Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir og fjölda opinberra skýrslna hefur ekki enn tekist að ráða gátuna um hið svokallaða Havana-heilkenni. Hundruð starfsmanna í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna hafa lýst lamandi svima, nístandi höfuðverk, suði í eyrum og minnistruflunum. Málið er enn óleyst ráðgáta sem heldur áfram að næra sögur um dularfull vopn og leynilegar tilraunir stórvelda. Lífið 19.1.2026 10:33
Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur í rúmt ár gert tilraunir á tæki sem gæti hafa verið notað til að framkalla Havana-heilkennið svokallaða. Bandarískir njósnarar eru sagðir hafa keypt tækið í leynilegri aðgerð fyrir milljónir dala í lok ríkisstjórnar Joes Biden en menn munu ekki vera sammála um hvort það virki eða tengist heilkenninu. Erlent 13.1.2026 21:16
Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur stjórnvöld í Kúbu til að semja við Bandaríkjamenn, ellegar muni Kúbverjar ekki lengur hafa aðgang að olíu og gjaldeyri frá Venesúela. Erlent 12.1.2026 00:09
Búast við hamförum vegna Melissu Fellibylurinn Melissa náði í morgun landi á Jamaíka í Karíbahafinu og er óttast að hann muni valda gífurlegum usla og tjóni þar. Melissa er fimmta stigs fellibylur og sá öflugasti sem skráður hefur verið ná landi á eyríkinu fátæka og er búist við því að auga óveðursins fari þvert yfir eyjuna í dag. Erlent 28. október 2025 09:42
Slíta sambandinu en vinna áfram saman Hollywood-stjörnurnar Tom Cruise og Ana de Armas eru hætt saman eftir átta mánaða samband. Neistarnir hafi verið horfnir og því best að segja það gott. Þau verði áfram vinir og samstarfsfélagar í neðansjávar-spennutrylli. Lífið 17. október 2025 15:19
Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, er byrjuð að undirbúa mögulegan flutning þúsunda erlendra manna sem eru í Bandaríkjunum ólöglega til Guantánamo á Kúbu. Meðal þeirra sem til stendur að senda eru hundruð manna frá Evrópuríkjum eins og Bretlandi, Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi og stendur ekki til að láta yfirvöld þar vita. Erlent 11. júní 2025 16:50
Stefna á víðtækar ferðatakmarkanir Stjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, stefnir á að gefa út víðtækar ferðatakmarkanir fyrir ríkisborgara 43 landa. Löndunum er skipt í þrjú stig en ríkisborgum ellefu landa verður alfarið bannað að ferðast til Bandaríkjanna. Erlent 16. mars 2025 22:14
Vill senda þrjátíu þúsund innflytjendur til Guantánamo Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í kvöld að hann ætli sér að gefa út forsetatilskipun um að reisa fangabúðir í Guantánamoflóa á Kúbu. Þangað ætli hann svo að senda farand- og flóttafólk sem heldur ólöglega til í Bandaríkjunum. Erlent 29. janúar 2025 20:12
Gætið ykkar: Enginn með Wikipedia-síðu og vindlasölumaðurinn Ef Grænhöfðaeyjar voru lítil fyrirstaða fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta ætti mótspyrnan frá Kúbu að vera enn minni. Liðin mætast í G-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld. Handbolti 18. janúar 2025 11:33
Aldrei færri fangar í Guantánamo-fangelsinu Fimmtán fangar dúsa nú í Guantánamo-herfangelsinu á Kúbu og hafa aldrei verið færri eftir að ellefu fangar voru fluttir til Óman. Mennirnir voru teknir höndum eftir hryðjuverkaárásirnar á New York árið 2001 en hafa aldrei verið ákærðir fyrir nokkra glæpi. Erlent 7. janúar 2025 08:47
Enn rafmagnslaust á Kúbu Enn er rafmagnslaust á Kúbu eftir að stjórnvöldum mistókst í þriðja sinn að koma á rafmagni rétt fyrir miðnætti í gær, laugardag. Rafmagn fór fyrst af á föstudag þegar bilun varð í einu stærsta orkuveri landsins. Í gær, laugardag, hrundi kerfið svo aftur þegar var verið að reyna að koma aftur á rafmagni. Erlent 20. október 2024 08:45
Aftur rafmagnslaust á Kúbu Kúba varð rafmagnslaus í annað sinn á rúmum sólahring í dag. Tilkynnt var um það í gærkvöldi að landið væri allt rafmagnslaust vegna bilunar í einu stærsta orkuveri landsins. Í frétt á Guardian segir að rafmagnskerfið hafi svo hrunið í annað sinn eftir að yfirvöld voru byrjuð að koma rafmagni aftur á. Erlent 19. október 2024 13:36
Ólympíufari lést eftir að hafa fengið hjartaáfall í brjóstastækkun Maricet González, sem keppti í júdó á Ólympíuleikunum í Ríó fyrir sex árum, er látin eftir að hafa fengið hjartaáfall í brjóstastækkun. Hún var 34 ára. Sport 26. janúar 2024 09:00
Juanita Castro er látin Juanita Castro, systir Fidel og Raúl Castro, er látin. Hún var 90 ára. Erlent 7. desember 2023 07:01
Sendiherra sakaður um að njósna fyrir Kúbu Manuel Rocha, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Bólivíu, hefur verið ákærður fyrir að hafa njósnað fyrir leyniþjónustu Kommúnistaflokksins á Kúbu. Hann er sakaður um að hafa njósnað fyrir Kúbumenn í áratugi eða allt frá árinu 1981. Erlent 4. desember 2023 23:52
Handtökur á Kúbu vegna mansals til Rússlands Yfirvöld á Kúbu segjast hafa handtekið sautján manns sem tengjast mansalshring sem er sakaður um að tæla unga Kúbverja til þess að berjast fyrir hönd Rússlands í Úkraínu. Þeir handteknu gætu átt yfir höfði sér þunga fangelsisdóma eða jafnvel dauðarefsingu. Erlent 8. september 2023 09:15
Segja Kúbverja selda mansali og látna berjast í Úkraínu Kommúnistastjórnin á Kúbu segist hafa afhjúpað mansalshring sem hafi neytt kúbverska borgara til þess að berjast með Rússum í innrás þeirra í Úkraínu. Hringurinn hafi starfað bæði á Kúbu og í Rússlandi. Erlent 5. september 2023 14:58
Íslenskt Oppenheimer Castro-fíaskó: Skondin tengsl Íslands við Oppenheimer „Nú er ég Dauðinn, eyðingarafl heimsins.“ Þetta er það sem kom upp í huga Dr. Robert Oppenheimer föður kjarnorkusprengjunnar þegar hann áttaði sig á því að honum hafði tekist að útbúa hættulegasta vopn mannkynssögunnar. Skoðun 23. júlí 2023 16:00
Kínverjar sagðir borga fyrir njósnastöð á Kúbu Yfirvöld í Kína og á Kúbu hafa komist að samkomulagi um að Kínverjar fái að reisa njósnastöð í Karíbahafinu. Þessa stöð eru Kínverjar sagðir ætla að nota til að hlera fjarskipti, gervihnattasendingar og ýmsar annars konar sendingar frá suðausturhluta Bandaríkjanna, þar sem finna má fjölmargar herstöðvar. Erlent 8. júní 2023 17:31
Elsti fanginn í Guantanamo látinn laus Elsti fangi sem setið hefur inni í hinu alræmda Guantanamo Bay-fangelsi, sem Bandaríkjastjórn starfrækir á Kúbu, hefur verið látinn laus. Erlent 30. október 2022 21:57
Ógleymanleg ferð til Kúbu með VITA Tónlistin, vindlarnir, rommið og hvítar strendurnar á ævintýraeyjunni Kúbu eru nú loksins aftur innan seilingar því VITA býður nú beint flug með Icelandair. Farið verður þann 19. nóvember í vikuferð undir fararstjórn Kristins R. Ólafssonar og Stefáns Ásgeirs Guðmundssonar og gist bæði í höfuðborginni Havana og strandbænum Varadero. Lífið samstarf 30. september 2022 09:03
Rafmagnslaust á Kúbu vegna fellibylsins Ian Rafmagn er farið af á allri Kúbu eftir að fellibylurinn Ian gekk yfir vesturhluta eyjarinnar í gær og í nótt. Erlent 28. september 2022 07:07
Ian búinn að ná landi á Kúbu Fellibylurinn Ian hefur náð landi á Kúbu en yfirvöld þar hafa flutt um fimmtíu þúsund manns úr vegi fellibyljarins. Ian er þriðja stigs fellibylur og óttast Bandaríkjamenn að hann muni ná fjórða stiginu og ná landi á vesturströnd Flórída seinna í vikunni. Erlent 27. september 2022 10:19
Hjónabönd samkynhneigðra verða lögleg á Kúbu Kúbverjar gengu að kjörborðinu í gær þar sem kjósendur greiddu atkvæði um hvort gera ætti hjónabönd samkynhneigðra lögleg í landinu. Nú þegar búið er að telja um 95 prósent atkvæða er ljóst að þau verði gerð lögleg. Erlent 26. september 2022 18:20