Sport

Heims- og Ólympíumeistari lenti í á­rekstri og getur ekki æft

Andri Broddason skrifar
Tara Davis-Woodhall ætlar að taka sinn tíma í að ná sér eftir áreksturinn.
Tara Davis-Woodhall ætlar að taka sinn tíma í að ná sér eftir áreksturinn. Mustafa Yalcin/Getty Images

Ólympíu- og heimsmeistarinn Tara Davis-Woodhall segist vera heppin að sleppa við stórvægileg meiðsl eftir árekstur sem hún lenti í. Hún hefur ekki getað æft eftir áreksturinn og ekki er vitað hvenær hún mun keppa aftur.

Tara Davis-Woodhall er bandarískur langstökkvari og vann gullverðlaun á Ólympíuleikunum í París árið 2024 og fékk einnig gullverðlaun á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum árið eftir.

Hún tjáði sig um árekstur sem hún lenti í en ekki var tekið fram hvenær hún lenti í árekstrinum. Í færslunni minntist hún á Ultimate Championships frjálsíþróttamótið sem haldið verður í næstu viku en hún efast um að hún muni ná að keppa á því.

Davis-Woodhall slapp við stórvægileg meiðsli í árekstrinum en hún fékk alvarlegan heilahristing sem hefur haldið henni frá æfingum. Hún segist vera að vinna mikið með læknum til að ná fullum bata og virðist hún ekki ætla að taka neinar áhættur með heilsuna sína.

Í færslu á Instagram deilir hún myndbandi af árekstrinum þar sem sést að annar bíll einfaldlega beygir fyrir hennar bíl og veldur árekstrinum. Einnig deildi hún myndum af skrámum á hendinni sinni sem hún fékk við áreksturinn.

Áreksturinn hefur reynst henni andlega erfiður og er það eitthvað sem hún þarf að vinna í áður en hún getur farið að keppa á fullu aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×