Enski boltinn

Wheater nennir ekki að skutla Eiði Smára á æfingar lengur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
David Wheater, miðvörður Bolton í ensku B-deildinni, telur Eið Smára Guðjohnsen vera manninn sem getur komið liðinu upp töfluna, en það er tíu stigum frá umspilssæti eftir 22 umferðir.

Eiður spilaði sinn fyrsta leik fyrir Bolton í fjórtán ár á laugardaginn þegar liðið gerði jafntefli við Ipswich og fékk fína dóma fyrir sína frammistöðu.

Sjá einnig: Bolton News:Eiður Smári verður bjargvættur liðsins

Wheater spilaði sjálfur fyrsta leikinn í langan tíma eftir meiðsli, en miðvörðurinn stóri hefur séð um Eið Smára þær vikur sem hann hefur verið hjá félaginu.

„Ég hef séð um hann; opnað fyrir hann dyr og gefið honum kvöldmat og fleira í þeim dúr,“ segir Wheater í viðtali við Bolton News.

„Hann hefur verið frábær. Hann er rosalega leikreyndur eftir að spila með Barcelona og Lionel Messi og þannig mönnum. Hvað getur maður gert?“

David Wheater.vísir/getty
Bolton hefur verið að rétta úr kútnum undanfarnar vikur og er ósigrað í síðustu sjö leikjum. Liðið byrjaði hræðilega í deildinni undir stjórn Dougie Freedman og fékk aðeins fimm stig í fyrstu ellefu umferðunum.

„Það er gott að við getum fengið svona hæfileikaríkan leikmann. Ef hann hefði komið fyrirn okkrum vikum hefði hann kannski ekki viljað skrifa undir,“ segir Wheater.

„En nú eru æfingarnar góðar og stjórinn kemur mjög vel fram við alla. Okkur líður öllum betur og vonandi þýðir það að við förum að vinna leiki.“

Sjá einnig:Lennon var ánægður með Eið

Miðvörðurinn stóri vill þó fara að losna undan skyldum sínum að skutla Eiði Smára á æfingar og heim aftur.

„Ég vil að hann fari að fá sér bíl. Hann getur gert mig brjálaðan stundum. Hann hlustar á sömu tónlist og ég sem er fínt, en stundum talar hann íslensku í símann þannig ég þarf að sitja og þegja kannski í fimm mínútur.“

Eftir að Eiður Smári spilaði með Bolton síðast frá 1998-2000 vann hann tvo Englandsmeistaratitla með Chelsea, Spánarmeistaratitil með Barcelona og varð Evrópumeistari með Börsungum. Hann vill þó lítið ræða fortíðina við leikmenn Bolton.

„Ég hef reynt að fá eitthvað út úr honum með þetta. Ég spurði hvort hann hefði búið nálægt Messi og hvort ég fengi heimboð næsta sumar,“ segir Wheater.

„Hann talar eiginlega ekkert um þetta. Ég hef reynt að fá hann til að tala um Messi og Chelsea en hann segir ekki mikið. Eiður vill bara einbeita sér að Bolton.“

„Ég held að Eiður sé bara hógvær. En ef einhver verður með stæla hendir hann bara Meistaradeildarverðlaununum í viðkomandi,“ segir David Wheater.


Tengdar fréttir

Eiður sneri aftur | Myndband

Eiður Smári Guðjohnsen lék sinn fyrsta leik fyrir Bolton Wanderers í 14 ár þegar hann kom inn á sem varamaður í markalausu jafntefli gegn Ipswich á Macron Stadium.

Lennon var ánægður með Eið

Neil Lennon, knattspyrnustjóri Bolton Wanderers, var ánægður með innkomu Eiðs Smára Guðjohnsen í markalausu jafntefli gegn Ipswich Town í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×