Fleiri fréttir

Sjö af átta umsækjendum konur

Átta umsækjendur eru um embætti prests í Hafnarjarðarpretstakalli, Kjalarnesprófastsdæmi. Frestur til að sækja um embættið rann út 27. ágúst en embættið veitist frá 1.október. Sjö af þessum átta umsækjendum eru konur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Biskupsstofu.

Forsetinn ekki enn fengið Icesavelögin

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur ekki enn fengið hin umdeildu Iög um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninganna inn á borð til sín en lögin voru samþykkt á Alþingi á föstudag. Forsetinn þarf að samþykkja lögin með undirskrift sinni líkt og öll önnur lög sem samþykkt eru á Alþingi. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forsetans hafa lögin ekki borist forsetanum og ekki er vitað hvenær svo verði.

Tindur Jónsson: „Ég sé eftir þessu núna“

Aðalmeðferð fór fram vegna meintrar amfetamínverksmiðju sem fannst í Hafnarfirði í október á síðasta ári. Tindur Jónsson hefur verið ákærður auk Jónasar Inga Ragnarssonar fyrir að hafa ætlað að framleiða amfetamín og selja það. Jónas Ingi er einnig ákærður fyrir vörslu á fíkniefnum.

Enn ekkert heyrst í Bretum og Hollendingum

Engin formleg viðbrögð hafa enn borist frá Bretum og Hollendingum við ákvörðun Alþingis um að samþykkja ríkisábyrgð á Icesave samningunum að viðbættum fyrirvörum. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Hann sagðist þó búast við að heyra frá stjórnvöldum þessara landa undir lok vikunnar.

Villa í tölvukerfi fæðingaorlofssjóðs

Símalínur fæðingarorlofssjóðsins hafa verið rauðglóandi í dag og í gær. Hátt í helmingur þeirra sem fá greiðslur úr fæðingarorlofssjóði fengu mun minna en þeir gerðu ráð fyrir um mánaðamótin. Ekki var gert ráð fyrir persónuafslætti hjá fólkinu, vegna villu í tölvukerfi. Til stendur að leiðrétta þetta síðdegis.

Vilja samning við Magma upp á borðið

Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir að minnihlutinn í borgarstjórn muni á fundi síðar í dag krefjast þess að samningur Orkuveitunnar um sölu á hlut veitunnar í HS Orku til Magma Energy verði gerður opinber nú þegar.

Bandaríska sendiráðið leigir glæsivillu af Kaupþingsprinsi

Bandaríska sendiráðið hefur tekið á leigu rúmlega 200 fermetra glæsivillu í Skerjafirðinum, nánar tiltekið í Skildinganesi 25. Eigendur villunnar eru Helga María Garðarsdóttir og Birna Geirsdóttir, eiginkona og tengdamóðir Kaupþingsprinsins Ingvars Vilhjálmssonar.

Útivistartíminn breytist í dag

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag. Tólf ára börn og yngri mega frá þeim tíma vera úti til klukkan 20.00.

Fundu bein í bakgarðinum hjá Garrido

Lögreglan hefur fundið bein í bakgarði Philip Garrido sem handtekinn var í síðustu viku ásamt eiginkonu sinni eftir að Jaycee Lee Dugard sem hvarf árið 1991 fannst í bakgarði þeirra. Frá handtökunni hefur lögregla leitað í hverjum krók og kima á landareign þeirra hjóna en grunur leikur á að Garrido tengist nokkrum morðum á vændiskonum og brotthvörfum þriggja annarra ungra stúlkna á tíunda áratugnum.

Google tala íslenskum

„Internet risastór Google tilkynnt mánudagur það var að bæta við níu fleiri tungumálum til Google Translate, sjálfvirk þýðing program."

Hjartveik börn og foreldrar þeirra eru fórnarlömbin

Guðrún Pétursdóttir, formaður styrktarsjóðs hjartveikra barna, segir í samtali við fréttastofu að hjartveik börn og foreldrar þeirra séu fórnarlömb þess að Landsbankinn virti ekki vörslusamning sem gerður var við sjóðinn árið 2005. Fjórðungur sjóðsins gufaði upp í höndum Landsbankans.

Kínverskir tölvuþrjótar sækja að eldri konum

Óprúttnum aðilum, sem stunda hvers kyns tölvuglæpi, hefur vaxið mjög fiskur um hrygg í Kína og vinna skipulögð gengi nú að því að brjótast inn í tölvur fólks og freista þess að nálgast þar viðkvæmar bankaupplýsingar auk hvers kyns persónuupplýsinga sem hægt er að nýta til að komast yfir skjót- og illa fenginn gróða.

Bjóða nemendum fé fyrir að taka ársfrí

Breskur læknaháskóli býður nýjum nemendum sínum nú 3.000 pund, jafnvirði rúmra 600.000 króna, fyrir að taka sér eins árs frí áður en þeir hefja nám við skólann.

FARC senda myndbönd af föngum sínum

Kólumbísku skæruliðasamtökin FARC hafa sent frá sér myndbönd til sönnunar þess að níu her- og lögreglumenn, sem liðsmenn samtakanna rændu, séu á lífi.

Sluppu ótrúlega vel eftir bílveltu

Þrjú ungmenni sluppu ótrúlega vel, að sögn vitnis, eftir að bíll þeira valt þrjár til fjórar veltur út af Vatnsendavegi við Vífilsstaðavatn á tólfta tímanum í gærkvöldi.

Mat- og drykkjarvörur hækka í dag

Margar mat- og drykkjarvörur hækka í dag vegna vörugjalda stjórnvalda, sem upphaflega átti að vera sykurskattur. Lítri af ávaxtasafa hækkar til dæmis um 16 krónur en sykraðar mjólkurvörur lítið eða ekkert, nema hvað ís úr mjólk og rjóma hækkar.

Ragnar SF með aflamet

Hraðfiskibáturinn Ragnar SF frá Hornafirði setti aflamet smábáta í nýliðnum ágústmánuði, þegar hann veiddi rösklega tvö hundruð tonn í rúmlega tuttugu róðrum frá Seyðisfirði.

Nýtt fiskveiðiár á miðnætti

Nýtt fiskveiðiár hófst á miðnætti í skugga mikils niðurskurðar á kvótum mikilvægra tegunda. Mestu munar að ýsukvótinn á þessu fiskveiðiári verður heilum 30 þúsund tonnum minni en á síðasta fiskveiðiári, eða aðeins 63 þúsund tonn, samanborið við 93 þúsund tonn á nýliðnu fiskveiðiári.

Orkan lækkar eldsneytisverð

Bensínorkan lækkaði verð á bensíni og dísilolíu síðdegis í gær. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu og hækkandi gengis krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar, en olíuviðskipti fara fram í dollurum.

Fimm í fangageymslum eftir innbrot

Fimm menn gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa verið gripnir við innbrot í nótt. Einn hafði brotist inn í fyrirtæki við Gjáhellu í Hafnarfirði og fanst í hnipri undir fjórhjóli.

Aðgerðir á ís vegna Icesave

Hugsanleg aðkoma lífeyrissjóðanna að verklegum framkvæmdum er að mestu órædd og með öllu óákveðin. Annir starfsfólks fjármálaráðuneytisins vegna Icesave-málsins ráða þar mestu um en mikið álag var á ráðuneytisfólki við meðferð Alþingis á málinu.

Merkel segist enn vongóð

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segist enn gera sér vonir um að mynda hægristjórn með Frjálslyndum demókrötum eftir þingkosningar, sem haldnar verða 27. september.

Barnaverndarmálum fjölgar um fimmtung

Tilkynnt var um 17 prósentum fleiri börn til Barnaverndar Reykjavíkur fyrstu sex mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Tilkynningum í heild fjölgaði um fjórðung. Mest er fjölgunin í Reykjavík en er þó talsverð um landið allt.

Sviku sig inn í Vítisenglana

Tugmilljónasvik út úr Íbúðalánasjóði eru talin hafa verið síðasta prófraunin sem vélhjólaklúbburinn Fáfnir þurfti að standast til að fá aðild að alþjóðasamtökum Hells Angels. Ríkislögreglustjóri vill banna klúbbinn.

Deild fyrir einhverf börn stofnuð í haust

Skólakerfið tekur ekki nægjanlegt tillit til ólíkrar getu og þroska barna, segir Margrét Pála Ólafsdóttir. Hjallastefnan opnar sérdeild fyrir einhverf börn árið 2010. „Frábærar fréttir,“ segir framkvæmdastjóri Umsjónarfélags einhverfra.

Hlýnun jarðar rædd

Um 1.500 vísindamenn, embættismenn og stjórnmálamenn taka þátt í loftslagsráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem haldin er í Genf nú í vikunni.

Nauðgari krafinn um milljónatugi

Eitt fórnarlamba nauðg­arans Jóns Péturssonar hefur krafið hann um rúmlega tuttugu milljónir í skaðabætur fyrir hönd ólögráða sonar síns. Bótakrafan er til komin vegna andlegs skaða sem pilturinn varð fyrir þegar hann horfði upp á ofbeldi Jóns gegn móður hans. Pilturinn er metinn með 25 prósenta örorku vegna þess andlega áfalls sem hann varð fyrir.

Þriðjungur er með skert laun

Ríflega þriðjungur, eða 35 prósent þeirra sem eru í launaðri vinnu, hefur orðið fyrir því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands í júní. Flestir eða rúmlega átján prósent hafa lent í launalækkun, hjá níu prósentum hefur vinnutími verið styttur og átta prósent hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu. Þetta er mikil aukning frá því í desember 2008 þegar 21 prósent launafólks hafði orðið fyrir í slíkri skerðingu.

Flóttafærin látin ónotuð

Jaycee Lee Dugard tók virkan þátt í prentþjónustufyrirtæki Garrido-hjónanna. Sérfræðingar segja ýmsar skýringar á því að hún lét ógert að flýja.

Forstjóri skammar atvinnurekendur fyrir gagnrýnisleysi

Forstjóri N1 telur að hagsmunasamtök atvinnurekenda ættu að beina sjónum inn á við í endurreisninni og gagnrýna eigin félaga þegar þeir brjóta lög. Framkvæmdastjóri SA segir þetta ekki hlutverk samtakanna.

OR gekk að tilboði Magma í HS Orku

Stjórnvöld vilja kaupa meirihluta í HS Orku. Geysir Green Energy á um 55 prósenta hlut en opinberir aðilar hafa ekki rætt við félagið um kaup á hlut þeirra. Ríkið, lífeyrissjóðir og sveitarfélög skoða kaup á meirihluta í HS Orku.

Framlenging útboðs vegna símaþjónustu ógilt

„Það eru gleðifréttir fyrir okkur að þetta ferli sé að virka,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um ógildingu kærunefndar útboðsmála á framlengingu útboðs Ríkiskaupa á fjarskiptaþjónustu fyrir Landspítalann.

Eignarhald á kirkjum í ólestri

Þinglýsingar á eignarhaldi kirkna og hlunnindum þeirra eru í miklum ólestri. Kirkjuráð hyggst nú freista þess að koma skikki á þessa hluti.

Sjá næstu 50 fréttir