Vest­manna­eyjar

Vest­manna­eyjar

Mannfjöldi: 4.470 (2025). Flatarmál: 16 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Það geti ekki hvaða skip sem er dýp­kað í mynni Land­eyja­hafnar

Innviðaráðuneytið kynnti í vikunni viðbrögð við því sem það kallar alvarlega stöðu í samgöngumálum Vestmannaeyja síðustu vikur. Síðast sigldi Herjólfur til Landeyjahafnar þann 5. apríl en Vegagerðin hefur undanfarið staðið að dýpkun í höfninni við óvenju erfiðar aðstæður. Veður hefur gert þeim erfitt fyrir en bilun varð í dýpkunarskipinu Álfsnesi sem sinnt hefur dýpkun í höfninni.

Innlent
Fréttamynd

Langhæsti styrkurinn fer til Eyja

Styrkur sem nemur 107 milljónum króna fer til Vestmannaeyjabæjar í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar sem ber heitið Sjónarhorn Flakkarans. Það er eitt þeirra átján verkefna sem fékk styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Heildarfjárhæð styrkjanna nemur um 490 milljónum króna og dreifast þeir víðs vegar um landið.

Innlent
Fréttamynd

Urðu eftir í Flat­ey á meðan Baldur sigldi suður

Bæjarstjóri Vesturbyggðar er ósáttur við samráðsleysi þegar tekin er ákvörðun um að sigla ferjunni Baldri til Vestmannaeyja þar sem henni er ætlað að leysa af Herjólf. Tveir starfsmenn á vegum Orkubús Vestfjarða eru strandaglópar í Flatey vegna brotthvarfs Baldurs.

Innlent
Fréttamynd

Baldur til Eyja

Ferjan Baldur mun sigla til og frá Vestmannaeyjum tímabundið vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður. Gert er ráð fyrir fyrstu siglingunni til Eyja á föstudag en ferðaáætlun hefur ekki verið birt.

Innlent
Fréttamynd

„Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“

Innviðaráðherra segir að reynt hafi verið að fá belgískt fyrirtæki, sem tekur við dýpkun Landeyjahafnar frá og með haustinu, fyrr að verkinu. Hann segist þokkalega ánægður með þær aðgerðir sem ráðuneytið kynnti í gær til að bæta samgöngur til Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

„Ég veit ekkert hve­nær þeir komast aftur heim“

Íbúi í Vestmannaeyjum sem hefur skrifað pistil daglega sautján daga í röð til að mótmæla ófremdarástandi í samgöngum við Eyjar segir Vegagerðina bregðast Eyjamönnum. Skipuleggjandi Puffin stingur upp á sjö tíma siglingu með Herjólfi fyrir ráðamenn til að þeir átti sig á stöðunni.

Innlent
Fréttamynd

Boða fjölgun flug­ferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður

Stjórnvöld hyggjast framlengja samning um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur og verður flugferðum tímabundið fjölgað í tvær á dag. Þetta er hluti af aðgerðum til að bregðast við erfiðri stöðu í samgöngumálum Eyjamanna. Fyrirtæki felldi í dag niður bátsferðir sem fyrirhugaðar voru næstu helgi.

Innlent
Fréttamynd

„Botninum hefur verið náð“

Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gær vegna ólgusjós og vélarbilana. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ófremdarástand ríkja í samgöngumálum í Eyjum. Botninum hafi einfaldlega verið náð. 

Innlent
Fréttamynd

Þjóðþekktir tón­listar­menn koma fram í heima­húsum

Síðasta föstudag í aprílmánuði ár hvert hefst tónlistarhátíðin Hljómey í Vestmannaeyjum. Þá stíga landsþekktir listamenn á stokk og spila fyrir gesti hátíðarinnar í heimahúsum. Hún er nú haldin í fjórða skipti og meðal þeirra sem koma fram eru Valdimar, Jakob Frímann og Bríet.

Tónlist
Fréttamynd

Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu

Minnisvarði um eldgosið í Heimaey verður vígður þann 12. maí en á athöfninni munu Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra og listamaðurinn Ólafur Elíasson vera meðal ræðumanna. Eyjamenn töldu sumir hverjir að verkið væri röskun á svæðinu en eftir kynningu sem haldin var á íbúafundi virðist sem fólk hafi róast. Þar kom fram að hægt væri að láta verkið hverfa sporlaust.

Innlent
Fréttamynd

„Selfies“ eru ekki hags­muna­gæsla

Meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur árum saman lýst yfir eigin ágæti í hagsmunagæslu. Af einhverri ástæðu hefur minnihlutinn tekið undir. Raunveruleikinn segir aðra sögu. Þá vaknar einföld spurning: Hvaða hagsmuni er í raun verið að verja?

Skoðun
Fréttamynd

Mótorinn í Herjólfi þarf til út­landa

Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af.

Innlent
Fréttamynd

Skjálfti vegna Írisar innan Sjálf­stæðis­flokksins í Eyjum

Mikill skjálfti er innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum og snýr ágreiningurinn um bæjarstjóraefnið Írisi Róbertsdóttur. Hitafundur fulltrúaráðs var haldinn í gærkvöldi þar sem menn töluðu út og víst er að ekki er gróið um heilt vegna klofningsins sem varð 2018 þegar H-listinn var myndaður sem klofningur úr Sjálfstæðisflokki.

Innlent
Fréttamynd

Gæti sektað flug­stjóra um allt að átta milljónir króna

Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu.

Innlent
Fréttamynd

„Við lítum þetta mál mjög al­var­legum augum“

Forstjóri Icelandair segir að verklag og reglugerðir verði áréttaðar við starfsfólk flugfélagsins eftir að reyndur flugstjóri ákvað án samráðs við flugfélagið að fljúga í lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn. Málið er á borði lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er erfiður mánu­dagur“

Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni.

Innlent
Fréttamynd

Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur

Samgöngustofa hefur hafið rannsókn á lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag. Ráðamenn Icelandair líta atvikið mjög alvarlegum augum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum gerir hins vegar lítið úr því og fullyrt er að farþegar um borð hafi fagnað stórkostlegri upplifun.

Innlent
Fréttamynd

Flug­stjórinn þögull sem gröfin

Ólafur Bragason flugstjóri, sem lauk ferli sínum sem flugstjóri hjá Icelandair með lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn, ætlar ekkert að tjá sig um flugið að svo stöddu. Málið er litið alvarlegum augum hjá Icelandair sem hefur tilkynnt málið til lögreglu.

Innlent