Innlent

Sjálfstæðisflokkurinn fundar um Evrópumál

Kristján Þór Júlíusson er formaður Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins.
Kristján Þór Júlíusson er formaður Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins.

Sjálfstæðisfokkurinn hefur ákveðið að hefja fundarherferð 12. desember um allt land þar sem ræða á valkosti og kynna kosti, galla og álitamál í hverjum málaflokki gagnvart hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað á fundi sínum 14. nóvember að skipa sérstaka nefnd um Evrópumál og flýta landsfundi flokksins sem verður haldinn í lok janúar.

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður, er formaður nefndarinnar og varaformaður er Árni Sigfússon, bæjarstjóri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×