Enski boltinn

Di María leikmaður mánaðarins hjá Manchester United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Di María fagnar frábæru marki sínu gegn Leicester City.
Di María fagnar frábæru marki sínu gegn Leicester City. Vísir/Getty
Ángel di María hefur farið vel af stað með Manchester United síðan hann var keyptur fyrir metfé frá Evrópumeisturum Real Madrid. Argentínumaðurinn er kominn með tvö mörk í fjórum leikjum og hefur smollið vel inn í lið United.

Stuðningsmenn United virðist vera ánægðir með nýja leikmanninn, en di María var valinn leikmaður september-mánaðar af lesendum heimasíðu félagsins.

Argentínumaðurinn hlaut yfirburðakosningu, eða 68% allra atkvæða. Annar nýr leikmaður, Ander Herrera, kom næstur með 23% og Rafael varð þriðji með 9%.

United tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Leikurinn hefst klukkan 11:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.


Tengdar fréttir

Forseti Real: Rétt að selja Di Maria

Cristiano Ronaldo, stórstjarna Real Madrid, var ekki sáttur við að félagið skildi selja þá Angel di Maria og Xabi Alonso frá félaginu.

Manchester United borgar 59,7 milljónir punda fyrir Di Maria

Manchester United gekk í kvöld á kaupunum á argentínska kantmanninum Angel Di Maria en United setur nýtt breskt met með því að borga 59,7 milljónir punda fyrir hann. Þetta kemur fram á enskum fréttamiðlum í kvöld.

Di Maria: Ég er kominn til að hjálpa til

Angel Di Maria hélt sinn fyrsta blaðamannafund sem leikmaður Manchester United í dag en United gerði hann að dýrasta leikmanni Bretlandseyja þegar félagið keypti hann á 59,7 milljónir punda frá Real Madrid í vikunni.

United eyðir til að vinna

Wayne Rooney fyrirliði Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta segir liðið eyða peningum til að vinna titla og ekkert annað komi til greina.

Di Maria ræddi við Ronaldo um mikilvægi sjöunnar hjá United

Angel Di Maria stóð sig vel í dag á fyrsta blaðamannafundinum sem leikmaður Manchester United og hollenski knattspyrnustjórinn Louis van Gaal var augljóslega ánægður með svörin hjá nýjasta og dýrasta leikmanni félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×