Fleiri fréttir

Gaman að vera skútuskipstjóri

Skemmtilegasta starf í heimi er að vera skipstjóri á skólaskútu sænska sjóhersins segir Mikael Hjarthammar sem þekkir það af eigin raun. Hann segist hafa gripið tækifæri til að fara til Íslands því hingað sé svo óskaplega gaman að koma.

218 ára afmæli Reykjavíkur

Reykjavíkurborg er 218 ára í dag. Þess sáust þó ekki víða merki í höfuðborginni. Hins vegar var boðið upp á tertu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þar var saman kominn dágóður fjöldi borgarbúa, sem nutu bæði góða veðursins, og annars sem garðurinn hefur uppá að bjóða.

Klink og Bank áfram í Hampiðjunni

Allt útlit er fyrir að listamennirnir í Klink og Bank verði með aðstöðu í gamla Hampiðjuhúsinu í að minnsta kosti eitt ár í viðbót. Reynslan af samstarfinu í þessum suðupotti íslenskrar listar hefur verið afar góð. Listamennirnir segja að það eina sem vanti upp á sé að fá fyrir salti í grautinn af og til.

Virkjunin fljót að greiða upp land

Það tæki Kárahnjúkavirkjun aðeins nokkra mánuði að greiða upp virði þess lands sem fer undir virkjunina, segir Landsvirkjun, ef það er tveggja milljarða króna virði eins og rannsóknir þýsks hagfræðidoktors sýna fram á.

Sadr samþykkir frið

Harðlínuklerkurinn Múktada al-Sadr hörfaði í dag ásamt fylgismönnum sínum frá mosku í borginni Najaf og lýsti því yfir að skæruliðasveitir hans ætluðu að leggja niður vopn. Harðir bardagar hafa staðið í helgu borginni Najaf í um hálfan mánuð.

Sagðist verða flokknum erfið

Siv Friðleifsdóttir hótaði því á fundi með þingkonum Framsóknarflokksins í janúar að ef hún missti ráðherrastólinn yrði hún ekki lengur hluti af liðsheildinni í flokknum. Þingflokksfundur hefur verið ákveðinn á morgun.

Mótmæla byggingu blokkar

Andstæðingar íbúðablokka, sem á að reisa á Seltjarnarnesi, saka bæjarstjórnina um sjónhverfingar við kynningu á legu blokkanna. Þeir segja að blokkirnar, sem reisa á á knattspyrnuvelli bæjarins, muni eyðileggja fallegt útsýni.

Taugaveiklun veldur olíuhækkun

Taugaveiklun er talin ein meginástæða síhækkandi olíuverðs. Sérfræðingar segja að verðið á olíufati geti enn hækkað en verðlækkun sé ekki í sjónmáli. Síðdegis var verðið á olíufatinu komið vel yfir 47 dollara og svo virðist sem það sé enn að hækka.

Uppselt á leikinn

Uppselt var á vináttulandsleik Íslands og Ítalíu í kvöld. 22.204 miðar voru seldir og er þetta aðsóknarmet eins og stefnt var að. Á annað hundrað manns sinnir öryggisgæslu á vellinum. Ítalskir fjölmiðlar gera kröfu um stórsigur hjá sínum mönnum en landsliðsþjálfari Íslands segir að strákarnir okkar eigi eftir að standa í Ítölum.

Clintonhjónin til Íslands

Bill og Hillary Clinton koma hingað til lands í heimsókn í næstu viku. Þau koma með þingnefnd sem John McCain fer fyrir. Nefnd bandarískra þungavigtarþingmanna er væntanleg hingað til lands á þriðjudaginn kemur.

Allt gekk upp

Rúmlega 20 þúsund manns sáu Íslendinga vinna stórglæsilegan sigur á landsliði Ítala á Laugardalsvelli. Aðsóknarmetið frá 1968 féll. "Það gekk allt upp," sagði Eggert Magnússon formaður Knattspyrnusambands Íslands. </font /></b />

Mikið magn vopna

Lögreglan í Reykjavík lagði í nótt hald á töluvert magn vopna og skotfæra, sem fundust við húsleit í íbúð í austurhluta Reykjavíkur. Nokkru eftir miðnætti hafði lögreglan afskipti af mönnum sem áður hafa komið við sögu hennar, þar sem þeir voru á ferð í bíl í borginni.

Árni Ragnar Árnason látinn

Árni Ragnar Árnason alþingismaður lést á líknardeild Landspítalans í gær, mánudaginn 16. ágúst, 63 ára að aldri. Árni Ragnar var fyrst kosinn á Alþingi árið 1991 sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi.

Þriggja bíla árekstur

Harður þriggja bíla árekstur varð við gatnamót Kringlumýrabrautar og Miklubrautar á tíunda tímanum í gærkvöldi. Fjórir voru fluttir á slysadeild, þar af þrír úr einum og sama bílnum, en meiðsl þeirra reyndust minniháttar. Hins vegar varð mikið tjón á bílum og þurfti að draga þá af slysstað. Tildrög slyssins eru ókunn.

Flóð á Englandi

Hellirigning olli skyndiflóðum í Cornwall á Englandi síðdegis í gærdag með þeim afleiðingum að bjarga varð tugum manna frá heimilum þeirra, þar sem beljandi straumur umlék þau. Björgunarþyrlur sveimuðu yfir bæjum á svæðinu og björguðu fólki af þökum húsa.

Óeirðir í Venesúela

Óeirðir brutust út í Caracas, höfuðborg Venesúela í gær, eftir að ljóst varð að forseti landsins, Hugo Chaves, bar sigur úr bítum í kosningu um hvort reka ætti hann úr embætti. Svo virðist sem bæði andstæðingar og stuðningsmenn Chaves hafi gengið berserksgang í sumum hverfum borgarinnar í gær

Sprengikúluregn í Bagdad

Uppreisnarmenn skutu sprengikúlum á fjölfarinni götu í Bagdad í morgun með þeim afleiðingum að minnst fjórir létust og 24 særðust. Áður var talið að bílsprengja hefði sprungið í götunni sem er staðsett í miðborginni.

Eldur í heyrúllum

Slökkviliðið á Egilstöðum réð rétt fyrir klukkan sjö, niðurlögum elds sem upp kom í heyrúllum fyrir utan bæinn Hjaltastaði við Hjaltastaðaþinghá nú í morgunsárið. Eldurinn kom upp skammt fyrir utan fjósið á bænum á sjötta tímanum, en náði ekki að húsum við bæinn. 30 heyrúllur brunnu, en eldurinn olli ekki öðru tjóni.

Tvö ný tungl fundust

Tvö ný tungl hafa verið uppgötvuð við plánetuna Satúrnus með hjálp Cassini geimfarsins. Tunglin eru um þrjá og fjóra kílómetra að þvermáli og eru í um 200 þúsund kílómetra fjarlægð frá miðju plánetunnar. Þar með eru þekktir fylgihnettir Satúrnusar orðnir 33. Tunglin eru kölluð S/2004 S1 og S/2004 S2, til bráðabirgða en þeir eru staðsettir milli tveggja tungla, Mimas og Enceladus.

Dagný Jónsdóttir ekki sammála

Ekki eru allar framsóknarkonur sammála aðferðum hóps kvenna sem birtu í dag heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu. Þar skora þær á þingflokk Framsóknarflokksins um að virða lög flokksins um jafnrétti. Þetta gera þær vegna þeirrar umræðu að Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, muni láta af embætti þegar formaður flokksins tekur við forsætisráðuneytinu í september.

Gerðir upptækir vegna ölvunar

Danska dómsmálaráðuneytið vill gera upptæka bíla þeirra sem aka undir áhrifum áfengis. Dönsk yfirvöld hafa miklar áhyggjur af ölvunarakstri, sem er vaxandi vandamál, í landinu. Dómsmálaráðuneytið skipaði nefnd til þess að fjalla um málið og hefur hún nú lagt fram tillögur sem fela í sér stórlega hertar refsingar við ölvunarakstri.

Páfinn miðlar málum í Najaf

Sjítaklerkurinn Múktada al-Sadr hefur þegið boð Jóhannesar Páls páfa um að miðla málum í átökum uppreisnarmanna og Bandaríkjamanna, í hinni helgu borg Najaf. Boð um milligöngu í þessari deilu barst frá Páfagarði, í gær.

Betra að taka skipin frá Svalbarða

Friðrik Arngrímsson, formaður LÍÚ, segir að ástæðulaust hafi verið að halda skipum á Svalbarðasvæðinu í gær og láta nema þau á brott, úr því að íslensk stjórnvöld ákváðu að fara með málið fyrir dómstóla ef samningar næðust ekki.

Skilur ekki aðferðafræðina

Hjálmar Árnason, þinflokksformaður Framsóknarflokksins skilur ekki hvers vegna hópur framsóknarkvenna kemur skilaboðum sínum á framfæri á síðum dagblaða, fremur en að óska eftir fundi með tiltölulega fámennum þingflokki.

Mörg hundruð fá ekki skólavist

Mörg hundruð nemendur fá ekki vist í framhaldsskólum landsins í haust. Aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskólans í Ármúla segir ástandið grafalvarlegt og vill að framhaldsskólar séu opnir jafnt nýnemum sem eldri nemum.

15 saknað í Cornwall

Fimmtán manna er enn saknað eftir skyndiflóð í Cornwall, í Englandi, síðdegis í gær. Hundruð manna tepptust í flóðunum. Flóðin komu öllum að óvörum, eftir miklar úrhellis rigningar. Vatnsflaumurinn var svo mikill og bráður, að björgunarþyrlur flughersins voru kallaðar út, til aðstoðar.

Stórstjörnur í Leifsstöð

Íslenskir ferðalangar í Leifsstöð skildu ekkert í látunum þegar ljósmyndarar stukku að tveimur farþegum í tollinum. Í ljós kom að þar voru á ferð Hollywood-stjörnur sem komnar eru hingað til lands til að leika í nýrri mynd Baltasars Kormáks. 

Menningarnæturkort

Menningarnótt verður haldin í Reykjavík á laugardaginn næstkomandi og hefur dagskráin sjaldan verið viðameiri en nú. Hátíðahöldin hefjast klukkan 11 um morguninn og líkur með flugeldasýningu á Hafnarbakkanum klukkan ellefu um kvöldið.Reykjavíkurmaraþon er haldið á sama degi.

Tvær íslenskar kvikmyndir á hátíð

Tvær íslenskar kvikmyndir taka þátt í kvikmyndahátíðinni í Edinborg sem hefst 18. ágúst og er ein af virtari kvikmyndahátíðum heims. Myndirnar sem um ræðir eru heimildarmyndin, Love is in the Air, í leikstjórn Ragnars Bragasonar og stuttmyndin, Síðasti bærinn, sem Rúnar Rúnarsson leikstýrir.

Átta ákærðir fyrir hryðjuverk

Átta hryðjuverkamenn, sem lögreglan í Bretlandi hefur haft í haldi í tvær vikur, voru í dag ákærðir fyrir að eiga aðild að morðum og öðrum hryðjuverkaglæpum. Níundi maðurinn var ákærður fyrir ólöglega vopnaeign. Hins vegar var fjórum mönnum sleppt vegna málsins.

Þúsund íbúðir á Vesturbakkann

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur fallist á tilboð verktaka um að byggja 1000 nýjar íbúðir á Vesturbakkanum. Málinu hafði verið slegið á frest til þess að styggja ekki Bandaríkjamenn.

Stórfyrirtæki loka vegna hótana

Nokkur stórfyrirtæki í Nepal hafa hætt starfsemi vegna hótana maóískra uppreisnarmanna. Uppreisnarmennirnir nota þess leið til að þrýsta á stjórnvöld að koma á úrbótum varðandi meint arðrán stórfyrirtækja á starfsfólki.

Þrír á spítala eftir árekstur

Harður árekstur varð á Akureyri fyrr í dag, þegar flutningabíll á leið vestur eftir Strandgötu lenti á fólksbíl, sem var á leið norður eftir Glerárgötu. Þrír voru fluttir á slysadeild, en meiðsl þeirra reyndust ekki alvarleg. </font /></font />

Ítalirnir mættir

Landslið Ítalíu er komið til Íslands en það leikur við íslenska liðið á Laugardalsvelli annað kvöld.

Skútur sænska hersins í höfninni

Tvær skútur sænska hersins liggja um þessar mundir í Reykjavíkurhöfn. Skúturnar eru æfingaskip sænska herflotans og eru það nýnemar flotans sem sigla skipunum og eru slíkar heimsóknir liður í hefðbundnum æfingum í siglingatækni.

19 manns hafa látist vegna Charley

Nítján manns hafa þegar verið úrskurðaðir látnir af völdum fellibylsins Charley. Yfir 2000 manns hafast við í tímabundnum skýlum, á meðan reynt er að finna handa þeim húsnæði. Yfir 750 þúsund heimili og fyrirtæki eru án rafmagns á svæðinu og 150 þúsund manns eru án símasambands.

Taka undir áskorun í auglýsingu

Framkvæmdastjórn Landssambands Framsóknarkvenna tekur undir áskorun 40 kvenna sem auglýstu í Fréttablaðinu í morgun og kröfðust þess að konum í ríkisstjórn yrði ekki fækkað þegar ráðherralið Framsóknar breytist þann 15. september næstkomandi.

Hjartalyf við HIV

Hópur lækna á Spáni segir ýmislegt benda til þess að lyf sem notuð eru til þess að meðhöndla hjartasjúkdóma geti hjálpað til við að halda niðri HIV veirunni. Læknarnir gáfu sex HIV smituðum einstaklingum tiltekið hjartalyf í einn mánuð og í ljós kom að styrkleiki veirunnar minnkaði til muna á meðan lyfið var tekið.

Sala dagvöru eykst

Sala á dagvöru var 6,9 prósentustigum hærri á föstu verðlagi í júlí í ár en í sama mánuði árið 2003 samkvæmt nýrri smásöluvísitölu Samtaka Verslunar og þjónustu og IMG-Gallups. Smásala áfengis jókst um heil 17% og sala lyfjaverslana um 6,2% í júlímánuði á milli ára.

Nýr forstjóri LSH

Jóhannes M. Gunnarsson, skurðlæknir hefur verið settur forstjóri Landsspítala Háskólasjúkrahúss frá 1. september, en þá hefst 8 mánaða námsleyfi Magnúsar Péturssonar, forstjóra LSH.

Kafnaði á poppkorni

Þriggja ára drengur lést eftir að hafa borðað poppkorn í kvikmyndahúsi í New York í Bandaríkjunum.

Fótboltakappar í verkfall

Danskir knattspyrnumenn hófu í gær verkfall og er það í fyrsta sinn í sögunni sem slíkt gerist í Danmörku.

Ákærðir fyrir hryðjuverk

Átta grunaðir hryðjuverkamenn hafa verið ákærðir fyrir samsæri um morð og önnur hryðjuverk. Tveir þeirra voru ákærðir fyrir að hafa undir höndum njósnagögn um fjármálastofnanir í New York, Washington og New Jersey í Bandaríkjunum. Níundi maðurinn var handtekinn fyrir ólöglega vopnaeign.

Hóta gagnárásum á kjarnorkuver

Íranar hóta því að ráðast á kjarnorkuver Ísraela í Negeveyðimörkinni ef Ísraelar ráðast á kjarnorkuver í Íran.

Aftur á leið í ferðalag

Þrátt fyrir að Jóhannes Páll páfi annar hafi augljóslega verið mjög hrumur á ferðalagi sínu til Lourdes um síðustu helgi kemur það ekki í veg fyrir að næsta ferðalag hans hafi þegar verið skipulagt.

Sjá næstu 50 fréttir