Erlent

Danskur ráðherra viðurkennir að vera lesblindur

Anton Egilsson skrifar
Karsten Lauritzen
Karsten Lauritzen Vísir/Getty
Karsten Lauritzen, skattamálaráðherra Danmerkur, kom öllum á óvart þegar hann viðurkenndi í viðtali við danska ríkissjónvarpið að hann væri lesblindur. 

Ákvað hann að greina frá lesblindu sinni eftir að fólk fór meira og meira að setja út á stafsetningavillur hans á samfélagsmiðlum. Hann segist alla tíð hafa átt erfitt með að lestur og stafsetningu.

Hann segist sár yfir því að fólk setti samasemmerki milli þess að maður geti ekki stafað og maður sé heimskur. Hann segir það hvorki sanngjarnt gagnvart honum sjálfum né gagnvart öllum þeim dönum sem búa við sömu vandamál og hann sjálfur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×