Ríkisstjórnin bjóði erlenda fjárfesta velkomna 1. september 2009 19:00
Landsvirkjun freistar þess nú að finna leiðir til að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir það skipta gríðarlegu máli að ríkisstjórnin sendi þau skilaboð að erlendir fjárfestar séu velkomnir.Virkjun við Búðarháls, milli Sultartanga og Hrauneyjafoss, hefur þá sérstöðu að víðtæk sátt ríkir um hana og öll leyfi liggja fyrir, - meira að segja ákafir umhverfissinnar hafa fagnað henni. Framkvæmdir hófust raunar fyrst fyrir átta árum þegar sprengt var fyrir stöðvarhúsinu. Þráðurinn var svo tekinn upp að nýju í fyrra, útboð auglýst og vinnubúðir fluttar á staðinn enda nánast tilbúinn orkusölusamningur við Straumsvík. En þá hrundi Ísland og allt fraus.Á aðgerðalista ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum frá því í vor er þetta það verkefni sem flest störf gæti skapað. Ákvörðun um þessa tuttugu milljarða króna fjárfestingu gæti því orðið vítamínsprauta. Búðarhálsvirkjun er það stórverkefni sem er líklegast til að vera næst í röðinni. Ákvörðun um að setja framkvæmdir á fullt gæti þannig orðið einskonar táknræn yfirlýsing um að botni kreppunnar sé náð og að endurreisnin sé hafin.Eftir miklar framkvæmdir við Kárahnjúka er svigrúm Landsvirkjunar til nýrra fjárfestinga takmarkað. Í samráði við iðnaðarráðuneytið er því verið að skoða nýjar lausnir til að koma Búðarhálsi af stað. Nefnt hefur verið að lífeyrissjóðir fjárfesti í virkjuninni, kaupendur orkunnar og jafnvel verktakar.Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, nefnir í samtali við Stöð 2 verkefnisfjárfestingu og að til dæmis seljendur véla- og rafbúnaðar leggi fram fé. Hann segir menn ætla að gefa sér tíma fram til áramóta hið minnsta til að skoða leiðir en segir það skipta gríðarlega miklu máli að ríkisstjórnin sendi þau skilaboð að erlendir fjárfestar séu velkomnir til starfa á Íslandi en ekki sé farið með þá eins og boðflennur.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira