Fleiri fréttir

Baugur vildi bíða betri tíðar

Baugur, sem var hafnað um áframhaldandi greiðslustöðvun í hádeginu, skuldar 148 milljarði umfram eignir samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá segir í dómsorði að þeir hafi viljað áframhaldandi greiðslustöðvun til þess að bíða betri tíðar. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið raunhæfur möguleiki hjá Baugi að koma nýrri skipan á fjármál sín.

Byssumaðurinn í Alabama: Skaut ömmu sína og afa

Ellefu liggja í valnum eftir skotárásir í þremur smábæjum í Alabanaríki í Bandaríkjunum í gær. Maður vopnaður hríðskotariffli myrti tíu manns áður en hann svipti sig lífi.

Sautján látnir - byssumaðurinn skotinn

Tala látinna í gagnfræðaskólanum í Winnenden heldur áfram að hækka og nú segir lögregla að sautján hafi látist af skotsárum. Árásarmaðurinn er einnig látinn að sögn lögreglu.

Stendur fyrir blysför að heimili Jóhönnu

Þórhallur Vilhjálmsson markaðsfræðingur stendur fyrir blysför að heimili Jóhönnu Sigurðardóttur í kvöld. Tilgangurinn er að þrýsta á forsætisráðherra að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar. Jóhanna íhugar nú áskoranir samfylkingarfólks og minnir Þórhallur á að hún hafi aldrei sagt nei við fólkið.

Fjöldamorð í Þýskalandi: Maðurinn enn á flótta

Að minnsta kosti tíu eru látnir eftir að maður íklæddur hermannafötum hóf skothríð í skóla í bænum Winnenden nálægt þýsku borginni Stuttgart. Fjölmargir eru slasaðir eftir árásina en byssumaðurinn flúði af vettvangi og er enn á flótta.

Lögregla skaut fyrrum hermann til bana

Maður, sem lögreglan í Kaupmannahöfn skaut til bana á Nørrebro í gær, reyndist vera fyrrverandi hermaður sem meðal annars gegndi herþjónustu fyrir danska herinn í Bosníu.

Deila YouTube gæti náð til MySpace

Deila YouTube-vefjarsins við samtök höfundarréttareigenda í Bretlandi, sem Vísir greindi frá í gær, gæti breiðst út og haft víðtækari afleiðingar, til dæmis þær að önnur fjölsótt vefsíða, MySpace, fái sams konar afgreiðslu og YouTube og verði þar með gert að loka með öllu aðgangi að þúsundum tónlistarmyndbanda auk tónlistar án myndbanda.

Líklegt að Madoff kveðist sekur um 50 milljarða svik

Líklegast þykir að svikahrappurinn Bernard Madoff lýsi yfir sekt sinni í einu stærsta fjársvikamáli í sögu Bandaríkjanna en hann er ákærður í 11 liðum fyrir svik sem talin eru nema allt að 50 milljörðum dollara.

Þrisvar brotist inn í Miðvang í nótt

Þrisvar sinnum var brotist inn í verslanamiðstöðina Miðvang í Hafnarfirði í nótt og höfðu þjófarnir einn flatskjá upp úr krafsinu. Fyrst brutust þeir inn í hársnyrtistofu um miðnætti. Tveimur klukkustundum síðar reyndu þeir að brjótast inn í skrifstofu, en það mistókst.

Tveir af átta ölvuðum réttindalausir að auki

Tveir af átta ökumönnum, sem stöðvaðir voru fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi, voru réttindalausir. Þrír til viðbótar lentu í umferðaróhöppum, þar sem þeir áttu alfarið sökina. Svo vel vildi þó til að enginn slasaðist í þeim óhöppum, sem ekki er þeim að þakka, að sögn lögreglu.

Þrálát bræla tefur kolmunnaveiðar

Þrálát bræla hefur tafið kolmunnaveiðar íslenskra fiskiskipa vestur af Skotlandi, en þokkalegur afli hefur fengist þær stundir sem veður leyfir. Þar eru nú tíu íslensk fjölveiðiskip og er hluti aflans frystur um borð í sumum þeirra, en afgangurinn fer í bræðslu.

Þakplötur losnuðu í veðurhamnum

Þakplötur tóku að losna af nýbyggingu í Hnoðraholti í Garðabæ upp úr klukkan þrjú í nótt. Lögregla hafði samband við eigandann, sem gat hamið járnið áður en það olli tjóni í grenndinni. Víða var hvasst suðvestanlands í nótt en ekki er vitað af tjóni vegna veðursins.

Vill þyngri refsingu yfir föðurnum

Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi yfir manni, sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn barnungri dóttur sinni. Dómnum er áfrýjað til refsiþyngingar.

Skuldir kúabúa gríðarlega þungar

Íslensk kúabú skulda um 30 milljarða króna. 700 kúabú eru á Íslandi. Þrjú af hverjum tíu eru talin eiga í verulegum vanda. Ungir bændur eru helst í vanda og er það litið alvarlegum augum þar sem bú og heimili bænda eru eitt.

Allir sem fylgst var með fái miskabætur

Lögmaður telur að ríkinu beri skylda til að hafa samband við og greiða öllum þeim bætur sem lögreglan fylgdist með á ólögmætan hátt síðustu tíu ár. Héraðsdómur er ósammála mati á búnaðinum sem fram kemur í skýrslu frá 1999.

Tónlistararfur Íslands í hættu

Slökkviliðsmennirnir eru búnir að fullvissa mig um að handritin hafi sloppið,“ sagði Sigfríður Björnsdóttir, starfsmaður Íslensku tónverkamiðstöðvarinnar, sem var við störf í Síðumúla 34 þegar eldur braust út í húsinu í gær. Grátandi tjáði hún blaðamanni á vettvangi að hún hafi verið viss um að um 80.00 þúsund handrit af íslenskum tónverkum væru orðin eldi að bráð. „Ef illa hefði farið hefði þetta verið óbætanlegur skaði fyrir íslenska menningarsögu. Þetta er fyrir tónlist þjóðarinnar eins og það væri fyrir sögu listmálunar að kviknaði í Listasafni Íslands. Þarna eru til dæmis handrit Jóns Leifs.“

Kanadamanni teflt fram

Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, sagði á fundi í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Brussel í gær að sér þætti að næsti framkvæmdastjóri bandalagsins ætti ekki endilega að vera Evrópumaður.

Miklir erfiðleikar á 30 þúsund heimilum

Eiginfjárstaða 30 þúsund heimila er neikvæð eða við það að verða neikvæð. Bílalán og yfirdráttarlán eru ekki tekin með í reikninginn. Forsætisráðherra segir hugsanlegt að afskrifa þurfi 40 prósent af skuldum þeirra verst settu.

Beit í fingur lögreglu og braut

Ríkissaksóknari hefur ákært tvo menn fyrir brot gegn valdstjórninni. Annar þeirra beit í fingur lögreglumanns með þeim afleiðingum að fingurinn brotnaði um liðamót.

Laxarnir verða færri í sumar

Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri Auðlindasviðs Veiðimálastofnunar, býst ekki við að fiskgengd í íslenskum laxveiðiám verði eins mikil í sumar og hún var í fyrrasumar.

Skattaskjólin eru ein mesta meinsemdin

Eva Joly, sem var rannsóknardómari í Frakklandi og verður ráðgjafi íslensku stjórnarinnar, segir skattaskjól vera meinsemd í fjármálakerfinu. Hana grunar að íslenskir auðmenn feli fé og segir starfsmannafæð sérstaks saksóknara „brandara“.

Íslendingar hlaupa í Sahara

Tveir íslenskir ofurhlauparar taka þátt í Sahara eyðimerkur­maraþoninu sem fram fer í Marokkó um næstu mánaðamót og verða þeir fyrstir íslenskra hlaupara til að taka þátt í þessu hlaupi. Þetta eru þeir Ágúst Kvaran og Justin Bjarnason.

ÍAV áttu lægsta boðið í virkjun

Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) og samstarfsfyrirtæki áttu hagstæðasta boðið í 1.000 megavatta vatnsaflsvirkjun sem verður reist í Sviss. Tilboðið hljóðar upp á 70 milljarða króna.

Stjórnin pukrast að mati Geirs

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði ríkisstjórnina hafa pukrast með breytingar á stjórnarskránni.

Átján mánuðir fyrir hnífaárás

Karlmaður um tvítugt, Ari Dagur Sigurðsson, hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir lífshættulega hnífaárás, svo og til greiðslu 350 þúsund króna í miskabætur. Hann réðst að morgni nýársdags 2009 með hnífi á annan mann og stakk hann í andlit og bak. Árásin átti sér stað í verslun 10-11 við Lágmúla í Reykjavík.

Dalaí Lama ásakar Kínverja

Dalaí Lama, sem er í senn andlegur og veraldlegur leiðtogi Tíbeta, segir að kínversk stjórnvöld hafi gert lífið í Tíbet að „helvíti á jörðu“.

Andstæðingar standa saman

Leiðtogar kaþólskra og mótmælenda á Norður-Írlandi sýndu fulla samstöðu í gær og lýstu yfir eindregnum vilja til að brjóta á bak aftur klofningshópa úr Írska lýðveldishernum, sem hafa reynt að lífga glæður borgarastyrjaldar.

Frestur til að sækja um forstjórastöðu FME rennur út

Nú fer hver að verða síðastur til að sækja um forstjórastöðu Fjármálaeftirlitsins en umsóknarfrestur rennur út á morgun. Staðan var auglýst til umsóknar 11. febrúar og var fresturinn í fyrstu til 25. febrúar en hann var framlengdur til 11. mars.

Reykjanesbraut opnuð á ný eftir alvarlegt slys

Opnað hefur verið aftur fyrir umferð norður Reykjanesbraut á gatnamótunum við Breiðholtsbraut eftir að jeppabifreið var ekið á miklum hraða á brúarstólpa á sjöunda tímanum í kvöld. Að sögn lögreglu var um alvarlegt umferðarslys að ræða.

Umtalaðri VR kosningu lýkur á morgun

Kosningu um formann, stjórn og trúnaðarráð VR lýkur á hádegi á morgun. Ríflega fimmtungur félagsmanna í félaginu höfðu greitt atkvæði í hádeginu í dag en kosningin er rafræn og fer fram á heimasíðu VR.

Uppbygging húsanna við Lækjargötu kostar 1,6 milljarð

Stefnt er að því að framkvæmdum við uppbyggingu húsanna á brunareitnum í miðbæ Reykjavíkur verði lokið haustið 2010. Húsin verða reist í sinni upprunalegu mynd með örlitlum breytingum. Uppbyggingin er talin kosta 1,6 milljarð króna.

Ingibjörgu þakkað fyrir störf í þágu jafnaðarstefnunnar

Ungir jafnaðarmenn senda Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sínar allra bestu og hlýjustu kveðjur fyrir störf í þágu jafnaðarstefnunnar. Í tilkynningu frá félaginu segir að Ingibjörg hafi hvergi dregið af sér í fjölda ára og framlag hennar til íslensks samfélags sé ómetanlegt. Hún hafi sameinað félagshyggjufólk við stjórn Reykjavíkurborgar við að gjörbreyta þar stjórnarháttum og innleitt fagleg vinnubrögð í áður úreltu og gamaldags bittlingakerfi.

Björn: Stjórnlagaþing kostar allt að 1,5 milljarð

Björn Bjarnason segir að frumvarp til stjórnarskipunarlaga sé skrýtið frumvarp því það geri ráð fyrir breytingum á stjórnarskránni en boði jafnframt til stjórnlagaþings sem eigi að gera ennfrekari breytingar á stjórnarskránni. Björn segir í pistli á heimasíðu sinni að kostnaður við stjórnlagaþing geta numið allt að 1,5 milljarði króna.

Raforku Sunnlendinga ekki hleypt til Suðurnesja

Sveitarfélagið Ölfus hefur óvænt sett áform um Helguvíkurálver í uppnám og leggst nú alfarið gegn því að háspennulína verði lögð frá Hellisheiðarvirkjun til Suðurnesja. Sveitarfélagið vill frekar að orkan verði notuð til uppbyggingar í Þorlákshöfn.

Hóta fleiri morðum á N-Írlandi

Tveir írskir morðingjahópar hóta að halda áfram að myrða hermenn og lögreglumenn meðan Bretar hafi nokkur umsvif á N-Írlandi.

Joly: Brandari að fjórir starfi við rannsókn á bankahruninu

Það er brandari að einungis fjórir starfsmenn séu við störf hjá embætti sérstaks saksóknara efnahagshrunsins, segir Eva Joly, einn fremsti rannsakandi efnahagsbrota okkar tíma. Hún hefur verið ráðin til að aðstoða ríkistjórnina við rannsókn á hruninu.

Geir stendur við svarið um Icesave

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, stendur við svar sem hann gaf Alþingi um Icesave reikningana. Siv Friðleifsdóttir spurði hann hvort hann hefði vitað um tilboð breska fjármálaeftirlitsins um að Icesave reikningar yrðu færðir í breska lögsögu gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu.

Frændur storma inn á tryggingamarkaðinn

Stærsta tryggingafélag Færeyja lýsti þeim áformum sínum í dag að komast inn á íslenska tryggingamarkaðinn fyrir áramót. Færeyingarnir vilja helst kaupa eitt þriggja stærstu tryggingafélaga landsins en takist það ekki segjast þeir staðráðnir í að hefja eigin starfsemi hérlendis.

Íbúa varð ekki meint af eldinum

Slökkviliðsmenn voru í mikilli hættu þegar gaskútar sprungu í eldsvoða sem varð í Síðumúla í dag. Eldurinn kom upp þegar verið var að leggja tjörudúk á þak hússins. Íbúa á efstu hæð varð ekki meint af eldinum.

Sjá næstu 50 fréttir