Þéttasta vörnin í deildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. september 2014 06:30 Brad Guzan hefur haldið hreinu í þremur af fjórum leikjum Aston Villa í úrvalsdeildinni. Vísir/Getty
Stuðningsmenn Aston Villa hafa ekki haft margt til að gleðjast yfir síðustu ár. Eftir að hafa lent í 6. sæti þrjú tímabil í röð undir stjórn Martins O‘Neill og gert atlögu að Meistaradeildarsæti hefur heldur betur hallað undan fæti hjá félaginu. Fyrir tímabilið var ekki búist við miklu af Villa, en Randy Lerner, eigandi félagsins, setti það á sölu eftir síðasta tímabil og enn sem komið er hefur ekki fundist kaupandi. Knattspyrnustjóri Villa, Paul Lambert, þótti einnig sitja í einu heitasta sætinu í úrvalsdeildinni. Sú ákvörðun að fá Roy Keane, fyrrverandi fyrirliða Manchester United, sem aðstoðarþjálfara kom mörgum á óvart, en síðustu ár hefur það færst í vöxt að aðstoðarþjálfarar eða aðrir meðlimir í þjálfaraliðinu taki við þegar knattspyrnustjórar liða á Englandi eru reknir. Það verður allavega einhver bið á því að Keane taki við, hafi hann hug á því. Eftir fjórar umferðir situr Villa í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar með tíu stig eftir fjóra leiki. Villa byrjaði tímabilið á 0-1 útisigri á Stoke, gerði svo markalaust jafntefli við Newcastle United á heimavelli og í síðasta leik fyrir landsleikjahléið bar Villa sigurorð af Hull City með tveimur mörkum gegn einu. Og á laugardaginn, í fyrsta leik eftir landsleikjahléið, fór Villa á Anfield Road og vann mjög svo óvæntan sigur á Liverpool. Gabriel Agbonlahor skoraði eina mark leiksins eftir hornspyrnu á 9. mínútu. Liverpool var mun meira með boltann í leiknum og sótti stíft, en vörn Villa var þétt og liðið gaf fá færi á sér þrátt fyrir að Ron Vlaar, besti varnarmaður liðsins, væri ekki með vegna meiðsla. Lærisveinar Lamberts sluppu reyndar með skrekkinn þegar skot Philippes Coutinho small í stönginni á 80. mínútu, en fyrir utan það sköpuðu leikmenn Liverpool sér ekki mörg góð færi. Villa hefur haldið hreinu í þremur af fjórum leikjum liðsins í úrvalsdeildinni sem er lykilinn að velgengninni. Spennandi verður að sjá hversu lengi þetta góða gengi heldur áfram, en stuðningsmenn hafa allavega fengið ástæðu til að brosa eftir langt hlé
Enski boltinn Tengdar fréttir Aston Villa sótti sigur á Anfield Aston Villa lyfti sér upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þegar liðið lagði Liverpool 1-0 á útivelli í kvöld. 13. september 2014 00:01 Cleverley fékk nóg af stuðningsmönnum Manchester United Tom Cleverley sem á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Manchester United telur fullvíst að hann muni ekki snúa aftur á Old Trafford þegar lánssamningi hans hjá Aston Villa lýkur. 12. september 2014 09:00 Aston Villa enn taplaust eftir sigur á Hull | Úrslit dagsins Góð byrjun Aston Villa á tímabilinu hélt áfram í dag með 2-1 sigri á Hull City Tigers á heimavelli. Aston Villa er því áfram taplaust eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins. 31. ágúst 2014 00:01 Cleverley lánaður frá United til Villa Félagaskiptin gengu í gegn löngu eftir að búið var að loka glugganum. 2. september 2014 15:35 Mörkin úr leikjum laugardagsins | Myndband Átta leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni sem hófst á ný í gær eftir landsleikjahlé. 14. september 2014 11:03 Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira
Aston Villa sótti sigur á Anfield Aston Villa lyfti sér upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þegar liðið lagði Liverpool 1-0 á útivelli í kvöld. 13. september 2014 00:01
Cleverley fékk nóg af stuðningsmönnum Manchester United Tom Cleverley sem á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Manchester United telur fullvíst að hann muni ekki snúa aftur á Old Trafford þegar lánssamningi hans hjá Aston Villa lýkur. 12. september 2014 09:00
Aston Villa enn taplaust eftir sigur á Hull | Úrslit dagsins Góð byrjun Aston Villa á tímabilinu hélt áfram í dag með 2-1 sigri á Hull City Tigers á heimavelli. Aston Villa er því áfram taplaust eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins. 31. ágúst 2014 00:01
Cleverley lánaður frá United til Villa Félagaskiptin gengu í gegn löngu eftir að búið var að loka glugganum. 2. september 2014 15:35
Mörkin úr leikjum laugardagsins | Myndband Átta leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni sem hófst á ný í gær eftir landsleikjahlé. 14. september 2014 11:03