Skattheimtan hamlar olíuleit á Drekanum Kristján Már Unnarsson skrifar 1. september 2009 18:39
Skattarnir sem íslensk stjórnvöld ætla að heimta af olíuvinnslu á Drekasvæðinu virðast ætla að verða þröskuldur í vegi þess að olíuleit hefjist þar fyrir alvöru. Verkefnisstjóri olíuleitar hjá Orkustofnun segir að taka verði mjög alvarlega athugasemdir sem umsækjendur gerðu á fundi í gær.Íslensku olíuskattarnir hafa áður verið gagnrýndir, meðal annars af óháðum norskum sérfræðingi, og á fundi með fulltrúum íslenskra stjórnvalda í gær komu fulltrúar hins norska Sagex Petrolium og hins íslenska Lindir Exploration því á framfæri að skattkerfið fældi alþjóðleg olíufélög frá Drekasvæðinu. Að sögn Þórarins Sveins Arnarsonar, verkefnisstjóra olíuleitar hjá Orkustofnun, finnst þeim skattkerfið ekki aðlaðandi og ekki hvetjandi fyrir fyrirtækin að koma hingað og leita að olíu. Þeir hafi komið þessum athugasemdum sínum á framfæri.Terje Hagevang, forstjóri Sagex, sagði í gær að fyrsti borpallurinn kæmi ekki á Drekann nema það tækist að vekja áhuga fleiri olíufélaga á svæðinu.Olíufélögin gera ekki athugasemd við að íslenska ríkið ætli að taka allt að 59 prósenta skatt af olíugróðanum, enda er það lægra hlutfall en í Noregi. Það sem pirrar þau er svokallað vinnslugjald sem leggst á áður en hagnaður myndast af olíuvinnslunni.Skattarnir voru aðalmálið á fundinum í gærmorgun en þangað voru sérstaklega fengnir fulltrúar frá fjármálaráðuneyti og ríkisskattstjóra. Hvort þetta valdi áhyggjum svarar Þórarinn Sveinn að þeir taki þessar athugasemdir vissulega alvarlega. Hann segir það þó ekki sitt hlutverk að svara því hvort taka eigi skattkerfið til endurskoðunar. Það þurfi þó allavega að skoða það mjög alvarlega.
Tengdar fréttir Vill hefja olíuleitina strax næsta sumar Norska olíufélagið Sagex Petrolium vonast til að geta hafið olíuleitina á Drekasvæðinu þegar á næsta ári með nákvæmum hljóðbylgjurannsóknum. Borpallur kemur hins vegar ekki á svæðið nema fleiri olíufélög fáist í verkefnið. 31. ágúst 2009 18:45 Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Sjá meira
Vill hefja olíuleitina strax næsta sumar Norska olíufélagið Sagex Petrolium vonast til að geta hafið olíuleitina á Drekasvæðinu þegar á næsta ári með nákvæmum hljóðbylgjurannsóknum. Borpallur kemur hins vegar ekki á svæðið nema fleiri olíufélög fáist í verkefnið. 31. ágúst 2009 18:45