Innlent

Féll niður af fjórðu hæð

Mynd/Pjetur

Karlmaður féll niður til jarðar af fjórðu hæð fjölbýlishúss í Árbæjarhverfi á sjötta tímanum í dag. Hann var fluttur með hraði á slysadeild og veitti lögregla sjúkrabifreið forgang. Tildrög slyssins eru óljós, að sögn lögreglu.

Ekki fengust upplýsingar hjá lögreglu eða slökkviliði um líðan mannsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×