlands, Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og Íslands hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu varðandi geislun á almenning frá fjarskiptamöstrum á almannafæri. Niðurstaða þeirra er að ekki hafi verið færð fyrir því gild vísindaleg rök að þessi geislun, eins og hún er nú í venjulegu umhverfi fólks, hafi skaðleg heilsufarsleg áhrif. Stofnanirnar telja þó að fækkun farsímamastra gæti aukið geislun á almenning. Þetta kemur fram á vef Geislavarna ríkisins. 16.11.2009 21:41
Samfylkingarmenn undrandi yfir formennsku þingmanns VG Samfylkingarmenn undrast að þingmaður Vinstri grænna taki að sér formennsku í samtökum sem berjast gegn helsta stefnumáli Samfylkingarinnar. 16.11.2009 19:30
Þrettán félög sóttu um olíuleit við Grænland Gríðarlegur áhugi er fyrir olíuleit við Grænland og sóttu þrettán alþjóðleg olíufélög um að fá að taka þátt í forvali vegna olíuleitarútboðs við vesturströnd landsins á næsta ári. Grænlensk stjórnvöld hafa ákveðið að opna á olíuleit við Austur-Grænland árið 2012 en líklegt er að hún kalli á mikla þjónustu frá Íslandi. 16.11.2009 19:09
Vill bókina úr búðum Helga Kress, fyrrverandi prófessor í bókmenntafræði, krefst þess að rithöfundurinn Böðvar Guðmundsson, og fyrrverandi eiginmaður hennar, láti innkalla upplag nýjustu skáldsögu sinnar, sem komin er í verslanir. 16.11.2009 19:03
Bankarnir þurfa ekki að auglýsa eignir Nýju ríkisbankarnir þurfa ekki að auglýsa eignir sem þeir hafa tekið yfir og geta í raun selt hverjum sem er, hvenær sem er. 16.11.2009 18:46
Parið var í hefndarleiðangri - stúlkunni sleppt Karl sem gekk berserksgang með haglabyssu í Breiðholti um helgina var úrskurðaður í gæsluvarðhald síðdegis. Vinkonu hans var vikið úr starfi, og vildi hann hefna sín á fyrrverandi vinnuveitanda hennar. 16.11.2009 18:36
Ásmundur Einar styður líklega Icesave frumvarpið Allt stefnir í það að fjárlaganefnd Alþingis afgreiði Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar í kvöld eða á morgun. Málið kemst þá í aðra umræðu á Alþingi fyrir næstu helgi. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, sagði í samtali við fréttastofu í dag að fulltrúar stjórnarflokkanna í nefndinni væru samstíga í málinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu bendir allt til þess að frumvarpið verði samþykkt á Alþingi. 16.11.2009 18:09
Bandarískir hermenn öruggari í Afganistan en heima Harðar deilur hafa staðið yfir mánuðum saman um frumvarp Baracks Obama um sjúkratryggingar fyrir alla landsmenn. 16.11.2009 18:00
Parið væntanlega vistað í fangaklefum á Hverfisgötu Ekki er pláss fyrir unga parið sem grunað erum að hafa skotið á hús í Seljahverfi um helgina í íslenskum fangelsum. Krafist var gæsluvarðhalds yfir fólkinu í dag og verði héraðsdómur við beiðni lögreglu verður fólkið að öllum líkindum vistað í fangaklefum lögreglunnar á Hverfisgötu, að sögn Páls Winkel fangelsismálastjóra. 16.11.2009 17:56
Hvar er pelinn minn? Skelfing greip um sig á brautarpalli í Boston þegar kona féll niður á járnbrautarteinana rétt í þann mund sem lestin kom æðandi inn á stöðina. 16.11.2009 16:57
Þorsteinn frá Hamri hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti í dag Þorsteini frá Hamri Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í ár. 16.11.2009 16:21
Gæsluvarðhalds krafist yfir Þverárselsparinu Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir unga parinu sem grunað er um að hafa skotið á hús við Þverársel í Seljahverfi aðfararnótt sunnudagsins. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, var krafan tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan fjögur í dag. Friðrik Smári sagðist gera ráð fyrir að farið yrði fram á vikulangt varðhald. 16.11.2009 16:15
Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent