Messan: Moyes verður rekinn komist United ekki áfram
„Það væri óeðlilegt ef hann færi ekki. Hann yrði látinn fara á fimmtudag eða föstudag - aldrei látinn klára tímabilið. Það er bara allt undir hjá David Moyes á miðvikudaginn.“
„Þessum leik á miðvikudaginn má líkja við leikinn sem Ferguson fékk á móti Nottingham Forest árið 1990. Hann fékk bara úrslitaleik upp á starfið sitt. Moyes verður bara að gjöra svo vel og vinna þennan leik á miðvikudaginn þrjú eða fjögur núll,“ sagði Hjörvar.
Gummi Ben spurði þá Hjörvar hvort það eitt að komast í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar bjargi starfi hans.
„Ég held að það muni bjarga alveg ofboðslega miklu. David Moyes er ekkert stóra vandamálið - eða eina vandamálið,“ sagði Hjörvar og listaði svo upp fjölmörg vandræði Englandsmeistaranna.
Þessar líflegu umræður í Messu gærkvöldsins má sjá í spilaranum hér að ofan en BjarniGuðjónsson var ekki alveg sammála Hjörvari.
Tengdar fréttir

Olympiakos meistari í Grikklandi
Olympiakos varð í gærkvöldi Grikklandsmeistari fjórða árið í röð eftir 2-0 sigur á Panthrakikos á heimavelli sínum.

Hver var bestur? - Hver skoraði flottasta markið? | Allt inn á Vísi
Þeir sem misstu af enska boltanum um helgina eða vilja bara horfa á það helsta aftur þá er hægt að fá flott yfirlit inn á Vísi. Eins og vanalega er nefnilega hægt að finna margskonar samantektir eftir hverja umferð ensku úrvalsdeildarinnar inn á Sjónvarpsvefnum á Vísi.

Messan: Niðurlægjandi stund fyrir Manchester United
Liverpool er einfaldlega með betra lið en Englandsmeistarar Manchester United. Breytingin er ótrúleg á Liverpool-liðinu á milli ára.

Vilji fyrir því hjá Man. Utd að reka David Moyes
Stjórnarmenn snúast gegn Skotanum eftir dapurt gengi á tímabilinu en framtíð hans gæti ráðist í næstu leikjum.

Fellaini: Moyes þarf að fá tíma
Belginn stendur með sínum manni og þakkar Moyes fyrir allt sem hann hefur gert fyrir sig.

Rooney: Þetta var martröð
Wayne Rooney, framherji Manchester United, lýsti 0-3 tapinu á móti Liverpool á Old Trafford i gær, sem einni af verstu stundunum á ferlinum.

Tíu ár þar til United vinnur titilinn aftur
Endurbyggingin á Old Trafford gæti tekið sinn tíma að mati fyrrverandi landsliðsmanns Englands í knattspyrnu.

Eitt skot United á rammann
Manchester United var yfirspilað í leiknum gegn Liverpool í dag og átti aðeins eitt skot á markið í leiknum.

Liverpool valtaði yfir Man. Utd á Old Trafford
Liverpool vann frækinn sigur, 0-3, á Man. Utd á Old Trafford í dag. Sanngjarn sigur og það endanlega staðfest að Liverpool er með betra lið en Man. Utd í dag. Liverpool er enn í titilbaráttu. Komið í annað sætið og er aðeins fjórum stigum á eftir Chelsea og á leik til góða.

Mata: Sólin mun rísa á ný
Juan Mata, leikmaður Manchester United, reyndi að hughreysta stuðningsmenn félagsins í bloggi sínum á Grada 360 en liðið tapaði 0-3 á heimavelli í gær á móti erkifjendunum í Liverpool.