Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Papeyjarsmyglmenn áfram í gæsluvarðhaldi Tveir sakborninga sem voru dæmdir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl í svokölluðu Papeyjarsmyglmáli, hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald en þegar hafa þeir verið dæmdir í annarsvegar fimm og níu ára fangelsi. 8.9.2009 17:07
Slökkviliðið kallað í Álfaborgum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er á leið að Álfaborgum í Grafarvogi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu barst tilkynning um að fjölbýlishús í götunni væri fullt af reyk. Slökkviliðsmenn voru ekki komnir á staðinn síðast þegar Vísir frétti og því ekki vitað hvort um eld var að ræða. 8.9.2009 17:06
Mál séra Gunnars í höndum biskups „Við fengum það út úr úrskurðinum sem við vildum í rauninni, en við vildum láta kanna hvort þetta bryti ekki gegn siðareglum Prestafélagsins,“ segir Eysteinn Jónasson, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju, um nýlega niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli séra Gunnars Björnssonar. Eysteinn segir málið nú vera í höndum biskups. 8.9.2009 16:41
Það er gott að búa í Skagafirði Níu af hverjum tíu Skagfirðingum eru ánægðir með að búa í Skagafirði og næstum 8 af hverjum 10 segjast ánægðir með lífsgæði í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun sem Capacent Gallup vann fyrir sveitarfélagið Skagafjörð þar sem viðhorf íbúa til þjónustu sveitarfélagsins og búsetu var kannað. Íbúarnir eru almennt mjög ánægðir með þjónustu sveitarfélagsins svo sem þjónustu við barnafjölskyldur, þó að einstaka þætti í þjónustunni þurfi að laga. 8.9.2009 16:36
Brotist inn í fyrirtæki í Nethyl Á tíunda tímanum í morgun var brotist inn í fyrirtæki í Nethyl í Reykjavík og þaðan stolið nokkru magni af tölvubúnaði. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. 8.9.2009 16:30
Berst fyrir forræði yfir bræðrum sínum Rebekka María Jóhannesdóttir, 22 ára gömul kona úr Hafnarfirði, berst nú fyrir forræði sjö ára og tæplega tveggja ára gamalla bræðra sinna eftir að móðir þeirra féll frá. 8.9.2009 16:07
Árni Páll: Ótvírætt að kerfið brást algerlega Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra segir að niðurstöður skýrslu vistheimilanefndar sýni ótvírætt að opinbert eftirlit hafi brugðist í öllum tilvikum. Skýrslan sem birt var í dag fjallar um Heyrnleysingjaskólann, vistheimlið á Kumbaravogi og stúlknaheimilið á Bjargi. „Þessi staðreynd hefur valdið fjölda fólks miklum sársauka og á því er rétt og skylt að biðjast afsökunar" segir Árni Páll. 8.9.2009 15:33
Rændur í annað sinn á skömmum tíma „Ég ætla að vona að ég hafi ekki gert neinum neitt svo ég eigi þetta skilið,“ segir Viðar Már Þorsteinsson, símsmiður, sem, hefur lent í því í tvígang með skömmu millibili að annarsvegar reiðhjóli hans og hinsvegar dekkjum og felgum undan bifreið hans hafi verið stolið. Hann telur allt eins líklegt að hann fá seinna tjónið ekki bætt. 8.9.2009 15:27
Karzai með hreinan meirihluta Samkvæmt nýjustu tölum í afgönsku forsetakosningunum sem fram fóru á dögunum gefa til kynna að Hamid Karzai, sitjandi forseti hafi náð hreinum meirihluta. Frambjóðandi þarf að ná hreinum meirihluta til þess að hljóta útnefningu, annars þarf að kjósa á ný á milli tveggja efstu. 8.9.2009 15:23
Sjómenn ósáttir við niðurskurð hjá Gæslunni Sjómenn hafa margoft gert athugasemdir við skerta starfsemi Landhelgisgæslunnar, segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands. 8.9.2009 15:18
Innlend orka á bílaflotann gæti sparað milljarð Íslendingar gætu sparað rúmlega einn milljarð króna í gjaldeyri í hverjum mánuði með því að hætta að nota olíu og bensín á bílaflotann og skipta yfir í innlenda orkugjafa svo sem rafmagn og metan. Þetta er fullyrt í tilkynningu frá Framtíðarorku en næstkomandi mánudag mun hópur alþjóðlegra sérfræðinga funda í Reykjavík á mánudag til að fjalla um hvernig framkvæma megi slíka kerfisbreytingu. 8.9.2009 14:34
Norðmenn dæmdir til dauða Herdómstóll í Austur-Kongó dæmdi í dag tvo Norðmenn til dauða fyrir morð, njósnir og vopnasmygl. Um er að ræða tvo karlmenn, 27 og 28 ára, sem hafa verið haldi yfirvalda frá því í maí eftir að bílstjóri þeirra fannst látinn í höfuðborginni, Kinshasa. Þá eru norsk stjórnvöld krafinn um 60 milljónir dollara vegna málsins. 8.9.2009 14:01
Einungis ein þyrluáhöfn á vakt Einungis ein áhöfn verður á vakt á þyrlu Landhelgisgæslunnar frá næsta föstudegi og til mánaðaloka. Þetta staðfesti Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu. 8.9.2009 14:00
Bretar og Hollendingar hafa ekki svarað fundarboði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur enn ekki fengið formleg svör frá Bretum og Hollendingum vegna fyrirvara sem Alþingi gerði við ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans. 8.9.2009 13:16
Lítill og ræfilslegur þetta haustið Fossinn Hverfandi verður lítill og ræfilslegur í ár, að mati stöðvarstjóra Kárahnjúkavirkjunar, sem spáir því að rennsli hans verði aðeins um einn tuttugasti af því sem var á sama tíma í fyrra. 8.9.2009 13:00
Svartur kafli í sögu þjóðarinnar Forsætisráðherra segir fyrstu áfangaskýrslu vistheimilisnefndar sýna svartan kafla í sögu þjóðarinnar. Skýrsla starfshóps um heimili í Kumbaravogi, Skólaheimilinu Bjargi og í Heyrnleysingarskólanum var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra ræddi við blaðamenn um skýrsluna eftir fundinn. 8.9.2009 12:25
Unnusta árásarmanns veittist að lögreglu Átök urðu á milli tveggja manna á Strembugötu í Vestmannaeyjum aðfaranótt sunnudagsins. Mennirnir voru á leið heim eftir að hafa verið að skemmta sér í Höllinni þegar annar þeirra sparkaði í höfuð hins. 8.9.2009 12:13
Arctic Sea: Enginn vopnafarmur um borð að sögn Lavrovs Utanríkisráðherra Rússlands vísar alfarið á bug fréttum þess efnis að flutningaskiptið Arctic Sea, sem hvarf um tíma í sumar, hafi verið að flytja háþróaðar rússneskar loftvarnareldflaugar til Írans. 8.9.2009 12:12
Stækkunarstjóri ESB fundar með ráðamönnum Stækkunarstjóri Evrópusambandsins kemur til landsins í dag og fundar með íslenskum ráðamönnum. Hann mun þá afhenda forsætisráðherra ítarlega spurningalista frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB. 8.9.2009 12:12
Þúsundasti bæjarstjórnarfundurinn Þúsundasti fundur bæjarstjórnar Kópavogs verður haldinn í dag. Bæjarstjórinn segir að lítið verði um hátíðarhöld. Þess í stað muni bæjarstjórnin í tilefni tímamótanna láta pening af hendi rakna til góðgerðamála. 8.9.2009 12:02
AGS: Samkomulag um forsendur í höfn Talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að íslensk stjórnvöld og starfsmenn sjóðsins hafi náð samkomulagi um þær forsendur sem endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands skuli byggja á. Fjármálaráðherra bindur vonir við að fyrsta endurskoðun sjóðsins fari fram í síðari hluta septembermánaðar. 8.9.2009 12:00
Hyggjast finna 500 manns atvinnu Gunnar Karl Níelsson og Daníel Björnsson myndlistarmaður stefna á að stofnuð verði að minnsta kosti 50 fyrirtæki sem veiti að minnsta kosti 500 manns atvinnu á tveimur árum. Þessu markmiði hyggjast þeir ná í gegnum svokallað Hugmyndahús Háskólanna sem sett hefur verið á legg. 8.9.2009 11:38
Sala orkufyrirtækja til einkaaðila glapræði Vinstri græn í Reykjavík fordæma fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Sala orkufyrirtækja til einkaaðila sé glapræði. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á félagsfundi VG í Reykjavík í gær. 8.9.2009 10:30
Stórtækur innbrotsþjófur úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður á þrítugsaldri var í morgun úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. september. Maðurinn var handtekinn í gær eftir að mikið magn af þýfi fannst í íbúð hans í Kópavogi. 8.9.2009 10:19
Fjölgar ört í hópi þeirra sem vilja minnisvarða um Helga Síðustu daga hafa margir minnst Helga Hóseassonar sem oft hefur verið nefndur mótmælandi Íslands, en hann lést síðastliðinn sunnudag. Á tæpum sólarhring hefur fjölgað um 10 þúsund manns í hópi á samskiptasíðunni Facebook sem vilja reisa Helga minnisvarða á horni Langholtsvegar og Holtavegar þar sem hann stóð gjarnan með skilti sín. 8.9.2009 10:09
Hitabeltisstormurinnn Fred er mættur Hitabeltisstormurinn Fred hefur nú litið dagsins ljós en hann varð til á austanverðu Atlantshafi í gær og var þá gefið nafn samkvæmt reglum Hvirfilbyljamiðstöðvar bandarísku veðurstofunnar en þær eru mjög fastmótaðar og hafa öll nöfn hvirfilbylja nú þegar verið ákveðin fram til ársins 2014. 8.9.2009 08:34
McDonald's-menn ekki sáttir við McCurry Skyndibitarisinn McDonald's beið lægri hlut í deilum um vörumerki við karríréttastað í Malasíu. 8.9.2009 08:24
Calderon skiptir um saksóknara Forseti Mexíkó hefur leyst saksóknara, sem tók þátt í að stjórna átakinu gegn eiturlyfjahringjum, frá störfum vegna lítils árangurs við að leysa upp slíka hringi. 8.9.2009 08:21
Hröpuðu til jarðar í véldrifinni fallhlíf Ótrúlegt þykir að ekki hafi orðið stórslys þegar feðgar í fallhlíf sem knúin var með hreyfli hröpuðu til jarðar og lentu í hópi fólks á hátíðarhöldum vegna frídags verslunarmanna í Hooper í Utah í gær. 8.9.2009 08:19
Krefjast afsökunarbeiðni N-Kóreumanna Suður-Kóreumenn krefjast þess að nágrannar þeirra í norðri biðjist afsökunar á að hafa skyndilega veitt vatnsflaumi í á, sem rennur um landamæri landanna, á sunnudagsmorgun með þeim afleiðingum að sex Suður-Kóreumenn, þar af eitt barn, sem voru í útilegu við ána drukknuðu þegar hún flæddi yfir bakka sína. 8.9.2009 08:14
Ógnaði starfsfólki banka með hlaupstífðri haglabyssu Maður á þrítugsaldri og félagi hans höfðu eitthvað af peningum upp úr krafsinu þegar þeir rændu banka í Åbyhøj á Austur-Jótlandi síðdegis í gær. 8.9.2009 08:13
Annar skjálfti í Indónesíu Jarðskjálfti að styrkleika 6,1 stig á Richter skók indónesísku eyna Jövu í gærdag, innan við viku eftir að 65 manns fórust þar og yfir 400 slösuðust í öðrum sterkum skjálfta. 8.9.2009 08:10
Könguló til heiðurs David Bowie Risastór kafloðin könguló frá Malasíu hefur verið nefnd í höfuðið á tónlistarmanninum David Bowie og nefnist tegundin Heteropoda davidbowie. 8.9.2009 07:57
Ætluðu að sprengja fjölda flugvéla Þrír múslimar, búsettir í Bretlandi og tengdir hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda, hafa verið fundnir sekir um að leggja á ráðin um sjálfsmorðssprengjuárásir í stórum farþegaflugvélum á leið yfir Atlantshafið. 8.9.2009 07:30
Smásöluverð kannabisefna hækkar Smásöluverð á kannabisefnum hér á landi hefur hækkað verulega að undanförnu, samkvæmt verðkönnun SÁÁ og er grammið nú á bilinu fjögur til fimm þúsund krónur. 8.9.2009 07:29
Ók á 160 til að komast á klósett Erlend kona, sem er ferðamaður hér á landi, og var staðin að ofsaakstri á milli Hellu og Hvolsvallar undir kvöld í gær, reyndist líka vera undir áhrifum áfengis. 8.9.2009 07:27
Lánþegar Frjálsa gera með sér samtök Á fjölmennum fundi lánþega Frjálsa fjárfestingarbankans í gærkvöldi var ákveðið að mynda framkvæmdastjórn, sem tæki að sér að halda utan um samningagerð lánþega við skilanefnd bankans, en mikil óánægja ríkir með breytingar á kjörum eldri lána hjá bankanum. 8.9.2009 07:20
Hverjum klukkan glymur Tveir útlendingar, sem búsettir eru hér á landi, klifruðu í nótt upp vinnupallana á Hallgrímskirkju í Reykjavík og fóru inn í klukknaportið. Þar fóru þeir að hringja kirkjuklukkunum með því að slá í þær með verkfærum, sem þar eru á vegum verktakans, sem vinnur að viðgerð á turninum. 8.9.2009 07:15
Náttúruminjasafnið í kössum næstu árin Fjárveitingar til Náttúruminjasafns Íslands, sem er eitt höfuðsafna þjóðarinnar, verða skornar niður um allt að fjórðung. Þá er rætt um breytt hlutverk Þjóðmenningarhússins og jafnvel lokun þess, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Forstöðumaður Þjóðmenningarhússins hafnar því. 8.9.2009 06:00
Verðmætt þýfi fannst við húsleit í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann gríðarlega mikið magn þýfis í gær. Karlmaður á þrítugsaldri, sem er af erlendu bergi brotinn, var handtekinn og verður að líkindum farið fram á gæsluvarðhald yfir honum í framhaldinu. 8.9.2009 06:00
Segir Ísland ekki stefna í greiðsluþrot Ísland stefnir ekki í greiðsluþrot þrátt fyrir að skuldir þjóðarbúsins séu nú orðnar 233 prósent af landsframleiðslu, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 8.9.2009 05:00
Telur að ráðið hafi farið að lögum Formaður þjóðleikhúsráðs segir að vel geti verið að betra hefði verið að fá einhvern annan en ráðið, til að veita umsagnir um hæfni þeirra sem sóttu um stöðu þjóðleikhússtjóra. 8.9.2009 04:00
Tugir sektaðir á landsleiknum Lögreglan sektaði fimmtíu til sextíu bíleigendur sem höfðu lagt bílum sínum ólöglega meðan þeir horfðu á landsleik milli Íslands og Noregs á Laugardalsvelli síðastliðinn laugardag. 8.9.2009 03:00
Vill skýr svör ríkisins og Alcoa Sveitarstjóri Norðurþings hefur óskað eftir fundi með iðnaðarráðherra til að knýja á um að viljayfirlýsing um byggingu álvers á Bakka við Húsavík verði framlengd. 8.9.2009 02:30
Veitt strax þegar laun lækka Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Breytingin felur í sér að nú eiga um 200 fjölskyldur með um 300 börn á framfæri rétt á sérstakri fjárhagsaðstoð. Þessi fjárhagsaðstoð er viðbót við þá aðstoð sem Reykjavíkurborg hefur veitt barnafjölskyldum fyrr á árinu. 8.9.2009 02:00