Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nóttin tíðindalítil hjá lögreglu Fjórir voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt. Tveir þeirra enduðu för sína á ljósastaur, annar á Sæbraut við Kirkjusand, og hinn í Austurstræti. Ökumenn sakaði ekki. Þá var tilkynnt um eina líkamsárás þegar manni var hrint í leigubílaröðinni í Austurstræti. Nóttin var að öðru leiti tíðindalítil í Reykjavík. 29.11.2008 09:59
Þingið upp við vegg Meðferð og afgreiðsla Alþingis á frumvarpinu um gjaldeyrishöft var aðeins formsins vegna og að nafninu til. Þingmönnum var gert ljóst að höftin væru hluti af samkomulagi stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og því eins gott að frumvarpið yrði að lögum. 29.11.2008 08:30
Mikil ölvun og spark í höfuðið Vísbendingar eru komnar fram um að sparkað hafi verið í höfuð manns sem lést nýverið í sumarbústað í Grímsnesi og að hann hafi látist mjög skömmu eftir að það var gert. Krufning hefur leitt í ljós að maðurinn lést af blæðingum í heila eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg. Fjórir fullorðnir voru í bústaðnum þegar atvikið átti sér stað. Veruleg ölvun var á staðnum. 29.11.2008 08:00
Kristín, Stefán og Illugi halda ræður á fundi Ræðumenn á mótmælafundi á Austurvelli kl. 15.00 í dag verða þau Kristín Tómasdóttir frístundaráðgjafi, Stefán Jónsson leikstjóri og Illugi Jökulsson rithöfundur. Hópur fólks hefur safnast saman á hverjum laugardegi síðan 11. október til að mótmæla kreppuástandinu sem myndast hefur á Íslandi og hefur fjöldi viðstaddra farið mjög vaxandi. 29.11.2008 08:00
Ekki til fé fyrir floti krónunnar „Þetta bendir til þess að menn telji sig ekki hafa nógu mikinn gjaldeyri til þess að fleyta krónunni alveg,“ segir Sigurjón Þ. Árnason, fyrverandi bankastjóri Landsbankans, um ný lög og reglur um gjaldeyrisviðskipti. 29.11.2008 07:00
Taka tónlistarhúsið líklega yfir Líkur eru á að Austurhöfn, félag í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar, taki yfir byggingu tónlistarhússins. Portus, sem ætlaði að byggja og reka húsið, er komið í þrot og mun ekki koma frekar að málinu. 29.11.2008 06:45
Kortleggja forsendur samflots Stórt samflot með opinberu félögunum og félögum á almennum vinnumarkaði er í bígerð fyrir endurskoðun kjarasamninga á næsta ári ef tekst að ljúka lausum kjarasamningum þannig að engir hópar verði skildir eftir án þeirra kjarabóta sem samið hefur verið um á árinu. Ríkisstjórnin og forystumenn á vinnumarkaði báru saman bækur sínar í Ráðherrabústaðnum í gær. 29.11.2008 06:30
Þrjár flugvélar fá að fljúga Íslendingarnir, sem voru strandaðir vegna mótmælanna í Taílandi, áttu að fara með flugvél Finnair og jafnvel Thai Air til Parísar og London í nótt. Sigurður Yngvason, bóndi í Kelduhverfi, átti von á því í gærkvöldi að sendiráðsstarfsmaður myndi hitta sig og fjölskyldu sína á flugvellinum þegar þau lentu í París í dag. 29.11.2008 05:30
Reyndu að kúga út tugmilljónir Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir tilraun til að kúga tugmilljónir króna út úr manni. Þá er einn þremenninganna ákærður fyrir ofbeldisbrot að auki og annar fyrir fíkniefnabrot. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri. 29.11.2008 04:30
Opnað í dag með jólaskemmtun Hið árlega Jólaþorp verður opnað í dag í Hafnarfirði sjötta árið í röð og verður það opið allar helgar fram til jóla. Í dag verður kveikt á jólatrénu á Thorsplani í hjarta Hafnarfjarðar klukkan þrjú en fyrstu skemmtiatriðin hefjast klukkan tvö þegar Anne og Selma frá félagsmiðstöðinni Vitanum syngja. Raggi Bjarna tekur lagið og Tjarnarsystur, svo fátt eitt sé nefnt. 29.11.2008 04:00
Umferðin orðin eins og hún var árið 2002 „Síðan að kreppan mikla skall á höfum við séð umferðina falla,“ segir Björg Helgadóttir, landfræðingur á samgönguskrifstofu umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. „Við erum með mælingar á Kringlumýrarbraut, Sæbraut og Ártúnsbrekku og á öllum þessum stöðum hefur umferðin dregist verulega saman. Umferðarþungi er nokkuð breytileg stærð, það eru miklar sveiflur í þessu en þegar það er litið heildstætt yfir þetta má segja að það sé komin svipuð umferð og var á árunum 2002 og 2003.“ 29.11.2008 03:30
Merkileg stefnubreyting hjá AGS Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur breytt um stefnu hvað gjaldeyrishöft varðar, að mati Eddu Rósar Karlsdóttur, hagfræðings í Landsbankanum. 29.11.2008 03:00
Brot á lögum um útlendinga Framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri ehf. hefur verið dæmdur í sekt fyrir brot á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. 29.11.2008 03:00
Þarf að losa um nokkra tappa Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, hefur „ekkert nema gott að segja um fundinn“ með aðilum vinnumarkaðarins og stjórnvöldum í Ráðherrabústaðnum í gær. Fundurinn hafi ekki skilað niðurstöðum enda ekki efnt til hans í þeim tilgangi. Fyrst og fremst hafi hann átt að tryggja að menn væru í kallfæri hver við annan. 29.11.2008 02:45
Þurfum að treysta hvert öðru „Þetta er löggjöf sem var brýn til að tryggja gjaldeyrisforða og styrkja stöðu krónunnar,“ segir Björgvin G. Sigurðsson um ný lög um gjaldeyrishöft. „Aðrar væringar um önnur mál verða að bíða betri tíma. Þetta er beint framhald af neyðarlögunum,“ segir hann aðspurður hvort lagasetningin sé í raun traustsyfirlýsing við Seðlabankann og bankastjórn hans. 29.11.2008 02:15
Vonandi bara til bráðabirgða Miklar skyldur eru lagðar á herðar útflytjenda með nýjum lögum og reglum um gjaldeyrisviðskipti. Útflutningsfyrirtækjum ber að skila heim til Íslands öllum gjaldeyri sem þau fá fyrir sölu á vöru og þjónustu erlendis. 29.11.2008 02:15
Lýst eftir skýrri framtíðarsýn „Við þurfum á trúverðugleika gagnvart alþjóðasamfélaginu að halda. Aðgerðir stjórnvalda upp á síðkastið hafa beinlínis verið til þess fallnar að grafa undan því. Við megum ekki við þessu,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. 29.11.2008 02:00
Ákveðið að fækka ferðum strætós Stjórn Strætós bs. hefur samþykkt að draga úr tíðni vagnanna á næsta rekstrarári í sparnaðarskyni. Ekki verða breytingar á gjaldskrá, sem hefur ekki hækkað síðan í ársbyrjun 2007, og sveitarfélögin sem standa að Strætó munu hækka framlög sín um 10 prósent. Þá fær fyrirtækið 100 milljóna króna framlag nú í ár. 29.11.2008 02:00
Óljóst hve mikið greiðslur af Audi bifreiðinni hafa hækkað Páll Magnússon útvarpsstjóri lækkar í launum um 10-11% samkvæmt þeim niðurskurðartillögum sem RÚV kynnti í dag. 28.11.2008 22:26
Ekkert selt á bak við luktar dyr Búið er að tryggja að eignir ríkisbankanna verði ekki seldar bak við luktar dyr, heldur auglýstar svo mögulegir kaupendur sitji við sama borð. Allir helstu stjórnendur bankageirans á Íslandi voru boðaðir á fund viðskipta- og fjármálaráðherra í dag þar sem þetta var rætt. 28.11.2008 18:57
Aðgerðir Breta gegn Landsbanka ræddar í dag Aðgerðir breskra stjórnvalda gegn Landsbankanum í Bretlandi voru ræddar á stjórnarnefndarfundi Evrópuráðsþingsins í dag. Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins óskaði eftir því að beiting Breta á hryðjuverkalögum gegn Íslendingum yrði rædd á þinginu. 28.11.2008 19:01
Niðurskurðurinn mun heyrast í útvarpinu og sjást í sjónvarpinu „Það er augljóst mál að þegar við skerum niður um 700 milljónir mun það heyrast í útvarpinu og það mun sjást í sjónvarpinu," segir Páll Magnússon útvarpsstjóri um niðurskurðartillögur sem voru kynntar í dag. Hann segir þó að reynt verði að búa til eins góða dagskrá og mögulegt er fyrir þann pening sem fyrirtækið hafi úr að spila. 28.11.2008 17:02
Dregur úr hópuppsögnum „Þetta lítur alltsaman betur út núna en fyrir síðustu mánaðarmót,“ sagði Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar í viðtali í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann sagði að tilkynningar um hópuppsagnir hafi verið færri og náð til færri aðila en um síðustu mánaðarmót. 28.11.2008 19:35
Vilji til að halda byggingu tónlistarhússins áfram Það má ekki gerast að tónlistarhúsið verði gapandi sár í miðborginni, segir menntamálaráðherra. Borgarstjóri og menntamálaráðherra munu hittast í næstu viku til að fara yfir hvernig ríki og borg geti haldið áfram með verkefnið. 28.11.2008 19:08
Gjaldeyrislög fá misjafnar undirtektir Ríkisstjórnin hefur sett íslenskt atvinnulíf nokkra áratugi aftur í tímann með setningu nýrra laga um gjaldeyrismál að mati framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Skásti kosturinn í stöðunni segir aðalhagfræðingur Seðlabankans. 28.11.2008 18:39
Jólafrí þingmanna styttra í ár Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, telur afar líklegt að gerðar verði breytingar á starfsáætlun þingsins vegna yfirstandandi efnahagsþrenginga sem hafi óhjákvæmilega áhrif á þingstörf og fjölda þingfunda. Núverandi starfsáætlun gerir ráð fyrir að þingi verði frestað 12. desember fram til 12. janúar. 28.11.2008 16:33
Áhersla lögð á að greiða laun Slæm staða Árvakurs, Útgáfufélags Morgunblaðsins, var rædd á starfsmannafundi nú seinni partinn. Þar kom meðal annars fram að lausafjárerfiðleikar væru að gera félaginu erfitt fyrir. Áhersla væri þó lögð á að greiða laun starfsmanna. 28.11.2008 16:33
Afhentu undirskriftir gegn niðurrifi húsa við Laugaveg Júlíusi Vífli Ingvarssyni, formanni skipulagsráðs Reykjavíkur, var í morgun afhentur listi með undirskriftum þrjúhundruð og þrjátíu íbúa sem mótmæla niðurrifi húsanna við Laugaveg og fyrirhuguða byggingu Listaháskóla Íslands. 28.11.2008 15:52
SUS: Pólitískt uppgjör óumflýjanlegt Samband ungra sjálfstæðismanna dregur ekki dul yfir að miklir erfiðleikar eru framundan. Langan tíma mun taka að vinna aftur til baka það sem tapast hefur og það verður ekki gert þrautalaust. Fara þarf rækilega yfir það sem aflaga fór svo lærdóm megi draga af þessum efnahagslegu hörmungum. Pólitískt uppgjör er jafnframt óumflýjanlegt. Mörg mistök voru gerð. Stjórnvöld þurfa að líta í eigin barm, fyrirtæki þurfa að endurskoða rekstur sinn og almenningur þarf að aðlagast hratt nýjum raunveruleika. 28.11.2008 15:51
Örlög Árvakurs ráðast á sunnudag Það ræðst á stjórnarfundi Glitnis á sunnudaginn hver örlög Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðisins verða. 28.11.2008 15:33
Gefur lítið fyrir athugasemdir ungliða um mannabreytingar Formaður Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir athugasemdir Heimdalls, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem krafðist þess í gær að stjórn Seðlabankans og yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins yrði vikið frá og mannabreytingar yrðu gerðar ríkisstjórninni. 28.11.2008 15:25
Mótmæla banni við vinstri beygju Stjórn Íbúasamtaka Bústaðahverfis mótmælir harðlega fyrirhugaðri lokun vinstru beygju af Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut en borgarráð samþykkti í gær að loka beygjunni til reynslu í sex mánuði. Breytingunni er ætlað að draga úr álagi við gatnamótin og verður á reynslutímanum kannað hvort biðraðir á annatímum styttist. 28.11.2008 15:04
15 sagt upp á fréttastofu RÚV Heiðar Örn Sigurfinnsson trúnaðarmaður starfsmanna á fréttastofu Rúv segir starfsmenn sjokkeraða eftir atburði dagsins. 21 var sagt upp störfum og 23 verktakasamningum var sagt upp. Einnig er stefnt að launalækkunum um áramótin. 28.11.2008 14:58
Hefur ekki tekið ákvörðun um málsókn gegn Daily Mail Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, hefur ekki tekið ákvörðun hvort hann höfði mál gegn breska dagblaðinu Daily Mail vegna umfjöllunar um hann í október. ,,Mér er annt um mannorð mitt eins og fleirum," sagði Ólafur í samtali við Vísi. ,,Ég er enn að skoða málið." 28.11.2008 14:50
Sjálfstæðisflokkurinn fundar um Evrópumál Sjálfstæðisfokkurinn hefur ákveðið að hefja fundarherferð 12. desember um allt land þar sem ræða á valkosti og kynna kosti, galla og álitamál í hverjum málaflokki gagnvart hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu. 28.11.2008 14:05
Von á niðurstöðu frá kjararáði eftir helgi Guðrún Zoega formaður kjararáðs segir að ekki hafi náðst niðurstaða um lækkun launa æðstu embættismanna ríkisins. Kjararáð fundaði um málið í dag og segir Guðrún að stefnt verði að því að niðurstaðan verði kynnt eftir helgi. 28.11.2008 13:57
Veit ekki af hverju Davíð upplýsti ekki Björgvin Geir H. Haarde, forsætisráðherra, veit ekki af hverju seðlabankastjóri lét ekki vita þegar fyrsti hluti láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins barst til Seðlabankans. Tæp vika leið frá því lánið barst til bankans þar til Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, var upplýstur um afgreiðsluna. 28.11.2008 13:54
Forystumenn launþegasamtaka hafa ekki rætt launalækkun Forystumenn helstu launþegasamtaka hafa ekkert rætt um að lækka við sig launin, að sögn hafa forystumenn launþegasamtakanna eitthvað rætt um að lækka launin hjá sér. „Ekki veit ég til þess að það hafi eitthvað verið rætt," 28.11.2008 13:37
Gjaldeyrislögin sett með vilja AGS Geir Haarde forsætisráðherra telur að gagnrýni á gjaldeyrislögin sé of harkaleg. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur sagt að lögin munu stórskaða íslenskt viðskiptalíf og krefst þess að þau verði tekin til baka. 28.11.2008 13:16
Fjölmargir fasteignasalar á Akureyri fá uppsagnarbréf Fjölmargir fasteignasalar hafa fengið uppsagnarbréf nú fyrir mánaðamótin. Á Akureyri hefur næstum helmingi launafólks í greininni verið sagt upp störfum. 28.11.2008 12:47
Ósáttur við að lesa um uppsagnirnar í Fréttablaðinu Ég er afskaplega ósáttur við það að ég og aðrir starfsmenn Ríkisútvarpsins höfum þurft að lesa um uppsagnir og niðurskurð í Fréttablaðinu,” segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, trúnaðarmaður starfsmanna á Fréttastofu Ríkisútvarpsins. 28.11.2008 11:58
Einn handtekinn eftir fíkniefnafund í Mosfellsbæ Fíkniefni fundust við húsleit í Mosfellsbæ í gærkvöld en um var að ræða marijúana, samtals um 700 grömm. Húsráðandinn, karl á fertugsaldri, var handtekinn en hann hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála. 28.11.2008 11:41
Gjaldskrá Strætó helst óbreytt Stjórn Strætó bs. samþykkti í morgun rekstraráætlun fyrir næsta ár. Áætlunin felur meðal annars í sér ákvarðanir um aukin framlög til reksturs strætisvagna árið 2009 en jafnframt þjónustuaðlögun sem nauðsynlegt verður að grípa til vegna erfiðra rekstraraðstæðna. 28.11.2008 10:59
Efast um að Hæstaréttardómari geti unnið með rannsóknarnefndinni Sigurður Líndal, prófessor emeritus við lagadeild Háskóla Íslands, efast um að Hæstaréttardómari geti sinnt dómarastörfum á meðan að hann sitji í rannsóknarnefnd um bankahrunið. Fljótt á litið virðist starfið vera allt of umfangsmikið. Sigurður segir þó að Hæstaréttardómurum sé heimilt að vinna minniháttar störf samhliða dómarastörfum. 28.11.2008 10:51
Flugfarþegum fjölgar á milli Færeyja og Íslands Flugfarþegum á milli Færeyja og Íslands á vegum Flugfélags Íslands og færeyska flugfélagsins Atlantic Airways fjölgaði um 27% í september miðað við sama mánuð í fyrra. 28.11.2008 10:43