Taugaveiklun veldur olíuhækkun 18. ágúst 2004 00:01
Taugaveiklun er talin ein meginástæða síhækkandi olíuverðs. Sérfræðingar segja að verðið á olíufati geti enn hækkað en verðlækkun sé ekki í sjónmáli. Síðdegis var verðið á olíufatinu komið vel yfir 47 dollara og svo virðist sem það sé enn að hækka. Hátt eldsneytisverð hefur enn engin áhrif haft á neyslu og þar með efnahagslífið í Bandaríkjunum og er það talin ástæða hækkunarinnar í gær. Talið var að hátt eldsneytisverð leiddi til minni neyslu, en sem svo virðist ekki vera telja sérfræðingar að enn sé svigrúm til hækkunar. Það sem af er þessu ári hefur eldsneytisþörf Bandaríkjanna aukist um þrjú og hálft prósent. Enn ein ástæða hækkana á þessu ári er stóraukin þörf í Kína. Hún jókst um 21 prósent á fyrri helmingi þessa árs, og olíuinnflutningur jókst um 40 prósent. Ekki eru þó allir sérfræðingar sammála um að þessir þættir séu ráðandi, og telja frekar að taugaveiklun sé ástæða hás olíuverðs. Meginástæða hækkana í dag er til að mynda ótti við skemmdarverk á olíuleiðslum í Írak. Meðal þess sem margir óttast, er að ekki sé hægt að auka framleiðslu enn frekar og að framleiðslan dugi von bráðar ekki til. Vandinn virðist einkum vera sá, að ekki hefur verið fjárfest í olíuvinnslustöðvum í hart nær þrjá áratugi, þó að víða sé hægt að bora eftir olíu. Aðrir hafa áhyggjur af helstu olíuframleiðsluríkjum heims, sem teljast velflest fremur óstöðug. Sádi-Arabía, Írak, Rússland, Venesúela og Nígería eru í þessum hópi. Batnandi efnahagsástand á heimsvísu veldur sífellt meiri eftirspurn eftir eldsneyti, og því telja margir sérfræðingar að verðið á olíufatinu gæti farið yfir 50 dollara. Það sem af er ári hefur olíuverð hækkað um 45 prósent, og ekkert bendir til þess að það lækki í bráð.
Erlent Fréttir Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira