Erlent

Stúlkur eyða fjörutíu prósent meiri tíma í heimilisstörf en drengir

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Vinnustundirnar sem stúlkurnar vinna umfram strákana eru 160 milljónir.
Vinnustundirnar sem stúlkurnar vinna umfram strákana eru 160 milljónir. vísir/epa
Stúlkur eyða fjörutíu prósent meiri tíma í ólaunuð störf heima fyrir en drengir á heimsvísu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Skýrsluhöfundar segja að vinnustundirnar sem stúlkur vinna umfram drengi á heimsvísu séu 160 milljónir á hverjum degi, en stelpur eyða allt að 550 milljónum klukkustunda í heimilisstörf daglega.

Vinnustundum fjölgar eftir því sem stúlkurnar eldast. Stúlkur á aldrinum fimm til níu ára eyða að meðal tali fjórum klukkustundum á viku í heimilisstörf og stúlkur tíu til fjórtán ára um níu klukkustundum. Þessar tölur eru þó allt að tvöfalt hærri í sumum löndum.

Tvær af hverjum þremur stúlkum í heiminum elda og þrífa heimilin og helmingur þeirra sækir vatn fyrir fjölskylduna. Auk þess mæðir mun meira á þeim þegar kemur að því að líta eftir yngri systkinum eða eldri fjölskyldumeðlimum.

Skýrsluhöfundar telja þetta geta komið niður á upplifun stúlknanna af barnæsku. Þær fái minni tíma til að leika sér með öðrum börnum sem og minni tíma til að einbeita sér að námi. Þá sé verið að leggja of mikla ábyrgð á litlu stúlkurnar með að láta þær hugsa um lítil börn eða fullorðna. Jafnframt segir að verkefni á borð við að láta stelpurnar sækja vatn eða eldivið geti aukið líkur á að þær verði fyrir kynferðisofbeldi.

Ástandið er allra verst í Sómalíu en þar vinna stúlkur á aldrinum 10 til 14 ára 26 tíma á viku við ólaunuð heimilisstörf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×