Enski boltinn

Gylfi hættulegastur á fyrstu 50 mínútunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að gefa sjö stoðsendingar í fyrstu tíu umferðum ensku úrvalsdeildarinnar og er í öðru sæti á eftir Chelsea-manninum Cesc Fàbregas sem hefur lagt upp níu mörk félaga sinna.

Á heimasíðu ensku úrvalsdeildarinnar má sjá sundurgreiningu á þessum stoðsendingum Gylfa og þar er athyglisvert að sex af sjö stoðsendingum hans hafa komið á fyrstu 50 mínútum leikjanna.

Eina stoðsendingin sem sker sig úr er stoðsending Gylfa á Nathan Dyer í 3-0 sigrinum á West Bromwich Albion en sú kom ekki fyrr en á 71. mínútu leiksins.

Það er einnig fróðlegt að sjá það að allar sjö stoðsendingar Gylfa hafa komið frá miðjum vellinum en ekki út á kanti. Hann hefur lagt upp 3 mörk fyrir Nathan Dyer, gefið tvær stoðsendingar á Wilfried Bony og eina á þá Sung-Yong Ki og Wayne Routledge.

Stoðsendingar Gylfa í ensku úrvalsdeildinni 2014-15 eftir leiktíma:

1. til 10. mínúta    1

11. til 20. mínúta    1

21. til 30. mínúta    2

31. til 40. mínúta    1

41. til 50. mínúta    1

51. til 60. mínúta    0

61. til 70. mínúta    0

71. til 80. mínúta    1

81. til 90. mínúta    0


Tengdar fréttir

Gylfi lagði upp mark Bony | Sjáðu mörkin

Gylfi Þór Sigurðsson átti sendinguna á Bony sem kom Swansea yfir á heimavelli gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í síðdegisleik dagsins.

Messan: Gylfi heldur áfram að gefa og gefa

Guðmundur Benediktsson og félagar hans í Messunni fóru yfir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær og auðvitað kom okkar maður, Gylfi Þór Sigurðsson, þar við sögu.

Blæddi inn á nárann hjá Gylfa

Gylfi Þór Sigurðsson var ekki með Swansea þegar liðið tapaði á móti Liverpool í enska deildabikarnum í vikunni en íslenski landsliðsmaðurinn fór meiddur af velli á móti Leicester í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Gylfi er að glíma við meiðsli í nára og gæti misst af leik velska liðsins um næstu helgi.

Gylfi fann fyrir náranum fyrir leikinn

"Hann er mjög teknískur og getur sent boltann á mig hvenær og hvar sem er,“ sagði Wilfried Bony um hvernig sé að leika með Gylfa Þór Sigurðssyni hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×