Rooney getur keypt einn Range Rover á dag eftir launahækkunina 21. febrúar 2014 16:45 Range Rover Evoque er myndarlegur bíll.
Wayne Rooney er búinn að gera nýjan fimm og hálfs árs samning við Manchester United, samkvæmt frétt BBC fyrr í dag. Þar með er ljóst að enski landliðsframherjinn verður ekkert á neinum sultarlaunum til ársins 2019. Rooney fær 300 þúsund pund í vikulaun eða 57 milljónir íslenskra króna. Hann er því með meira en átta milljónir í laun fyrir hvern dag næstu 66 mánuði. Rooney er mikill aðdáandi Range Rover-jeppa og til að setja launin í eitthvað samhengi þá getur framherjinn keypt sér glænýjan Range Rover Evoque á hverjum degi til ársins 2019. Hann ætti þó reyndar ekki mikið eftir fyrir eldsneyti. Sem er synd. Venjulegur vinnandi maður á Íslandi skilar um 40 tíma vinnuviku og ef við yfirfærum laun Rooney á slíka vinnskyldu þýðir það að hann er að að fá 1,4 milljónir á tímann. Til viðmiðs má benda á að regluleg laun fullvinnandi launamanna á Íslandi voru 402.000 krónur að meðaltali árið 2012, samkvæmt launakönnun Hagstofu Íslands. Þannig má heimfæra að hver vinnandi launamaður hafi verið með um 2.300 krónur á tímann. Laun Wayne Rooney eru ekki nema fimm hundruð sinnum hærri. Ótrúlegar tölur. Vinnuskylda Wayne Rooney er hinsvegar mun minni, ein til tvær æfingar á dag og einn til tveir leikir í viku.
Enski boltinn Tengdar fréttir Wayne Rooney búinn að semja - fær 57 milljónir á viku Wayne Rooney, framherji Manchester United, er búinn að skrifa undir nýjan risasamning við Englandsmeistaranna. 21. febrúar 2014 12:47 Mest lesið Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn Ronaldo trúlofaður Fótbolti „Dóri verður að hætta þessu væli“ Íslenski boltinn Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Sport Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Enski boltinn Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Enski boltinn Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Íslenski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Sport Fleiri fréttir Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Sjá meira
Wayne Rooney búinn að semja - fær 57 milljónir á viku Wayne Rooney, framherji Manchester United, er búinn að skrifa undir nýjan risasamning við Englandsmeistaranna. 21. febrúar 2014 12:47