Innlent

Þúsund hafa kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar

Frá þingflokksfundi Samfylkingarinnar í janúar.
Frá þingflokksfundi Samfylkingarinnar í janúar.
Rúmlega þúsund hafa kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem hófst í fyrradag og lýkur á laugardaginn. Einungis flokksbundnir geta kosið og lokaði kjörskrá 28. febrúar. Alls gefa 19 frambjóðendur kost á sér í prófkjörinu, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, dró framboð sitt til baka af heilsufarsástæðum

Hægt er að kjósa á netinu í gegnum heimasíðu Samfylkingarinnar og í kosningamiðstöð flokksins á Skólabrú við Austurvöll.

,,Alls hafa 1048 greitt atkvæði, þar af 844 í netkosningu og 204 á kjörstað. Netkosningin virðist því vera að slá í gegn enda hentug leið fyrir fólk í nútímasamfélagi þar sem tími er auðlind í útrýmingarhættu," segir Skúli Helgason, frambjóðandi í prófkjörinu, á heimasíðu sinni.

Prófkjörinu lýkur klukkan 18 á laugardaginn og er búist við fyrst tölum fljótlega eftir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×