Fleiri fréttir

Ný von í baráttu við skógarelda

Örlítið tók að kólna í veðri í Kaliforníu í gærkvöldi og gefur það slökkviliði og íbúum Los Angeles von um að draga muni úr útbreiðslu skógarelda sem nú hafa brennt tæpa 500 ferkílómetra skóglendis og ógna þúsundum heimila.

Milljónir gátu ekki opnað Gmail

Margar milljónir notenda tölvupóstforritsins Gmail, sem er ókeypis þjónusta á vegum Google, urðu fyrir óþægindum í gærkvöldi þegar pósturinn var óaðgengilegur í tæpar tvær klukkustundir.

Lundastofninn kominn að fótum fram

Útlit með afkomu lundastofnsins í Vestmannaeyjum er jafnvel verra nú en í fyrra og virðist afkomubrestur blasa við enn eitt árið í röð.

Saksóknari vill grafa upp lík

Saksóknari í New York hyggst fara fram á það við yfirvöld að þau láti grafa upp lík konu sem varð átta manns að bana þegar hún ók gegn akstursstefnu og framan á aðra bifreið í lok júlí, til þess að rannsaka hvort hún hafi verið undir áhrifum áfengis og marijúana þegar slysið varð.

Bílsprengja sprakk í Aþenu

Bílsprengja sprakk við kauphöllina í Aþenu, höfuðborg Grikklands, í morgun og skemmdi átta bíla auk þess sem töluvert tjón varð á kauphöllinni. Kona slasaðist lítillega í sprengingunni en dagblaði í borginni hafði borist aðvörun skömmu áður en sprengjan sprakk.

Hver sjóður kaupi lítinn hlut í HS Orku

Útilokað er talið að lífeyrissjóðir vilji kaupa stóran hlut í HS Orku. Bankarnir eru taldir munu gegna lykilhlutverki í kaupum opinberra aðila á meirihluta í félaginu. Hlutur GGE, sem er 55 prósent, er metinn á rúmlega tuttugu milljarða.

Vildi skoða laxveiðina líka

Samkvæmt heimildum blaðsins átti einnig að taka í rannsókn efnahagsbrotadeildar önnur fríðindi sem kjörnir fulltrúar almennings nutu frá aðstandendum orkufyrirtækja, sérstaklega laxveiðiferð Hauks Leóssonar, stjórnarformanns OR, í ágúst 2007.

Efnahagsbrotadeild skoðar styrki til stjórnmálaflokka

Efnahagsbrotadeild rannsakar nú styrkveitingar opinberra fyrirtækja til stjórnmálaflokka fyrir alþingiskosningar 2007. Fjórir flokkar kunna að hafa brotið lög. Kjörnir fulltrúar buðu upp á grunsemdir.

Vildi skoða risastyrki FL Group og Landsbanka til Sjálfstæðisflokksins

Ríkissaksóknari ákvað í vor að taka ekki til formlegrar athugunar þrjátíu milljóna króna styrk FL Group til Sjálfstæðis­flokksins fyrir kosningarnar 2007, né rannsaka aðrar fyrirgreiðslur til háttsettra sjálfstæðis­manna í ljósi fyrirhugaðrar sölu REI til Geysis Green, sem var að hluta í eigu FL Group. Samkvæmt heimildum blaðsins þótti efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra ástæða til að vekja athygli Ríkissaksóknara á þessum hugsanlegu lögbrotum. Einnig vildi deildin, í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar, skoða hvernig styrkveitingar til Sjálfstæðisflokksins kynnu að hafa tengst Landsvirkjun Power, félagi Landsvirkjunar og Landsbanka. Bankinn styrkti flokkinn um alls þrjátíu milljónir króna.

Rannsóknarnefnd skoðar bankana

Styrkir til stjórnmálaflokka eru meðal þess sem rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið rannsakar, staðfesti Tryggvi Gunnarsson nefndarmaður í samtali við Fréttablaðið 11. apríl.

Stunduðu undirboð á sementi

Framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar á Akranesi hefur sent Viðskiptaráði, samtökum í atvinnulífinu og alþingismönnum bréf þar sem hann sakar keppinaut sinn, Aalborg Portland á Íslandi, um að hafa stundað undirboð á byggingamarkaði allt frá árinu 2000.

Fjöldi ára hefur farið í súginn

Alþjóðlegt uppbyggingarstarf í Afganistan hefur að mörgu leyti verið unnið fyrir gýg árum saman vegna þess að samhæfingu hefur skort. Þetta segir Kai Eide, yfirmaður Sameinuðu þjóðanna í Afganistan, sem heldur því fram að ríkin sem standa að uppbyggingarstarfi í Afganistan verði að átta sig á því að samhæfa verði starfið og setja þeim heildstæð markmið.

Skógar munu þekja allt láglendi Íslands

Allt láglendi Íslands mun verða undirlagt af sjálfsprottnum skógi vegna minni sauðfjárbeitar og hlýnandi loftslags. Þegar kominn fimm þúsund hektara birkiskógur á Skeiðarársandi, segir framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands.

Skert þjónusta í hálfan mánuð

Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir óánægju með að ferðir Breiðafjarðarferjunnar Baldurs falli niður dagana 6. til 22. september. Sæferðir, sem gera út Baldur, hafa leigt skipið út til að leysa af Vestmannaeyjaferjuna Herjólf sem fer í slipp umrædda daga. Þótt Baldur verði ekki í ferðum ætla Sæferðir að þjónusta

Sextíu þúsund milljarðar á ári

Auðugustu ríki heims þyrftu að afhenda fátækari hluta heimsins sextíu þúsund milljarða króna árlega til þess að fátæku ríkin gætu brugðist við loftslagsbreytingum.

Áttu að fylgjast með skipum

Bretland Vorið 1944 töldu Þjóðverjar miklar líkur á því að Bandamenn myndu ráðast inn í Frakkland frá Íslandi, í því skyni að frelsa Frakkland undan hernámi nasista. Þetta kemur fram í skjölum, sem þjóðskjalasafnið í Bretlandi birti í gær. Í skjölunum segir frá ferð þriggja manna, Þjóðverjans Ernsts Fresenius og Íslendinganna Hjalta Björnssonar og Sigurðar Júlíussonar, sem nasistar sendu til Íslands til að kanna skipaferðir og herflutninga.

Bekkir of fáir fyrir göngufólk

Bekkir meðfram göngustígnum sem liggur með suðurströnd Reykjavíkur og áfram inn í Fossvogsdal eru of fáir, að sögn hverfisráðs Vesturbæjar, sem vill að bekkjunum verði fjölgað til muna.

Á topp hæsta húss Malasíu

Alain Robert, sem hefur verið uppnefndur Köngulóarmaðurinn, var handtekinn í Malasíu í gær eftur að hann hafði klifrað upp annan tvíburaturnanna í höfuðborginni Kúala Lúmpúr.

Fjöruborð við Vík langt innan marka

„Fari saman stórstreymi, háflóð, hvassviðri og þung alda eru mannvirki fyrir hundruð milljóna í stórhættu,“ segir sveitarstjórn Mýrdalshrepps og kveðst hafa sýnt einstakt langlundargeð í að bíða eftir endurbótum á sjóvarnar­garði við Vík. Að sögn Mýrdælinga hefur sífellt brotið af landinu og fjöruborðið nálgast nú Vík. Opinberir aðilar gerðu áætlun um sjóvörn við Vík árið 1994.

Öllum sagt upp í Alþjóðahúsi

Öllum starfsmönnum Alþjóðahúss, fjórtán talsins, hefur verið sagt upp störfum frá og með áramótum. Ástæðan er tafir á afgreiðslu þjónustusamnings Reykjavíkurborgar við Alþjóðahúsið fyrir næsta ár. Fulltrúar Alþjóðahúss og Reykjavíkurborgar benda hvor á annan þegar spurt er um ástæður tafanna.

Sjötíu ár frá stríðsbyrjun

Leiðtogar Evrópuríkja gátu ekki alveg gleymt deilumálum sínum þegar þeir komu saman í Póllandi til að minnast upphafs seinni heimsstyrjaldarinnar.

Mál Alþjóðahússins tekið fyrir í borgarráði á fimmtudag

„Borgin verður að ábyrgjast þjónustu við innflytjendur,“ segir Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Hún óskaði eftir því á fundi borgarstjórnar sem lauk á ellefta tímanum í kvöld að mál Alþjóðahússins verði tekið fyrir í borgarráði næstkomandi fimmtudag. Hún segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, hafi orðið verið þeirri beiðni.

Meðlimur Mansonfjölskyldunnar vill reynslulausn

Susan Atkins sem tilheyrði Mansonfjölskyldunni illræmdu kemur fyrir náðunar- og skilorðsnefnd á morgun. Susan var ásamt fjórum öðrum sakfelld í október árið 1969 fyrir hrottaleg morð en þá var hún 21 árs.

Dagur: Gengur ekki að selja lykilþætti á brunaútsölu

„Það gengur ekki að hlaupa til og selja þessa lykilþætti á brunaútsölu,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, um samkomulag Orkuveitu Reykjavíkur við Magma Energy um sölu á hlut Orkuveitunnar í HS orku. Hann gagnrýnir pukur í kringum samkomulagið. Guðlaugur Sverrisson, stjórnarmaður Orkuveitunnar, segir að ekki sé verið að fela neitt fyrir borgarbúum.

Slökkviliðsmenn binda vonir við lægra hitastig

Slökkviliðsmenn sem berjast við skógareldanna sem breiðst hafa stjórnlaust um stórt svæði norður af Los Angelesborg í Kaliforníuríki binda miklar vonir við að kaldara hitastig og aukinn raki muni hægja verulega á eldunum á morgun og á fimmtudag. Þrátt fyrir að vel á þriðja þúsund slökkviliðsmenn taki þátt í baráttunni við eldanna hefur þeim aðeins tekist að slökkva í litlum hluta þess svæðis sem logar.

Alþjóðahúsið hefur ekki uppfyllt samkomulag við borgina

„Það er mjög einkennilegt að þau skuli vera að ýja að það sé verið að segja upp 14 starfsmönnum af því að það vantar fimm milljónir af 20. Mér sýnist ekki vera mikill rekstrargrundvöllur fyrir Alþjóðahúsinu ef að það þarf að segja upp öllu starfsfólkinu þegar vantar fimm milljónir," segir Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi og formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, í samtali við fréttastofu. Hún segir Alþjóðahúsið ekki hafa uppfyllt samkomulag við borgina.

Borgarbúar komi að mótun fjárhagsáætlunar

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag tillögu, borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, um að útfærðar verði leiðir til þátttöku borgarbúa við mótun fjárhagsáætlunar árið 2010.

Meirihluti landsmanna andvígur ríkisábyrgðinni

Meirihluti landsmanna er á móti ríkisábyrgð vegna Icesave sem Alþingi samþykkti síðastliðinn föstudag. 63% aðspurðra eru andvígir ríkisábyrgðinni en 24% prósent eru hlynnt. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup sem greint var frá í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld.

Lífsýnabanki Íslenskrar erfðagreiningar ekki til sölu

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að fyrirtækið eigi ekki í viðræðum við aðila, innlenda eða erlenda, um sölu eða rekstur á lífsýnabanka fyrirtækisins. „Aldrei hefur staðið til eða verið rætt um að bankinn verði seldur öðrum,“ segir Kári.

Sjálfstæðisflokkurinn áfram stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi stjórnarflokkanna eykst meðal kjósenda en 49% styðja ríkisstjórnina sem er örlítið fleiri en þegar síðast var spurt. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Ríkisstjórnin bjóði erlenda fjárfesta velkomna

Landsvirkjun freistar þess nú að finna leiðir til að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir það skipta gríðarlegu máli að ríkisstjórnin sendi þau skilaboð að erlendir fjárfestar séu velkomnir.

Tíundi hver kúabóndi í verulegum vanda

Um 10% kúabænda eru í verulegum vanda staddir vegna mikillar skuldsetningar. Aukin harka er hjá fjármögnunarfyrirtækjum að sækja tæki og vélar vegna gríðarlegra skulda.

Skattheimtan hamlar olíuleit á Drekanum

Skattarnir sem íslensk stjórnvöld ætla að heimta af olíuvinnslu á Drekasvæðinu virðast ætla að verða þröskuldur í vegi þess að olíuleit hefjist þar fyrir alvöru. Verkefnisstjóri olíuleitar hjá Orkustofnun segir að taka verði mjög alvarlega athugasemdir sem umsækjendur gerðu á fundi í gær.

Miklar skattahækkanir nauðsynlegar

Fjármálaráðherra segir óumflýjanlegt að grípa til mikilla skattahækkana til að brúa fjárlagagatið á næsta ári. Fjárlagagerðin er komin á fullt skrið, en ráðherra segir hana aldrei áður hafa verið jafn erfiða.

Öllu starfsfólki Alþjóðahússins sagt upp

Framtíð Alþjóðahúss er í uppnámi eftir að öllum starfsmönnum var sagt upp í gær. Fjarhagsstaðan er það slæm ekki náðist að greiða starfsmönnum laun nú um mánaðarmótin. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Féll niður af fjórðu hæð

Karlmaður féll niður til jarðar af fjórðu hæð fjölbýlishúss í Árbæjarhverfi á sjötta tímanum í dag. Hann var fluttur með hraði á slysadeild og veitti lögregla sjúkrabifreið forgang. Tildrög slyssins eru óljós, að sögn lögreglu.

Fimm bíla árekstur á Miklubraut

Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut, til móts við Stakkahlíð, rétt fyrir klukkan fimm í dag. Búast má við einhverjum töfum vegna þessa. Ekki lítur út fyrir að slys hafi orðið á fólki en lögregla er mætt á staðinn.

Pólsku þjófarnir áfram í gæsluvarðhald

Hæstiréttur úrskurðaði í dag þrjá Pólverja í gæsluvarðhald til 4.september en þeir höfðu allir kært úrskurð héraðsdóms. Pólverjarnir eru taldir tilheyra skipulögðu gengi innbrotsþjófa sem grunað er um að hafa brotist inn á hundruð heimila síðustu vikur og mánuði. Lögreglan rannskar hvort þýfinu hafi verið smyglað úr landi.

Magma-samningur gerður opinber

Samningur Magma Energy við Orkuveitu Reykjavíkur var gerður opinber nú síðdegis. Fulltrúar Samfylkingar og VG í stjórn Orkuveitunnar óskuðu eftir því í gær að samningarnir yrðu gerðir opinber en sú tillaga var felld, að fram kemur í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni. Í samningnum er ákvæði um trúnað við Magma.

Erlendir Vítisenglar bíða úrskurðar dómsmálaráðuneytis

Vítisenglar frá þremur löndum hafa kært Útlendingastofnun til dómsmálaráðuneytis fyrir að hindra för þeirra til Íslands í mars síðastliðnum. Alls bárust á annan tug kæra frá vítisenglum í Danmörku, Finnlandi og Noregi. Samkvæmt Oddgeiri Einarssyni, lögfræðingi, þá var málið kært strax í mars.

Fimmti hver hefur þurft á sérstökum úrræðum að halda

Fimmti hver einstaklingur hefur þurft á sérstökum úrræðum að halda til að geta staðið skil á greiðslum vegna lána. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ í júní og sagt er frá á heimasíðu sambandsins.

Fimm börnum bjargað úr klóm barnaníðinga

Lögreglan á Bretlandi hefur bjargað fimm börnum úr klóm barnaníðinga víðsvegar um landið en mennirnir höfðu sent níðingsverkin sem þeir frömdu á börnunum út á internetinu. Um er að ræða drengi og stúlkur á aldrinum sjö til þrettán ára og fundust þrjú þeirra í Skotlandi og tvö í Englandi. Nokkrir hafa að sögn lögreglu verið handteknir grunaðir um aðild sína að málunum og bíða nú ákæru.

Sjá næstu 50 fréttir