Innlent

Uppselt á leikinn

Uppselt var á vináttulandsleik Íslands og Ítalíu í kvöld. 22.204 miðar voru seldir og er þetta aðsóknarmet eins og stefnt var að. Á annað hundrað manns sinnir öryggisgæslu á vellinum. Ítalskir fjölmiðlar gera kröfu um stórsigur hjá sínum mönnum en landsliðsþjálfari Íslands segir að strákarnir okkar eigi eftir að standa í Ítölum. Það var allt á fullu við undirbúning á Laugardalsvelli þegar fréttastofu bar að garði í dag. Sláttuvélin fór síðustu ferðirnar yfir grasið, svið var sett upp fyrir tónleikana sem kvöldið hefst með. Þá var brettum raðað við enda vallarins til að búa til fleiri stæði, enda var búist við aðsóknarmeti sem og varð. Gamla metið er rúmlega 18 þúsund manns, þegar Valur lék við Benfica fyrir 36 árum. 100 félagar úr hjálparsveitum verða við gæslu á vellinum og 20 lögreglumenn. Auk þess verða lögreglumenn við umferðarstjórn enda má búast við miklum umferðartöfum og var fólk hvatt til að nota almenningssamgöngur eða ganga. Mjög strangar öryggisreglur gilda hjá Knattspyrnusambandi Evrópu og FIFA um fjölda áhorfenda. Almennt er einungis leyft að miðar séu seldir í sæti, en ekki stæði. Laugardalsvöllur rúmar um 7 þúsund manns í sæti og þar sem um vináttulandsleik er að ræða, heyrir málið undir FIFA. Talsmaður þeirra sagði fréttastofunni að engar reglur FIFA banni að bæði sé selt í sæti og stæði á vináttuleikjum, heldur sé það ábyrgð lögreglu og slökkviliðs að leyfa slíkt. Gríðarleg pressa er í ítölskum fjölmiðlum á ítalska liðið að hreinlega valta yfir það íslenska á leiknum í kvöld. Þjálfari íslenska liðsins, Ásgeir Sigurvinsson, segist þó hvergi banginn. Á góðum degi eigi Íslendingarnir að geta staðið í því ítalska.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×