Fleiri fréttir

Flóðið ruddi öllu á undan sér

Gríðarleg rigning hleypti af stað flóðum sem settu allt á annan endann þegar þau ruddust um götur enska bæjarins Boscastle í Cornwall. Fimmtán manns var saknað í gær og hafði ekkert heyrst til þess. Lögregla hélt þó í vonina um að fólkið hefði farið í ferðalag án þess að láta nokkurn vita.

Áhorfandi stakk sér í laugina

Þrátt fyrir að aldrei hafi verið lagt meira fé í öryggisgæslu á ólympíuleikum en nú tókst kanadískum áhorfanda að stinga sér í sundlaugina þar sem keppni fer fram í Aþenu.

36 milljónir til Íraks

Íslensk stjórnvöld ætla að leggja jafnvirði 36 milljóna íslenskra króna í fjölþjóðlegan sjóð sem fjármagnar verkefni vegna enduruppbyggingar í Írak.

Hýsa mikið magn ólöglegra skráa

Full ástæða er til að telja að hérlend fyrirtæki og stofnanir hýsi mikið magn ólöglegra kvikmynda- og tónlistarskráa, að sögn Hallgríms Kristinssonar, framkvæmdastjóra Samtaka myndrétthafa á Íslandi.

Scheving hlýtur lýðheilsuverðlaun

Magnús Scheving hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár. Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra afhenti verðlaunin nú síðdegis á Egilsstöðum á fundi heilbrigðis-og félagsmálaráðherra Norðurlanda.

Hver að verða síðastur í berjamó

Mikið er um aðalbláber, en lítið um bláber og krækiber. Mikill þurrkur kann að spila inn í sprettu, sem þó varð snemma mikil í ár. Birkifeti herjar á berjalyng og skilur eftir sig heilu breiðurnar af skorpnu lyngi.

Framkvæmdaleyfi tekið fyrir

Framkvæmdaleyfi til handa Landsvirkjun vegna lagningar Fljótsdalslína 3 og 4 verður tekið fyrir á fundi umhverfisráðs Austur-Héraðs á Egilsstöðum í dag. Kallað var eftir viðbótarupplýsingum frá Landsvirkjun vegna máls bóndans á Eyrarteigi í Skriðdal sem telur íbúðarhús sitt verðlaust vegna nálægðar við línustæðið.

Vindmylla sem stingur í augu

Tvítug vindmylla grotnar niður í Grímsey. Sumum er hún þyrnir í augum, meðan aðrir líta á hana sem minnisvarða. Myllan er gömul tilraun Raunvísindastofnunar til að hita vatn með vindorku. Óljóst virðist hver ber ábyrgð á mannvirkinu.

Fótbrotinn flóðhestur

Nashyrningskálfur, í dýragarði í Berlín, er á batavegi eftir að hafa fótbrotnað þegar móðir hans steig ofan á hann. Það getur verið ókostur að eiga þungavigtarmömmu. Kálfurinn Patnas var aðeins tveggja daga gamall þegar mamman steig óvart ofan á hann, og hann hlaut opið fótbrot.

Gamla landssímahúsið rifið

Stórvirkar vinnuvélar jafna nú gamla Landssímahúsið, við jörðu. Húsið sem var byggt árið 1942 og stendur við Sölvhólsgötu 11 í Reykjavík, hýsti Landssímann lengst af. Síðustu ár hafa Þjóðleikhúsið, Listaháskólinn og Lögreglan haft það til afnota.

Njála á tölvutæku formi

Nýrri útgáfu Brennu Njálssögu er ætlað að glæða áhuga ungs fólks á þessari vinsælustu sögu Íslendingasagnanna. Í henni sameinast bók, bíó og kennsluforrit. Þessari nýju útgáfu Brennu Njálssögu fylgir geisladiskur fyrir tölvur.

Fischer í það heilaga

Japönsk heitkona Bobbys Fischers segir að þau hafi haldið sambandi sínu leyndu, jafnvel fyrir nánustu vinum, þartil hann var handtekinn í Japan, í síðasta mánuði. Það kom mörgum á óvart þegar tilkynnt var að Bobby Fischer myndi ganga að eiga Míókó Wataí, sem er formaður japanska skáksambandsins

Útför fyrrverandi lögreglustjóra

Útför Sigurjóns Sigurðssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, var gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Lögreglumenn stóðu heiðursvörð og fóru fyrir líkfylgd. Sigurjón var lögreglustjóri í Reykjavík í 38 ár, frá 1947 til ársloka 1985.

Þjóðverjar vilja halda í herinn

Þjóðverjum er mjög brugðið vegna þeirrar ákvörðunar Bandaríkjamanna, að fækka stórlega í herliði sínu í Þýskalandi. Þeir sjá fram á að tugþúsundir manna muni missa vinnu sína. Það eru um 70 þúsund bandarískir hermenn í Þýskalandi, og langstærstur hluti þeirra verður fluttur á brott

Hagsmunir Íslendinga miklir

Sjávarútvegsráðherra segir hagsmuni Íslendinga vegna síldveiða á Svalbarðasvæðinu skipta milljörðum. Ríkisstjórnin samþykkti í dag að hefja undirbúning að því að vísa deilunni við Norðmenn til Alþjóðadómstólsins í Haag.

Kárahnjúkasvæðið milljarða virði

Landið sem fer undir Kárahnjúkavirkjun er að minnsta kosti tveggja milljarða króna virði. Þetta er niðurstaða þýsks hagfræðidoktors sem rannsakað hefur málið. Náttúruverndarsamtök hafa dregið í efa arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og bent á að tekjur mætti hafa af ferðaþjónustu á þeim fallegu stöðum sem hverfa undir vatn

Vill ekki tjá sig um uppsagnir

Eimskipafélagið hefur eignast Skipafélag Færeyja. Viðskiptin eru metin á rúma tvo milljarða króna. Forstjóri Eimskipa segir mikil samlegðaráhrif og hagræðingu fylgja samruna fyrirtækjanna, en vill ekki tjá sig um uppsagnir á næstunni.

Mennirnir aldrei komið við sögu

Lögreglan í Reykjavík lagði hald á mikið af vopnum, skotfærum og bareflum, við húsleit í íbúð í austurhluta Reykjavíkur í nótt. Þrír menn á þrítugsaldri eru í haldi lögreglu vegna málsins, en athygli vekur að enginn þeirra hefur áður komið við sögu lögreglu.

Breyttar áherslur í Evrópumálum

Halldór Ásgrímsson, verðandi forsætisráðherra, segir að aðild Íslands að Evrópusambandinu verði áfram skoðuð með opnum huga. Hann segir að forsætisráðuneytið hafi ávallt frumkvæði í stórum málum. Áherslumunur formanna Sjálfstæðistæðisflokks og Framsóknarflokks í afstöðu til aðildar Íslands að Evrópusambandinu hefur ekki farið leynt.

Meirihluti vill að Siv hætti

Mikill meirihluti þingflokks Framsóknarflokksins er þess fylgjandi að Siv Friðleifsdóttir verði látin taka pokann sinn þegar Framsókn lætur ráðherrastól umhverfismála af hendi til Sjálfstæðisflokksins. Hópur framsóknarkvenna berst fyrir stöðu Sivjar og formaður landssamtaka Framsóknarkvenna segir mikla ólgu innan flokksins.

Vilja semja við umdeildan verktaka

"Ég veit ekki til þess að Impregilo eða þessir verktakar hafi tilskyld leyfi til að reka sjúkrabifreiðar," segir Vernharð Guðnason, framkvæmdastjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo á nú í viðræðum við íslenskt verktakafyrirtæki um að taka að sér allan akstur og eftirlit með sjúkrabifreiðum á Kárahnjúkum.

Hægir verulega á útgjaldaaukningu

Rekstrarkostnaður embættis Ríkislögreglustjóra var rúmar 710 milljónir í fyrra og jókst um 19 milljónir frá árinu áður. Verulega dró úr útgjaldaaukningu embættisins eftir samfellda útþenslu frá árinu 1998.

Skiptimynt í fíkniefnaviðskiptum

Lögreglan í Hafnarfirði hugðist fara fram á húsleit í sama húsi og lögreglan í Reykjavík fann fjölda vopna og skotfæra í fyrrinótt. Vopnin voru þýfi sem notuð höfðu verið í fíkniefnaviðskiptum. </font /></b />

Sýslumaður útilokar ekki ábyrgð

Rúnar Guðjónsson, sýslumaður í Reykjavík, segist ekki útiloka að á embættið geti fallið verulegar ábyrgðir vegna veðsetninga á óðalsjörðinni Brautarholti á Kjalarnesi. Hann stöðvaði uppboð meðan málið er kannað.

Stefnir í harða milliríkjadeilu

"Það var einróma fallist á tillögu utanríkisráðherra að undirbúa málsókn á hendur Norðmönnum," segir Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra eftir stjórnarráðsfund í gær. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru einhuga um að grípa til aðgerða gegn Norðmönnum vegna Svalbarða enda þykir lagalegur grundvöllur þeirra til svæðisins afar hæpinn.

Vantaði alla kvenráðherra

"Það er algjör tilviljun að hér vantaði nokkra ráðherra í dag," sagði Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og starfandi forsætisráðherra, eftir ríkisstjórnarfund í gær. Aðeins sjö ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru þar saman komnir og í hópinn vantaði alla kvenráðherra þjóðarinnar.

Samningar um vatnsvernd

Samningaviðræður milli fulltrúa ríkisins og eigenda hluta hverasvæðisins í Haukadal snúast fyrst og fremst um að tryggja vatnsvernd fyrir Geysi og raunar á svæðinu öllu.

Bjóða al-Sadr sakaruppgjöf

Átta manna sendinefnd frá þjóðarráðstefnunni í Írak mætti til borgarinnar Najaf í gær og lagði sáttartillögu fyrir sjítaklerkinn Moqtada al-Sadr. </font />

Farþegamet hjá Flugleiðum

Flugleiðir hafa aldrei flutt jafn marga farþega í einum mánuði og í nýliðnum júlí. Farþegar Flugleiða voru 183 þúsund í mánuðinum.

Kögun með kjölfestu í Opnum kerfum

Hugbúnaðarfyrirtækið Kögun hefur keypt ríflega þriðjungs hlut í Opnum kerfum Group. Seljendur eru Straumur fjárfestingarbanki, sem átti 27 prósent í Opnum kerfum, og Lífeyrissjóður sjómanna. Straumur er stærsti eigandi Kögunar. Gengið í viðskiptunum var 26,5.

Atorka og Afl sameinast

Fjárfestingarfélagið Atorka tryggði sér í gær yfir helming atkvæða í Afli fjárfestingarfélagi. Sterk eignatengsl hafa verið milli félaganna og segir Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri Atorku, að sameiningin hafi verið rökrétt miðað við þróun mála.

Yukos fær engan frest

Dómstólar í Rússlandi höfnuðu í gær kröfu olíufyrirtækisins Yukos um að innheimtu á skattskuldum fyrirtækisins yrði frestað á meðan engin niðurstaða væri í ýmsum dómsmálum tengdum málaferlunum.

Nefndin hefur frjálsar hendur

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að nefnd sem skoðar umhverfi íslensks viðskiptalífs hafi frjálsar hendur í starfi sínu og henni séu ekki lagðar neinar línur.

Latibær fær lýðheilsuverðlaun

Magnús Scheving hlaut í gær Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2004 og afhenti Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra honum verðlaunin við hátíðlega athöfn á Egilsstöðum.

Skaut tvo bankaræningja

Lögreglan í norska bænum Jessheim skaut tvo bankaræningja í nótt þegar þeir gerðu tilraun til að ræna DNB-Nor bankann í bænum. Annar ræninginn fékk skot í bæði lærin og er illa særður, en hinn fékk skot í hönd og í bakið og er minna meiddur.

Konan heil á húfi

Kona sem lögreglan á Akureyri lýsti eftir um tíuleytið í gærkvöldi er komin fram. Hún reyndist vera heil á húfi. Að sögn lögreglunnar á Akureyri gaf konan sig fram stuttu eftir að lýst var eftir henni.

Kosningar hafa áhrif á olíuverð

Í Venesúela voru kjörstaðir opnir lengur en til stóð í gær, en greidd voru atkvæði um það, hvort reka ætti forseta landsins úr embætti. Mjög mikil þátttaka var í kosningunni og greina fréttaritarar frá allt að tveggja kílómetra löngum biðröðum við suma kjörstaði.

Hermönnum fækkað í Evrópu

Sjötíu þúsund bandarískir hermenn verða kallaðir heim frá Evrópu á næstunni, til að taka við nýjum verkefnum í stríðinu gegn hryðjuverkum. Bush Bandaríkjaforseti mun að sögn fréttastofu Reuters greina frá þessu í dag.

Björn ræddi fjölmiðla á Hólahátíð

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, gerði fjölmiðla að umtalsefni sínu á Hólahátíð í gær, þar sem hann hélt ræðu í fjarveru Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Björn sagði fjölmiðla draga stjórnmálamenn í dilka eftir því hvað þjónaði hagsmunum þeirra.

16 létust í fellibyl á Flórída

Í það minnsta sextán fórust þegar fellibylurinn Charley reið yfir Flórída-skaga um helgina. Fjöldi fólks hefst við úti við illan leik, enda hitinn vel yfir þrjátíu gráður og rakinn mikill. Talið er að kostnaður vegna skemmda nemi allt að ellefu milljörðum dollara, eða sem nemur 776 milljörðum króna.

Fjölmiðlum skipað frá Najaf

Fjölmiðlamönnum hefur verið fyrirskipað að fara frá hinni heilögu borg Najaf, þar sem bardagamenn undir stjórn Shíta klerksins Moktata al-Sadr hafa átt í bardögum við heri Bandaríkjamanna og Íraka undanfarið.

Segja úrslitin fölsuð

Stjórnarandstaðan í Venesúela segir úrslit forsetakosninga vera fölsuð, en greidd voru atkvæði um það, hvort reka ætti forseta landsins úr embætti. Mjög mikil þátttaka var í kosningunni og greina fréttaritarar frá allt að tveggja kílómetra löngum biðröðum við suma kjörstaði.

Náttúrufræðibrautin vinsælli

"Náttúrufræðibrautin er vinsælli í haust en hún hefur verið undanfarið," segir Stefán Andrésson, áfangastjóri í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti. Rúmlega tvö hundruð nýnemar hefja í haust nám við skólann.

Geðrækt hlýtur viðurkenningu

Verkefnið Geðrækt hlaut 11. ágúst síðastliðinn sérstaka útnefningu Alþjóðaheilbrigðis-málastofnunarinnar (WHO) í Genf og Alþjóðageðheilbrigðissamtakanna (WFMH) sem fyrirmyndar-verkefni á sviði geðræktar.

Fisher hyggst kvænast

Bobby Fischer hefur ákveðið að kvænast japanskri vinkonu sinni. Ekki er ljóst hvort hann fær til þess leyfi, meðan hann situr í fangelsi. Bobby Ficher var handtekinn á Narita flugvelli í Tokyo, í síðasta mánuði, og hefur setið í fangelsi síðan

Sjá næstu 50 fréttir