Ekki gerst síðan í fyrsta leik Rooney - Hver er þessi Wilson? | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2014 21:54
Hinn 18 ára gamli James Wilson sló í gegn í kvöld í sínum fyrsta leik í búningi Manchester United en hann skoraði þá tvö mörk í 3-1 sigri á Hull í síðasta heimaleik Manchester United á Old Trafford á leiktíðinni. Mörkin fjögur úr leiknum á Old Trafford í kvöld sjást hér í myndbandinu hér fyrir ofan. James Wilson varð fyrsti leikmaður Manchester United í tæp tíu ár til þess að skora meira en eitt mark í sínum fyrsta leik fyrir félagið eða síðan að Wayne Rooney skoraði þrennu í sínum fyrsta leik á móti Fenerbahce haustið 2004. Ryan Giggs henti James Wilson beint í byrjunarliðið og hann var fremsti maður liðsins en tveir af þremur leikmönnum fyrir aftan hann voru einnig táningar. Tom Lawrence og Adnan Januzaj fengu nefnilega einnig tækifæri í byrjunarliðinu í kvöld. Lawrence var spila sinn fyrsta leik en Adnan Januzaj kom inn í liðið á síðasta tímabili. James Wilson verður ekki 19 ára fyrr en seint á árinu en hann var meðal varamanna liðsins í 4-0 sigri á Newcastle í síðasta mánuði. Hann varð í kvöld fjórði yngsti markaskorari félagsins í ensku úrvalsdeildinni en hann er 18 ára, 5 mánaða og 5 daga í dag. Wilson hefur staðið sig mjög vel með 21 árs liði Manchester United á leiktíðinni þar sem hann skoraði 7 mörk í 9 leikjum og hefur einnig spilað fyrir bæði 16 ára og 19 ára landslið Englands. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann skorar í sínum fyrsta leik með liði Manchester United því hann skoraði einnig í fyrsta leik sínum með 18 ára liði félagsins þá aðeins fimmtán ára. Ryan Giggs hrósaði James Wilson eftir leik og talaði um að hann þarna væri mjög spennandi leikmaður sem væri ekki aðeins góður markaskorari.Fyrra markið.Vísir/GettySeinna markið.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
Enski boltinn Tengdar fréttir Átján ára nýliði með tvö mörk í sigri Manchester United | Myndband Manchester United vann 3-1 sigur á Hull City á Old Trafford í kvöld í síðasta heimaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og mögulega 963. og síðasta leik Ryan Giggs fyrir félagið. 6. maí 2014 18:15 Wilson skoraði í fyrsta leiknum sínum á Old Trafford - myndband Hinn 18 ára gamli James Wilson var ekki lengi að skora í sínum fyrsta leik með aðalliði Manchester United en hann fékk tækifærið í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 6. maí 2014 19:27 Giggs skipti sjálfum sér inn á völlinn - myndband Ryan Giggs, starfandi knattspyrnustjóri Manchester United, lék væntanlega sinn síðasta leik fyrir félagið í kvöld þegar hann kom inn á sem varamaður í síðasta heimaleik tímabilsins á móti Hull í ensku úrvalsdeildinni. 6. maí 2014 20:19 Giggs gaf ekkert upp um framtíð sína í þakkarræðu eftir leik Ryan Giggs stýrði Manchester United til 3-1 sigurs á Hull í kvöld í síðasta heimaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en það sem meira er hann skipti sjálfum sér inn á völlinn tuttugu mínútum fyrir leikslok í hugsanlega síðasta leik sínum í búningi United. Eftir leikinn hélt hann þakkaræðu á miðju vallarins alveg eins og Sir Alex Ferguson fyrir ári síðan. 6. maí 2014 21:21 Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn Fleiri fréttir Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Kom stjórnendum Liverpool á óvart hversu harðorður Salah var Scholes segir félagið eyðileggja Mainoo Búist við að Salah verði hent úr hóp Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Sjáðu markið sem West Ham-menn sáu tvær ástæður til að dæma af Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Landsliðsmaður handtekinn í London Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Guéhi hetjan og Palace upp í fjórða sæti Hópslagsmál á vellinum: „Áður en ég vissi af flugu hnefar út um allt“ Hömrunum heitt í hamsi eftir dramatík Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Karólína lagði upp en Hlín meiddist Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Kominn með nóg og vill fara frá United Fyrrum eigandi Liverpool látinn Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Sjáðu mörkin: Guimaraes beint úr horni, dramatík hjá Liverpool og öll hin Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot „Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ Hádramatík í sex marka leik Aftur aflýst hjá Andra vegna bleytu Everton í fimmta sæti og langþráður sigur Spurs Varnarmenn City í stuði og aðeins tvö stig í Arsenal Þriðji í röð án sigurs hjá Chelsea Salah enn á bekknum Hádramatík í lokin á Villa Park Hagaði sér eins og MMA-bardagahetja í fótboltaleik Sjá meira
Átján ára nýliði með tvö mörk í sigri Manchester United | Myndband Manchester United vann 3-1 sigur á Hull City á Old Trafford í kvöld í síðasta heimaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og mögulega 963. og síðasta leik Ryan Giggs fyrir félagið. 6. maí 2014 18:15
Wilson skoraði í fyrsta leiknum sínum á Old Trafford - myndband Hinn 18 ára gamli James Wilson var ekki lengi að skora í sínum fyrsta leik með aðalliði Manchester United en hann fékk tækifærið í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 6. maí 2014 19:27
Giggs skipti sjálfum sér inn á völlinn - myndband Ryan Giggs, starfandi knattspyrnustjóri Manchester United, lék væntanlega sinn síðasta leik fyrir félagið í kvöld þegar hann kom inn á sem varamaður í síðasta heimaleik tímabilsins á móti Hull í ensku úrvalsdeildinni. 6. maí 2014 20:19
Giggs gaf ekkert upp um framtíð sína í þakkarræðu eftir leik Ryan Giggs stýrði Manchester United til 3-1 sigurs á Hull í kvöld í síðasta heimaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en það sem meira er hann skipti sjálfum sér inn á völlinn tuttugu mínútum fyrir leikslok í hugsanlega síðasta leik sínum í búningi United. Eftir leikinn hélt hann þakkaræðu á miðju vallarins alveg eins og Sir Alex Ferguson fyrir ári síðan. 6. maí 2014 21:21