Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mestu aðgerðir síðan 1926 Um ein og hálf milljón breskra ríkisstarfsmanna áforma að fara í verkfall á fimmtudag. Stéttarfélög segja þetta vera mestu aðgerðir síðan 1926 þar sem þúsundum skóla verður lokað og truflanir verða á samgöngum. 27.3.2006 16:15
Skærin festust í hálsinum Kínversk kona gekkst undir afar flókna skurðaðgerð í morgun þegar fjarlægja þurfti skæri sem höfðu festst í hálsi hennar. 27.3.2006 16:00
Áhættugreining vegna hugsanlegs goss og hlaups niður Mýrdalssand Á árinu 1999 fengu Almannavarnir ríkisins (nú almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans) aukafjárveitingu, til að vinna að áhættugreiningu fyrir Kötlusvæðið. Ástæðan var aukin virkni á Mýrdalsjökulssvæðinu og jarðfræðilegar breytingar, sem þykja vera fyrirboði um eldgos. 27.3.2006 15:46
13 ára fangelsi fyrir árás Ungur Moskvubúi var í dag dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir árás á samkunduhús Gyðinga í borginni í byrjun árs. 27.3.2006 15:45
Útdráttur úr formála hættumats Hinn 23. desember 2002 óskaði almannavarnarnefnd Rangárvallasýslu þess við Almannavarnir ríkisins að unnið yrði hættumat og áhættugreining vegna eldgosa og meðfylgjandi jökulhlaupa í Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli. 27.3.2006 15:43
Læstir míníbarir Norskt fyrirtæki mun á næstunni markaðssetja nýja tegund af míníbörum sem eiga að koma í veg fyrir að hótelgestir steli sér guðaveigum. Gestir á hótelum í Noregi stela um 30% af því sem í slíkum börum er að finna og því telja hóteleigendur ekki vanþörf á því að taka á þessu vandamáli. 27.3.2006 15:30
Mannfall í óeirðum Fjölmargir létu lífið þegar lögregla í Georgíu gerði áhlaup á fangelsi í höfuðborginni Tiblisi í dag. Fangar höfðu stofnað til óeirða eftir að komið var í veg fyrir flótta nokkurra þeirra. 27.3.2006 15:15
Ein fjölmennasta neyðarvarnaræfing í sögu Rauða krossins Rúmlega 100 þátttakendur frá Rauða krossi Íslands voru í almannavarnaæfingunni Bergrisinn 2006 nú um helgina. Þetta er ein fjölmennasta æfing sem Rauði krossinn hefur átt aðild að, en hún var lokahnykkurinn í gerð nýrra viðbragðs- og rýmingaráætlana fyrir áhrifasvæði eldgosa, jökulhlaupa og gjóskufalls frá Mýrdals- og Eyjafjallajöklum. 27.3.2006 14:29
Eimskip kaupir helming í Innovate Holdings Eimskip hefur fest kaup á helmingshlut í breska landflutningafyrirtækinu Innovate Holdings. Forstjóri Eimskips sér mikil tækifæri til frekari sóknar á sviði hitastýrðra flutninga með kaupunum og horfir meðal annars til viðskipta við félög eins og Bakkavör og Icelandic Group í Bretlandi, en þau félög eru einnig í eigu Íslendinga. 27.3.2006 14:10
Uppsagnarbréf starfsmanna varnarliðsins afhent í dag Allir íslenskir starfsmenn varnarliðsins, tæplega sex hundruð talsins, geta fengið uppsagnarbréf sín afhent í dag. Að sögn Friðþórs Eydals, upplýsingafulltrúa varnarliðsins, geta þeir annaðhvort sótt þau frá klukkan þrjú eða fengið þau send í pósti. Uppsagnarfrestur fólks er misjafn, á milli þrír og sex mánuðir, en gert er ráð fyrir starfslokum allra fyrir 30. september. 27.3.2006 13:59
Sérfræðingur Microsoft í öryggismálum staddur hér á landi Jesper Johansson, einn þekktasti sérfræðingur Microsoft í öryggismálum, er staddur hér á landi. Hann hefur skorað á hólm margar viðteknar venjur og aðferðir í öryggismálum varðandi upplýsingatækni. 27.3.2006 13:29
Laugalækjarskóli rýmdur vegna reyks Slökkviliðið var kallað að Laugalækjarskóla í Reykjavík um tólfleytið í dag. Pappír var settur í örbylgjuofn í kjallara skólans. 27.3.2006 13:26
Framkvæmdir stöðvaðar við gamla Hlaðvarpann Framkvæmdir við ris gamla Hlaðvarpans hafa verið stöðvaðar á meðan verið er að rannsaka hvort þær standist deiliskipulag. Grunur leikur á að hæð rissins sé of mikil. 27.3.2006 12:45
Búið að opna Ólafsfjarðarmúla eftir snjóflóð í morgun Snjóflóð féll á veginn um Ólafsfjarðarmúla um klukkan hálfellefu í morgun. Búið er að opna veginn aftur og er hann nú greiðfær. Á Norðausturlandi er hálka, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur. Ófært er á Lágheiði. 27.3.2006 11:58
Nýr formaður SFR Árni Stefán Jónsson var kjörinn formaður SFR, stéttarfélags i almannaþjónustu á aðalfundi félagsins síðastliðinn laugardag. Árni Stefán hefur verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin 16 ár. 27.3.2006 10:56
Maður lést í sprengingu á Kárahnjúkasvæðinu Karlmaður á tuttugasta og sjöunda aldursári lést í sprengingu á Kárahnjúkasvæðinu snemma í morgun. Engin slys urðu á öðru fólki. 27.3.2006 10:55
Aðstæður í efnahagslífinu almennt góðar Forráðamenn stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður í efnahagslífinu almennt góðar. Þetta kemur fram í nýrri könnun IMG Gallup um stöðu og horfur stærstu fyrirtækja á Íslandi. 75 prósent aðspurðra telja aðstæðurnar góðar en um 11 prósent telja þær slæmar. 27.3.2006 10:36
Harður árekstur varð rétt ofan við Höfðabakka og Gullinbrú Harður árekstur varð rétt ofan við gatnamótin á Höfðabakka og Gullinbrú rétt fyrir klukkan níu í morgun. Bifreið var ekið aftan á aðra með þeim afleiðingum að sú tókst á loft, lenti á tré og þaðan á kyrrstæðan bíl sem var lagt á bílastæði ofan við götuna. Bifreiðin endaði síðan fór sína á grjótgarði sem aðskilur bílastæðið og götuna. Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar áverka en tveir bílanna eru ónýtir. 27.3.2006 09:54
Ófært á Norðurlandi Veðurstofan tilkynninr að greiðfært sé um Suður- og Vesturland en éljagangur er á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er búið að moka Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði, Klettsháls og Steingrímsfjarðarheiði en þar er hálkublettir og skafrenningur. 27.3.2006 09:47
Jan Eliasson skipaður í embætti utanríkisráðherra Svíþjóðar Jan Eliasson hefur verið skipaður í embætti utanríkisráðherra Svíþjóðar, viku eftir að Laila Freivalds hætti sem ráðherra fyrir sex dögum. Afsögn hennar kom eftir hatrammar deilur um vefsíðu sem var lokað eftir að hafa birt skopmyndir af spámanninum Múhammeð. 27.3.2006 08:49
Albert Jónsson næsti sendiherra Íslands í Bandaríkjunum? Albert Jónsson, sem var ráðgjafi Davíðs Oddssonar um árabil, einkum í öryggismálum, og Davíð skipaði sendiherra undir lok utanríkisráðherratíðar sinnar, verður að öllum líkindum næsti sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. 27.3.2006 07:55
Kosningabaráttunni í Ísrael lauk formlega í gær Kosningabaráttan í Ísrael kláraðist formlega í gær. Þingkosningarnar verða haldnar á morgun, en frambjóðendum er bannað að auglýsa eða vera með áróður daginn fyrir kosningarnar. 27.3.2006 07:25
Snarpur jarðskjálfti í suðurhluta Japans Snarpur jarðskjálfti upp á fimm komma fimm á Richter skók suðurhluta Japans í morgun. Skjálftinn stóð yfir í um fimmtán sekúndur, en olli samt ekki miklum usla. 27.3.2006 07:23
Bandaríkjamenn fækka verulega í herliði sínu í Írak Bandaríkjamenn munu fækka verulega í herliði sínu í Írak á árinu ef allt gengur að óskum. Þetta sagði Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í sjónvarpsþættinum ,,Meet the Press" í gær. 27.3.2006 07:21
Saka bandaríska herinn um að hafa drepið tuttugu óvopnaða menn Írakskir stjórnmálamenn saka bandaríska herinn um að hafa drepið tuttugu óvopnaða menn við bænir í mosku sjía í Baghdad í gær. Talsmaður Bandaríkjahers neitar þessu með öllu. 27.3.2006 07:20
Skrölti af vettvangi með aðeins þrjú hjól undir bílnum Maður sem olli hörðum árekstri í Keflavík í fyrrinótt, en tókst að skrölta af vettvangi þó aðeins þrjú hjól væru eftir undir bílnum, gaf sig fram við lögregluna í gærkvöldi. 27.3.2006 07:17
300 manns á biðlista Þó að fylgikvillar offitu kosti samfélagið milljarða króna á ári er hún ekki eitt af forgangsverkefnum í heilbrigðisáætlun til ársins tvö þúsund og tíu. Þrjú hundruð manns bíða eftir meðferð vegna offitu á Reykjalundi. Biðlistinn lengist stöðugt og meira en tvö ár geta liðið þangað til fólk kemst að. 26.3.2006 19:00
Um tuttugu tegundir á hundasýningu Íshunds Það var líf og fjör á alþjóðlegri hundasýningu hjá hundaræktunarfélaginu Íshundi nú um helgina. Þær voru ekki ófáar fyrirsæturnar og þær kunna svo sannarlega að meta athyglina. 26.3.2006 18:45
Appelsínugula byltingin á enda? Andstæðingar appelsínugulu byltingarinnar virðast hafa sigrað í þingkosningunum í Úkraínu í dag. Sextán mánuðum eftir sögulegan sigur Viktors Júsjenkó, finnst íbúum Úkraínu lítið hafa áunnist og umbætur gengið allt of hægt. 26.3.2006 18:45
Æfingu lokið Bergrisanum 2006 lauk kl. 15.30 í dag. Á milli 1400 og 1500 manns; íbúar, stjórnendur og viðbragðsaðilar tóku þátt í æfingunni um helgina. Á næstunni munu viðbragðsaðilar og stjórnendur rýna æfinguna og nýta niðurstöður þeirra vinnu til endurbóta á neyðarskipulagi vegna eldgosa í Mýrdalsjökli. 26.3.2006 18:00
Fjölmenni á stofnfundi AFA Fjölmenni var á stofnfundi AFA, Aðstandendafélags aldraðra í Hafnarfirði í dag. Heilbrigðisráðherra segir vitundarvakningu hafa orðið í málefnum aldraðra. 26.3.2006 17:53
Rótahátíð í Menntaskólanum á Ísafirði Rótahátíð var haldin í Menntaskólanum á Ísafirði í dag til að fagna fjölbreytileika í samfélaginu. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum alþingismaður, ráðherra og skólameistari MÍ setti hátíðina formlega í dag klukkan eitt. 26.3.2006 16:09
Áætlunarflug British Airways til Íslands er hafið. Þota félagsins, af gerðinni Boeing 737-400, lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun með 66 farþega og tók til baka með 78 manns til Gatwick-flugvallar í London. 26.3.2006 16:07
Drap sex og svo sjálfan sig Gleðskapur ungmenna í Seattle í Bandaríkjunum breyttist í martröð í gær, þegar einn samkvæmisgestanna hóf skothríð með þeim afleiðingum að sex týndu lífi. Þegar lögregla kom á staðinn skaut hann sjálfan sig í höfuðið. 26.3.2006 12:12
Sjálstæðismenn með vísan meirihluta Sjálfstæðismenn ættu næstan vísan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðaðið birtir í dag. Samfylkingin fengi fimm borgarfulltrúa og Vinstri grænir einn. Framsóknarflokkurinn mælist minnstur flokka í Reykjavík, og nær ekki inn manni frekar en Frjálslyndir, sem þó bæta við sig fylgi. 26.3.2006 12:00
Flestar leiðir færar Skafrenningur og þæfingur er víða á vegum um landið en þó eru flestar leiðir færar. Á Vestfjörðum er þæfingur á Dynjandisheiði og jeppaslóð er yfir Hrafnseyararheiði. Skafrenningur er á heiðum á Vestfjörðum. Á Norðurlandi er víða éljagangur og skafrenningur en helstu leiðir eru færar. 26.3.2006 11:55
Skotar geta ekki lengur fengið sér smók þegar þeir kíkja á barinn Skotar geta ekki lengur fengið sér smók þegar þeir kíkja á barinn. Frá og með deginum í dag verða reykingar bannaðar á nánast öllum opinberum stöðum í Skotlandi, meðal annars öllum kaffihúsum og krám. 26.3.2006 10:07
Rólegt á götum Minsk í Hvíta Rússlandi í morgun Það var rólegt á götum Minsk í Hvíta Rússlandi í morgun, þar sem átök brutust út í gær, þegar þúsundir manna mótmæltu framkvæmd nýafstaðinna forsetakosninga í landinu. 26.3.2006 10:06
Úkraínumenn kjósa til þings í dag Úkraínumenn kjósa til þings í dag, í fyrsta sinn eftir appelsínugulu byltinguna í desember 2004. Þá komst Viktor Júsjenkó til valda, eftir hatramma kosningabaráttu, þar sem honum var meðal annars byrlað eitur. 26.3.2006 10:05
Par handtekið í nótt á rölti með eins árs gamalt barn sitt í vagni Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt ölvað par á gangi með eins árs gamalt barn sitt í vagni, að sögn lögreglu var fólkið í mjög ölvað og verður það yfirheyrt þegar það verður búið að sofa úr sér. 26.3.2006 09:26
Stjórnvöldum ber að fara sér hægt Forstjóri Vinnumálastofnunar segir íslensk stjórnvöld eiga að fara sér hægt í að opna fyrir frjálsa för fólks frá hinum nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins. Ráðamenn þurfa að taka ákvörðun fyrir 1. maí um það hvernig verði að málunum staðið. 25.3.2006 18:45
26.grein stjórnarskrárinnar þarf að endurskoða Fræðimenn eru ekki sammála um hvort halda skuli synjunarvaldi forsetans til haga í endurskoðaðri stjórnarskrá. Þeir virðast þó vera á einu máli, um að ef synjunarvaldið verði áfram til staðar, þá verði að eyða óvissu um hvernig því skuli beitt. Þetta kom fram á málþingi í dag um forsetaembættið og stjórnarskrána í sögulegu ljósi. 25.3.2006 18:19
Danske bank sökkti Færeyjum Danske Bank lék ekki einvörðungu stóra rullu í hruni hagkerfis Færeyinga 1990 heldur naut bankinn aðstoðar danskra stjórnmálamanna við að flýja landið þegar allt var að komast í kalda kol, segir Högni Hoydal, þingmaður Færeyja á danska þjóðþinginu.Bankinn kom þó ekki upplýsingum á framfæri sem kafsigldu hagkerfið eins og Halldór Ásgrímsson hélt fram í fréttum NFS í gærkveldi. 25.3.2006 18:16
Greiningardeild Glitnis spáir 6% verðbólgu í maí Verðbólgan mun mælast sex prósent í maí gangi spáin greinindardeildar Glitnis eftir. Verðbólgan verður þá nokkuð yfir efri þolmörkum Seðlabankans, sem eru fjögur prósent, og hvergi nærri verðbólgumarkmiði bankans sem er tvö komma fimm prósent. Litlar líkur eru taldar á að verðbólgan fari undir efri þolmörk Seðlabankans í bráð. 25.3.2006 16:02
Bankakreppulykt frá Íslandi segir Berlingske Hlutabréf í íslensku bönkunum eru á brunaútsölu og bankakreppulykt leggur frá Íslandi. Þannig lýsir danskur hagfræðiprófessor ástandinu hér á landi í danska dagblaðinu Berlinske Tidende í dag. Fjárfestar sjá rautt, segir í fyrirsögn fréttarinnar. 25.3.2006 12:33