Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Glötuðu sjúkraskrám heilsugæslu á Dalvík Allar sjúkraskrár á Heilsugæslustöðinni á Dalvík á tíu mánaða tímabili glötuðust í tölvukerfi. Engan árangur bar að senda búnaðinn til tölvusérfræðinga í tveimur löndum. Öryggi sjúklinga stefnt í hættu og gríðarlegt fjárhagslegt tap. 12.3.2009 06:00
Endurskoðendaskýrslur verða sendar sérstökum saksóknara Skýrslur endurskoðenda um aðdraganda bankahrunsins, sem nú eru í vörslu Fjármálaeftirlitsins, verða sendar í heild sinni sérstökum saksóknara, Ólafi Þ. Haukssyni. Þetta segir Gunnar Haraldsson, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins. 12.3.2009 06:00
Mótmæla ofbeldi öfgahópa Nokkur þúsund manns, jafnt kaþólskir sem mótmælendur, komu saman í Belfast á Norður-Írlandi í gær til að mótmæla ofbeldi öfgahópa, sem vilja kveikja á ný í glæðum átaka um aðskilnað frá Bretlandi. 12.3.2009 06:00
OR mæli ekki eigin mengun „Bæjarráð hlýtur að undrast það viðhorf sem fram kemur í bréfi Umhverfisstofnunar að sá sem mengar eigi að hafa umsjón með mælingum á áhrifum mengunarinnar,“ segir bæjarráð Hveragerðis sem er ósátt við þá skoðun Umhverfisstofnunar að Orkuveita Reykjavíkur annist vöktun á áhrifum af brennisteinsvetni frá eigin jarðvarmavirkjunum á Hellisheiði. 12.3.2009 05:30
Maður ærðist á Eyrarbakka Maður fékk æðiskast við veitingastaðinn Rauða húsið á Eyrarbakka aðfaranótt sunnudagsins. Hann skemmdi lampa inni á veitingahúsinu og að því búnu æddi hann út og réðist að næsta bíl og sparkaði í hann. Lögregla hafði afskipti af manninum, sem virtist lítið róast við það. Eftir handtöku reyndi hann ítrekað að skalla lögreglumenn. Maðurinn var ölvaður og því vistaður í fangageymslu. 12.3.2009 05:15
Biden segir ástandið versna Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, segir ástandið í Afganistan fara versnandi. Sama gildi um nágrannaríkið Pakistan. Hann hvetur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins til að taka höndum saman gegn Al Kaída og öðrum öfgahópum í þessum heimshluta. 12.3.2009 05:00
Formannsefni sagt stefnulaust Þingmenn Framsóknarflokks og Samfylkingar sökuðu Sjálfstæðisflokkinn og formannsefni hans, Bjarna Benediktsson, um stefnuleysi í Evrópumálum á Alþingi í gær. Sjálfstæðismenn þvertóku fyrir það og sökuðu Samfylkinguna á móti um að hafa skipt um skoðun. Afstaða til ESB skipti engu þegar kæmi að stjórnarsamstarfi við Vinstri græna. 12.3.2009 05:00
Heimili rýmd í gær og varðskip til taks „Menn hafa verið að kanna snjóalög undanfarna daga og meta að það sé veikt millilag í Traðargili,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík, þar sem fimm íbúðarhús voru rýmd fyrir kvöldmat í gær. 12.3.2009 04:45
Kostnaðurinn við þingið óviss Ekki fást svör um áætlaðan kostnað við stjórnlagaþing, hvorki úr forsætis- né fjármálaráðuneyti. Í því síðarnefnda er unnið að kostnaðaráætlun vegna þessa en Lúðvík Guðjónsson, starfsmaður þar, vill ekki segja hvort kostnaður sem Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, hefur áætlað, upp á 1,5 milljarða, sé í hærra lagi eða ekki. 12.3.2009 04:45
Kosningaplagg eða krafa þjóðfélagsins Þingmenn nefndu frumvarp um stjórnskipunarlög ýmist kosningaplagg eða svar við lýðræðiskröfu þjóðfélagsins. Ásakanir gengu á víxl um annarlegar hvatir á Alþingi í gær. Sjálfstæðismenn eru einangraðir í afstöðu sinni á þingi. 12.3.2009 04:45
Fimmtungur heimila skuldar umfram eign Áttatíu prósent heimila landsins eru með jákvæða eiginfjárstöðu en tuttugu prósent með neikvæða stöðu. Ástandið er viðkvæmt og þarf lítið til að fjölga í hópnum, segir Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur í Seðlabankanum. 12.3.2009 04:30
Baugur Group tekið til gjaldþrotaskipta Héraðsdómur hafnaði í gær beiðni Baugs Group um áframhaldandi greiðslustöðvun. Dómari taldi áform um endurskipulagningu félagsins óraunhæf. 12.3.2009 04:30
Vélmenni komi í stað kennara í barnaskólum Japanskir vísindamenn hafa búið til vélmenni sem hjálpað getur til við kennslu í barnaskólum. Vélmennið Saya getur sýnt undrun, hræðslu, fyrirlitningu, reiði, gleði og sorg. Enn sem komið er getur hún þó einungis sagt nöfn nemenda og gefið einföld fyrirmæli. 12.3.2009 04:30
Bæklingur um lítinn rétt karla Félag um foreldrajafnrétti hefur gefið út bækling sem meðal annars er ætlað að varpa ljósi á það að réttarstaða íslenskra karla hvað varðar jafnrétti foreldra sé líklega sú lakasta í vestrænum ríkjum. 12.3.2009 04:30
Segja fíkniefnabaráttu vonlitla Fíkniefna- og glæpavarnaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna segir að baráttan gegn fíkniefnum á heimsvísu sé að tapast. Í nýrri skýrslu frá skrifstofunni segir að allt sé vaðandi í fíkniefnum, allt of margir séu háðir þeim og of mikið af glæpum og ofbeldi tengist fíkniefnaviðskiptum. 12.3.2009 04:30
Fresturinn rann út á miðnætti Frestur til að sækja um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins rann út á miðnætti. Gunnar Haraldsson, formaður stjórnar eftirlitsins, vildi í gærkvöldi ekkert segja um hversu margar umsóknir hefðu borist. Hann ítrekar hins vegar að ráðningarferlið sé opið og gegnsætt og að ráðið verði í gegnum ráðningarskrifstofu. „Við erum ekki að pikka út neitt fólk fyrirfram,“ segir hann. 12.3.2009 04:30
L-listi náði kjöri í trúnaðarráð Kristinn Örn Jóhannesson var í gær kjörinn nýr formaður VR. Kristinn Örn hlaut tæp 42 prósent greiddra atkvæða og var því nokkuð öruggur. Lúðvík Lúðvíksson fékk 30 prósent atkvæða Gunnar Páll Pálsson, fráfarandi formaður, hlaut fæst atkvæði, eða 28 prósent. 12.3.2009 04:15
Síbrotamaður áfram inni Síbrotamaður sætir áfram gæsluvarðhaldi, eða þar til dómur gengur í máli hans, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir héraðsdómi. Í ákæruskjali eru honum gefin að sök fjölmörg afbrot, einkum auðgunarbrot og önnur fjármunabrot. Má þar nefna fjölda nytjastulda á bifreiðum og þjófnaðarbrot, sem varða mikla fjármuni. Maðurinn á að baki töluverðan sakarferil. Þar á meðal dóma vegna auðgunarbrota.- jss 12.3.2009 04:15
Mugabe óskar Tsvangirai góðs Þúsundir manna tóku þátt í minningarathöfn á þriðjudag um Susan Tsvangirai, eiginkonu Morgans Tsvangirai, forsætisráðherra Simbabve, í gær. Hún lést í bílslysi á föstudaginn og var jarðsungin í gær. 12.3.2009 04:15
Þrykkti sambýliskonu í gólfið Nær þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á konu. Hann var dæmdur til að greiða henni 150 þúsund krónur í miskabætur. Þá missti hann ökuleyfið í eitt ár. 12.3.2009 04:15
Bifreiðar og hús þakin sandi Gulur sandur hreinlega flæddi yfir Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær þegar sandstormur reið yfir. Enginn hægðarleikur var að þrífa gult sandrykið af bílum, götum og húsum eftir að ósköpin gengu yfir. 12.3.2009 04:00
Baugur fékk ótrúlega fyrirgreiðslu Jón Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að flest bendi til þess að Baugur og skyld félög hafi á undanförnum árum fengið ótrúlega bankafyrirgreiðslu. Hann segist ekki hafa heyrt sennilega skýringu hjá þeim sem stýrðu viðskiptaveldi Baugs á réttmæti þeirra risalána sem fyrirtæki þeirra fengu. 11.3.2009 22:47
Morðingjanum í Þýskalandi lýst sem venjulegum unglingi Hinn sautján ára gamli Tim Kretschmer sem vopnaður byssu myrti fimmtán manns í og nærri gagnfræðiskóla í suðvesturhluta Þýskalands er lýst sem venjulegum unglingi 11.3.2009 21:29
Alþingi láti af ál-draumórum Ung vinstri græn skora á þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs að greiða atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um heimild til samninga við Century Norðurál vegna álversuppbyggingar í Helguvík. 11.3.2009 22:38
Sigurjón sigraði í baráttunni um 2. sætið Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi þingmaður, bar sigurorð á Magnúsi Þór Hafsteinssyni, varaformanni Frjálslynda flokksins, í póstkosningu um annað sætið á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi. Rúmlega 300 manns eru skráðir í flokkinn í kjördæminu. 11.3.2009 21:57
Varðskip í viðbragðsstöðu vegna snjóflóðahættu Vegna snjóflóðahættu hafa varðskip Landhelgisgæslunnar verið sett í viðbragðsstöðu. Fyrr í kvöld ákvað Kristín Völundardóttir, lögreglustjóri á Vestfjörðum, í samráði við Veðurstofu Íslands að lýsa yfir hættustigi í Bolungarvík og stóð til að rýma nokkur hús í bæjarfélaginu fyrir klukkan 20. 11.3.2009 19:42
Lögreglan kom í veg fyrir sjálfsvíg með rafbyssu Lögreglumenn í borginni Tampa í Flórídafylki í Bandaríkjunum komu í veg fyrir að maður tæki eigið líf með því að beita rafbyssu á hann. Rafbyssur, eða taser-byssur, eru víða um heim notaðar af lögreglunni valdbeitingatæki. 11.3.2009 21:06
Ekki kappsmál að koma þingmannsstól undir eigin rass Bjarni Harðarson, bókasali og fyrrverandi þingmaður, segir að það sé ekki kappsmál að koma þingmannsstól undir eigin rass. Tilkynnt var í dag að Bjarni mun skipa fyrsta sætið hjá L-listanum í Reykjavík norður. 11.3.2009 20:45
Hefur ekki áhrif á íslensk fyrirtæki Bónusfjölskyldunnar Gjaldþrot Baugs Group mun ekki hafa teljandi áhrif á rekstur fyrirtækja í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans á Íslandi. 11.3.2009 19:01
Þúsund hafa kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar Rúmlega þúsund hafa kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem hófst í fyrradag og lýkur á laugardaginn. Einungis flokksbundnir geta kosið og lokaði kjörskrá 28. febrúar. Alls gefa 19 frambjóðendur kost á sér í prófkjörinu, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, dró á sunnudaginn framboð sitt til baka af heilsufarsástæðum. 11.3.2009 20:49
Hesthúsum við Elliðaár mótmælt Stangveiðifélag Reykjavíkur segir óskiljanlegt að Borgarráð Reykjavíkur hafi gefið samþykki sitt fyrir á byggingu hesthúsa fyrir allt að 600 hross á bökkum Elliðaánna, nánar tiltekið við veiðistaðinn Heyvað. 11.3.2009 20:31
Norðmaður með allar tölurnar í Víkingalottóinu Það var heppinn Norðmaður sem var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu þegar dregið var í kvöld. Vinningstölurnar voru 2, 9, 14, 16, 30 og 41. 11.3.2009 20:20
Fleiri skemmtiferðaskip í sumar á landsbyggðina Komum skemmtiferðaskipa til hafna á landsbyggðinni fjölgar umtalsvert í sumar. Þannig hafa yfir sextíu skip boðað komu sína til Akureyrar og um þrjátíu til Ísafjarðar. 11.3.2009 19:45
Vaxtabætur gætu hækkað um rúm 60 prósent Útborgaðar vaxtabætur geta hækkað um á sjötta tug prósenta hjá þeim sem skulda mikið ef áform ríkisstjórnarinnar um hækkun vaxtabóta verða samþykkt á Alþingi. 11.3.2009 19:30
Sáttasemjari milli Ölfuss og Reykjanesbæjar Kjartan Ólafsson alþingismaður hefur ákveðið að gerast sáttasemjari í viðræðum sveitarfélagsins Ölfuss og Reykjanessbæjar til að höggva á þann hnút sem upp er kominn eftir að bæjarstjórn Ölfuss ákvað að koma í veg fyrir orkuflutninga frá Hellisheiði til Suðurnesja. 11.3.2009 19:15
40% heimila skulda meira en eign þeirra stendur undir Ríflega fjörtíu prósent heimila skulda meira en eign þeirra stendur undir eða eiga afar lítið umfram veðskuldir, samkvæmt greiningu Seðlabankans á stöðu heimilanna. 11.3.2009 18:55
Sigurinn kom á óvart Kristinn Örn Jóhannesson var kjörinn formaður VR í dag og felldi þar með Gunnar Pál Pálsson af formannsstóli. Kristinn boðar breyttar áherslur hjá félaginu. 11.3.2009 18:44
Kynferðisbrotum gegn kornungum börnum fjölgar Vísbendingar eru um að kynferðisbrotum gegn kornungum börnum hafi fjölgað og málin séu alvarlegri en áður. Grunur er um brot gegn börnum allt niður í eins árs. 11.3.2009 18:41
Snjóflóðahætta í Bolungarvík - hús rýmd Veðurstofan í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum hefur lýst yfir hættustigi í Bolungarvík á reit 4 og er rýming hafin. Þetta á við um húsin Ljósaland 2, Traðarland 18, 21, 22 og Tröð. Gert er ráð fyrir að umrædd hús verði mannlaus fyrir klukkan 20 í kvöld, að fram kemur í tilkynningu frá Kristínu Völundardóttur lögreglustjóra á Vestfjörðum. 11.3.2009 18:05
Milljarðar til umræðu á borgarafundi í Iðnó Borgarafundur fer fram í Iðnó í kvöld undir yfirskriftinni ,,500 milljarðar til eigenda - glæpur eða vinargreiði." Fundurinn fer fram á vegum breiðfylkingarinnar Opins borgarafundar. 11.3.2009 17:59
Umræðu um stjórnarskrárfrumvarpið lokið Fyrstu umræðu um frumvarp til stjórnarskipunarlaga lauk á Alþingi fyrr í dag. Fyrsta umræða um frumvarpið hófst á föstudaginn og átti að halda áfram í gær en ekkert varð af því. Umræða hófst eftir hádegi í dag. 11.3.2009 17:48
Fjórir teknir fyrir hraðakstur í Hafnarfirði Fjórir ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. 11.3.2009 17:35
Missti vald á bifreið og endaði á bílaplani N1 Ökumaður missti vald á bifreið sinni með þeim afleiðingum að bifreið hans hentist inn á bílaplan bensínstöðvar N1 við Lækjargötu í Hafnarfirði á fjórða tímanum í dag. Bifreiðinni var ekið suður eftir Reykjanesbraut. 11.3.2009 17:21
Samningar um aukið umferðareftirlit endurnýjaðir Í dag var skrifað undir samninga um sérstakt umferðareftirlit og sjálfvirkt hraðaeftirlit milli samgönguráðuneytis, Vegagerðarinnar, Umferðarstofu og ríkislögreglustjóra samkvæmt heimsíðu lögreglunnar. 11.3.2009 16:49
Merkel: Sorgardagur fyrir alla Þjóðverja Angela Merkel kanslari Þýskalands segir að skotárásin í Winnenden sé óskiljanleg, en 17 ára gamall fyrrverandi nemandi við gagnfræðaskóla bæjarins gekk berserksgang í skólanum og skaut nemendur og kennara til bana. Eftir blóðbaðið myrti hann vegafaranda og tók bíl hans traustataki. 11.3.2009 16:24