Pakistan

49 börn drukknuðu í skólaferð
51 manns létu lífið er bát hvolfdi á Tanda Dam-vatninu nærri borginni Kohat í Pakistan, þar af 49 börn. Börnin voru ásamt kennurum og skipstjóra í skólaferð á vatninu.

Staðfest að 87 hafi látist í sprengingunni í Pakistan
Yfirvöld í Pakistan hafa nú staðfest að 87 hafi látist í árás sjálfsvígssprengjumanns í mosku í pakistanska héraðinu Peshawar í gær.

Fjöldi lögregluþjóna dó í sprengjuárás í mosku
Minnst 44 dóu og 150 særðust þegar maður sprengdi sig í loft upp í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Flestir hinna látnu eru lögregluþjónar, þar sem moskan er við lögreglustöð.

Þak mosku hrundi er maður sprengdi sig í loft upp
Minnst 27 eru látnir og 147 særðir eftir sprengjuárás í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Maður er sagður hafa sprengt sig í loft upp á bænartíma þegar moskan var full af fólki.

Tíu börn drukknuðu í skólaferðalagi
Tvö hræðileg slys urðu í Pakistan í dag. Annars vegar mannskætt bílslys og hins vegar þegar bátur sökk. Að minnsta kosti fimmtíu hafa látið lífið í slysunum tveim.

Rannsókn stendur yfir vegna úrans sem fannst á Heathrow
Hryðjuverkalögregla Lundúna hefur hafið rannsókn í kjölfar þess að úran fannst í pakka á Heathrow flugvelli í desember. Scotland Yard staðfesti fregnirnar í gærkvöldi.

Imran Khan særður eftir skotárás
Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, særðist eftir að árásarmaður hóf skothríð á mótmælum í Wazirabad í dag. Aðrir stjórnmálamenn úr flokki Khans eru sagðir hafa særst í árásinni og einn þeirra er dáinn.

Beinbrunasóttarfaraldur bætist ofan á vandræði Pakistana
Íbúar Pakistan hafa þurft að þola mikil flóð í kjölfar úrhellisrigningar sem hefur verið þar síðustu mánuði. Nú er kominn upp beinbrunasóttarfaraldur (e. Dengue fever) í stærstu borg landsins.

Veggir einnar elstu borgar Pakistan féllu
Veggir hinnar fornu borgar Moenjodaro hafa orðið fyrir miklum skemmdum vegna úrhellisrigningar og flóða sem nú eru í gangi í Pakistan. Borgin er á Heimsminjaskrá UNESCO og var byggð fyrir fimm þúsund árum síðan.

Hætta á að vatn úr stærsta stöðuvatni Pakistan flæði í borgir
Yfirvöld í Pakistan gera nú það sem þau geta til þess að vatn úr Manchar-stöðuvatninu flæði ekki inn í nærliggjandi borgir og bæi. Rúmlega þrettán hundruð manns hafa látist vegna flóða þar í landi síðan um miðjan júní.

Á sjötta tug látin í dag, þar af 25 börn
Ekkert lát er á hamfaraflóðum í Pakistan. 57 hafa látist í dag, þar af 25 börn. Óttast er að mikill fjöldi barna muni látast í hamförunum.

„Monsúnrigning á sterum“
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir Pakistan standa frammi fyrir „monsúnrigningu á sterum“. Tugir milljóna hafa orðið fyrir barðinu á miklum flóðum þar og er einn þriðji landsins sagður undir vatni, þó rigningarnar hafi hætt fyrir þremur dögum.

Segir vatn þekja þriðjung landsins
Loftslagsmálaráðherra Pakistan segir vatn þekja þriðjung landsins vegna mikillar rigningar og fjölda flóða þar í landi síðustu vikur. Síðasta sólarhring hafa 75 íbúar landsins látið lífið vegna flóðanna.

Pakistanar kalla eftir aðstoð vegna gífurlegra flóða
Ráðamenn í Pakistan segja ríkið nauðsynlega þurfa aðstoð til að bregðast við miklum flóðum þar í landi. Minnst þúsund eru látnir vegna flóðanna og eru þau sögð hafa valdið gífurlegum skaða víðsvegar um landið.

Neyðarástandi lýst yfir víða í Pakistan
Hamfaraflóð í Pakistan hafa nú dregið tæplega þúsund manns til dauða síðan í júní. Flóðin eru þau mestu í seinni tíð og þykja sambærileg gríðarlegum flóðum sem urðu í landinu 2010.

Khan ákærður á grundvelli hryðjuverkalaga
Lögregla í Pakistan hefur ákært fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Imran Khan, á grundvelli hryðjuverkalaga.

Vilborg fékk lungnabólgu í sjö þúsund metra hæð
Pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir og fjallagarpurinn Sigurður Bjarni Sveinsson hafa dvalið í Pakistan mest allt sumarið til að freista þess að komast á tind fjallsins Gasherbrum II sem er þrettánda hæsta fjall heims.

Fleiri íþróttamenn hverfa sporlaust í Bretlandi
Alls hefur nú verið lýst eftir 12 íþróttamönnum sem kepptu á bresku Samveldisleikunum í Birmingham en enginn virðist vita hvar þessir íþróttamenn eru niðurkomnir.

Rúmlega fimm hundruð manns látist í skyndiflóðum í Pakistan
Alls hafa 549 manns látið lífið í Pakistan síðasta mánuðinn vegna skyndiflóða. Yfir 42 þúsund heimili eru eyðilögð vegna þeirra.

Reyndu að færa lík Johns Snorra í tvær klukkustundir
Jarðneskar leifar Johns Snorra Sigurjónssonar liggja á einum erfiðasta staðnum á fjallinu K2 og illa hefur gengið að færa þær af gönguleiðinni. Nýfallinn snjór skapar snjóflóðahættu á umræddu svæði og hamlar aðgerðum.