Yfirlýsing frá Félagi heyrnalausra 8. september 2009 20:59
Félag heyrnarlausra hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir árétta að það sé mikilvægt að málefni Heyrnaleysingjaskólans hafi verið til lykta leidd. Félagið lýsir ennfremur yfir ánægju með skýrslu nefndarinnar um vist- og meðferðarheimili þar sem meðal annars var fjallað um Heyrnaleysingjaskólann. Þá hvetur Félag heyrnarlausra stjórnvöld til að standa vörð um réttindi og þátttöku heyrnarlausra í íslensku samfélagi. Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsingu félagsins í heild: Félag heyrnarlausra lýsir yfir ánægju með skýrslu nefndar um vist- og meðferðarheimili þar sem m.a. er fjallað um starfsemi Heyrnleysingjaskólans á árunum 1947 - 1992. Ber sérstaklega að þakka fyrir greinargóða skýrslu þar sem dregin er upp heildstæð mynd af sögu heyrnarlausra nemenda í tæpa fimm áratugi. Að mati Félags heyrnarlausra er það afar mikilvægt fyrir samfélag heyrnarlausra að fram sé komin niðurstaða opinberrar rannsóknar á dvöl heyrnarlausra barna í Heyrnleysingjaskólanum. Áður höfðu fulltrúar félagsins vakið athygli stjórnvalda á frásögnum fyrrum nemenda við skólann og óskað eftir aðgerðum stjórnvalda til að upplýsa um málið. Þrátt fyrir þungbæra reynslu fyrrum nemenda við skólann er það ákveðin léttir að fram er komin opinber staðfesting á frásögnum þeirra, frásögnum sem um hefur ríkt þögn. Eins og fram kemur í skýrslunni er það afstaða nefndarinnar að sú kennslustefna sem tekið var mið af við kennslu í skólanum og sá aðskilnaður sem ung heyrnarlaus börn þurftu að upplifa hafi verið þessum hópi afar þungbær. Telur nefndin það engum vafa undirorpið að þessi aðstaða hafi átt verulegan þátt í að skerða lífsgæði heyrnarlausra einstaklinga í íslensku samfélagi. Félag heyrnarlausra hvetur stjórnvöld til að fara að tillögum nefndar um vist- og meðferðarheimili þess efnis að tekin verði skýr efnisleg afstaða til framkominna tillagna um úrbætur í málefnum heyrnarlausra sem raktar eru í skýrslunni. Þá hvetur Félag heyrnarlausra stjórnvöld til að standa vörð um réttindi og þátttöku heyrnarlausra í íslensku samfélagi.
Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent Náðar spilltan fógeta Erlent Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Innlent „Hann er að leika sér að eldinum!“ Erlent Fleiri fréttir Telur að meðleigjandinn hafi kveikt í Kaup á kínverskum kísil „með ólíkindum“ og sérsveitaræfing Erfiðast að læra íslenskuna Afnema lengri opnunartíma í ákveðnum leikskólum borgarinnar Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Utanríkisráðherra Bretlands á leið til Íslands Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Fjórða hvert ungmenni talar sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína Ungliðahreyfing Viðreisnar ályktar gegn ákvörðun ríkisstjórnarinnar Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Hefur lagt tillögur á borðið en tjáir sig ekki um lögreglustjóra Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Áhyggjuefni hversu fáir treysta íslenskum fjölmiðlum Uppsagnir yfirvofandi á Húsavík Hnífi beitt í heimahúsi á Húsavík Frábiður sér að nördum sé líkt við Sósíalista Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Fyrrverandi þingmenn í nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Mannréttindadómstóllinn sýknar ríkið af kröfum mótmælenda Flestir urðu varir við „falsfréttir“ fyrir síðustu alþingiskosningar Margrét Hauksdóttir er látin Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Þorbjörg sögð bjóða Helga embætti vararíkislögreglustjóra Nauðlending á þjóðveginum Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Lækkandi fæðingartíðni ekki hundaflauta: „Ég bara hafna algjörlega forsendunum“ Hætt í VG og segir spillingu grassera í íslenskum stjórnmálum Ný forysta stefni í ranga átt „Einhver erfiðasti tími sem ég hef gengið í gegnum“ Sjá meira