Fleiri fréttir

Rætt verður við umsækjendur

Starfsmenn menntamálaráðuneytisins munu á næstu dögum ræða við umsækjendur um stöðu þjóðleikhússtjóra. Þeim til aðstoðar verður sérfræðingur í mannauðsmálum. Að því ferli loknu mun ráðherra skipa í stöðuna.

Framfærsla námslána hækkar

Menntamála- og félagsmálaráðuneytin hafa unnið að tillögum um samstarf Atvinnuleysistryggingasjóðs og Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

Nær 30 ljósalömpum stolið

Brotist var inn í gróðrarstöðina Espiflöt í Biskupstungum í fyrrinótt. Þeir sem voru þar að verki höfðu með sér 28 ljósalampa, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

Frá Góðu fólki til samgönguráðherra

Ingvar Sverrisson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður samgönguráðherra en samkvæmt heimildum Vísis var það í gær sem ráðningin var ákveðin.

Baugur skuldar forsetadóttur

Dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, Guðrún Tinna, gerði rétt rúmlega 6 milljón króna launakröfu í þrotabú Baugs samkvæmt gögnum sem Vísir hefur undir höndum.

Bótanefnd vegna vistheimila sett á laggirnar

Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að starfshópi á vegum forsætisráðuneytis verði falið að semja drög að frumvarpi til laga þar sem mælt verði fyrir um greiðslu bóta til þeirra sem hafa orðið fyrir illri meðferð á vistheimilum á vegum ríkisins.

Yfirlýsing frá Félagi heyrnalausra

Félag heyrnarlausra hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir árétta að það sé mikilvægt að málefni Heyrnaleysingjaskólans hafi verið til lykta leidd.

Móðir stofnar óskabrunn

Móðir 3 ára stúlku sem glímir við sjálfsofnæmi og er föst við öndunarvél hefur stofnað styrktarfélagið Óskabrunn fyrir hana og fjölskyldur langveikra barna sem vilja leita lækninga út fyrir landsteinana en fá ekki greitt frá íslenska kerfinu.

Hvalir gætu verið hættulegir

Þau nánu kynni sem tókust milli manna og steypireyðar á Ströndum á dögunum eru talin einstök hér við land. Hvalasérfræðingur við Hafrannsóknastofnun varar þó eindregið við því að menn reyni slíkt, enda geti stórhveli reynst stórhættuleg og hæglega sökkt smábátum.

Kalla eftir efndum á stöðugleikasáttmála

Stöðugleikasáttmálinn er í uppnámi vegna vanefnda stjórnvalda, að mati forystumanna Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands, sem funduðu um málið í dag. Þeir segja hugmyndir um vaxtahækkun ögrun og segja pólitískar æfingar koma í veg fyrir að virkjanaframkvæmdir komist í gang.

„Sorrí Stína er ekki nóg“

Vistin á Kumbaravogi var ein sorgarsaga sem hefur skilið eftir sig ör, segir aðstandandi systkina sem þar voru vistuð.

Kviknaði í sófa í Álfaborgum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er búinn að slökkva eld í íbúð í Álfaborgum í Grafarvogi en samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins kviknaði í sófa inn í íbúð. Íbúarnir voru ekki heima þegar eldurinn blossaði upp.

Tíu stútar teknir um helgina

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir á föstudagskvöld, tveir á laugardag og sex á sunnudag.

Papeyjarsmyglmenn áfram í gæsluvarðhaldi

Tveir sakborninga sem voru dæmdir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl í svokölluðu Papeyjarsmyglmáli, hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald en þegar hafa þeir verið dæmdir í annarsvegar fimm og níu ára fangelsi.

Slökkviliðið kallað í Álfaborgum

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er á leið að Álfaborgum í Grafarvogi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu barst tilkynning um að fjölbýlishús í götunni væri fullt af reyk. Slökkviliðsmenn voru ekki komnir á staðinn síðast þegar Vísir frétti og því ekki vitað hvort um eld var að ræða.

Mál séra Gunnars í höndum biskups

„Við fengum það út úr úrskurðinum sem við vildum í rauninni, en við vildum láta kanna hvort þetta bryti ekki gegn siðareglum Prestafélagsins,“ segir Eysteinn Jónasson, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju, um nýlega niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli séra Gunnars Björnssonar. Eysteinn segir málið nú vera í höndum biskups.

Það er gott að búa í Skagafirði

Níu af hverjum tíu Skagfirðingum eru ánægðir með að búa í Skagafirði og næstum 8 af hverjum 10 segjast ánægðir með lífsgæði í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun sem Capacent Gallup vann fyrir sveitarfélagið Skagafjörð þar sem viðhorf íbúa til þjónustu sveitarfélagsins og búsetu var kannað. Íbúarnir eru almennt mjög ánægðir með þjónustu sveitarfélagsins svo sem þjónustu við barnafjölskyldur, þó að einstaka þætti í þjónustunni þurfi að laga.

Brotist inn í fyrirtæki í Nethyl

Á tíunda tímanum í morgun var brotist inn í fyrirtæki í Nethyl í Reykjavík og þaðan stolið nokkru magni af tölvubúnaði. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Berst fyrir forræði yfir bræðrum sínum

Rebekka María Jóhannesdóttir, 22 ára gömul kona úr Hafnarfirði, berst nú fyrir forræði sjö ára og tæplega tveggja ára gamalla bræðra sinna eftir að móðir þeirra féll frá.

Árni Páll: Ótvírætt að kerfið brást algerlega

Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra segir að niðurstöður skýrslu vistheimilanefndar sýni ótvírætt að opinbert eftirlit hafi brugðist í öllum tilvikum. Skýrslan sem birt var í dag fjallar um Heyrnleysingjaskólann, vistheimlið á Kumbaravogi og stúlknaheimilið á Bjargi. „Þessi staðreynd hefur valdið fjölda fólks miklum sársauka og á því er rétt og skylt að biðjast afsökunar" segir Árni Páll.

Rændur í annað sinn á skömmum tíma

„Ég ætla að vona að ég hafi ekki gert neinum neitt svo ég eigi þetta skilið,“ segir Viðar Már Þorsteinsson, símsmiður, sem, hefur lent í því í tvígang með skömmu millibili að annarsvegar reiðhjóli hans og hinsvegar dekkjum og felgum undan bifreið hans hafi verið stolið. Hann telur allt eins líklegt að hann fá seinna tjónið ekki bætt.

Innlend orka á bílaflotann gæti sparað milljarð

Íslendingar gætu sparað rúmlega einn milljarð króna í gjaldeyri í hverjum mánuði með því að hætta að nota olíu og bensín á bílaflotann og skipta yfir í innlenda orkugjafa svo sem rafmagn og metan. Þetta er fullyrt í tilkynningu frá Framtíðarorku en næstkomandi mánudag mun hópur alþjóðlegra sérfræðinga funda í Reykjavík á mánudag til að fjalla um hvernig framkvæma megi slíka kerfisbreytingu.

Einungis ein þyrluáhöfn á vakt

Einungis ein áhöfn verður á vakt á þyrlu Landhelgisgæslunnar frá næsta föstudegi og til mánaðaloka. Þetta staðfesti Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu.

Bretar og Hollendingar hafa ekki svarað fundarboði

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur enn ekki fengið formleg svör frá Bretum og Hollendingum vegna fyrirvara sem Alþingi gerði við ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans.

Lítill og ræfilslegur þetta haustið

Fossinn Hverfandi verður lítill og ræfilslegur í ár, að mati stöðvarstjóra Kárahnjúkavirkjunar, sem spáir því að rennsli hans verði aðeins um einn tuttugasti af því sem var á sama tíma í fyrra.

Svartur kafli í sögu þjóðarinnar

Forsætisráðherra segir fyrstu áfangaskýrslu vistheimilisnefndar sýna svartan kafla í sögu þjóðarinnar. Skýrsla starfshóps um heimili í Kumbaravogi, Skólaheimilinu Bjargi og í Heyrnleysingarskólanum var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra ræddi við blaðamenn um skýrsluna eftir fundinn.

Unnusta árásarmanns veittist að lögreglu

Átök urðu á milli tveggja manna á Strembugötu í Vestmannaeyjum aðfaranótt sunnudagsins. Mennirnir voru á leið heim eftir að hafa verið að skemmta sér í Höllinni þegar annar þeirra sparkaði í höfuð hins.

Stækkunarstjóri ESB fundar með ráðamönnum

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins kemur til landsins í dag og fundar með íslenskum ráðamönnum. Hann mun þá afhenda forsætisráðherra ítarlega spurningalista frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB.

Þúsundasti bæjarstjórnarfundurinn

Þúsundasti fundur bæjarstjórnar Kópavogs verður haldinn í dag. Bæjarstjórinn segir að lítið verði um hátíðarhöld. Þess í stað muni bæjarstjórnin í tilefni tímamótanna láta pening af hendi rakna til góðgerðamála.

AGS: Samkomulag um forsendur í höfn

Talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að íslensk stjórnvöld og starfsmenn sjóðsins hafi náð samkomulagi um þær forsendur sem endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands skuli byggja á. Fjármálaráðherra bindur vonir við að fyrsta endurskoðun sjóðsins fari fram í síðari hluta septembermánaðar.

Hyggjast finna 500 manns atvinnu

Gunnar Karl Níelsson og Daníel Björnsson myndlistarmaður stefna á að stofnuð verði að minnsta kosti 50 fyrirtæki sem veiti að minnsta kosti 500 manns atvinnu á tveimur árum. Þessu markmiði hyggjast þeir ná í gegnum svokallað Hugmyndahús Háskólanna sem sett hefur verið á legg.

Sala orkufyrirtækja til einkaaðila glapræði

Vinstri græn í Reykjavík fordæma fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Sala orkufyrirtækja til einkaaðila sé glapræði. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á félagsfundi VG í Reykjavík í gær.

Fjölgar ört í hópi þeirra sem vilja minnisvarða um Helga

Síðustu daga hafa margir minnst Helga Hóseassonar sem oft hefur verið nefndur mótmælandi Íslands, en hann lést síðastliðinn sunnudag. Á tæpum sólarhring hefur fjölgað um 10 þúsund manns í hópi á samskiptasíðunni Facebook sem vilja reisa Helga minnisvarða á horni Langholtsvegar og Holtavegar þar sem hann stóð gjarnan með skilti sín.

Smásöluverð kannabisefna hækkar

Smásöluverð á kannabisefnum hér á landi hefur hækkað verulega að undanförnu, samkvæmt verðkönnun SÁÁ og er grammið nú á bilinu fjögur til fimm þúsund krónur.

Ók á 160 til að komast á klósett

Erlend kona, sem er ferðamaður hér á landi, og var staðin að ofsaakstri á milli Hellu og Hvolsvallar undir kvöld í gær, reyndist líka vera undir áhrifum áfengis.

Lánþegar Frjálsa gera með sér samtök

Á fjölmennum fundi lánþega Frjálsa fjárfestingarbankans í gærkvöldi var ákveðið að mynda framkvæmdastjórn, sem tæki að sér að halda utan um samningagerð lánþega við skilanefnd bankans, en mikil óánægja ríkir með breytingar á kjörum eldri lána hjá bankanum.

Hverjum klukkan glymur

Tveir útlendingar, sem búsettir eru hér á landi, klifruðu í nótt upp vinnupallana á Hallgrímskirkju í Reykjavík og fóru inn í klukknaportið. Þar fóru þeir að hringja kirkjuklukkunum með því að slá í þær með verkfærum, sem þar eru á vegum verktakans, sem vinnur að viðgerð á turninum.

Náttúruminjasafnið í kössum næstu árin

Fjárveitingar til Náttúruminjasafns Íslands, sem er eitt höfuðsafna þjóðarinnar, verða skornar niður um allt að fjórðung. Þá er rætt um breytt hlutverk Þjóðmenningarhússins og jafnvel lokun þess, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Forstöðumaður Þjóðmenningarhússins hafnar því.

Verðmætt þýfi fannst við húsleit í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann gríðarlega mikið magn þýfis í gær. Karlmaður á þrítugsaldri, sem er af erlendu bergi brotinn, var handtekinn og verður að líkindum farið fram á gæsluvarðhald yfir honum í framhaldinu.

Segir Ísland ekki stefna í greiðsluþrot

Ísland stefnir ekki í greiðsluþrot þrátt fyrir að skuldir þjóðarbúsins séu nú orðnar 233 prósent af landsframleiðslu, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Telur að ráðið hafi farið að lögum

Formaður þjóðleikhúsráðs segir að vel geti verið að betra hefði verið að fá einhvern annan en ráðið, til að veita umsagnir um hæfni þeirra sem sóttu um stöðu þjóðleikhússtjóra.

Tugir sektaðir á landsleiknum

Lögreglan sektaði fimmtíu til sextíu bíleigendur sem höfðu lagt bílum sínum ólöglega meðan þeir horfðu á landsleik milli Íslands og Noregs á Laugardalsvelli síðastliðinn laugardag.

Vill skýr svör ríkisins og Alcoa

Sveitarstjóri Norðurþings hefur óskað eftir fundi með iðnaðarráðherra til að knýja á um að viljayfirlýsing um byggingu álvers á Bakka við Húsavík verði framlengd.

Sjá næstu 50 fréttir