Enski boltinn

Mata: Sólin mun rísa á ný

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Juan Mata, leikmaður Manchester United, reyndi að hughreysta stuðningsmenn félagsins í bloggi sínum á Grada 360 en liðið tapaði 0-3 á heimavelli í gær á móti erkifjendunum í Liverpool.

„Storminn mun lægja og sólin mun rísa á ný," skrifaði Juan Mata en Manchester United er nú tólf stigum frá Meistaradeildarsæti þegar níu umferðir eru eftir.

„Ég verð reiður þegar ég hugsa um leikinn í gær og þá staðreynd að hafi náð að gefa ykkur það sem þið eigið skilið. Ég veit samt að það er ekkert sem ég get sagt í dag til að láta ykkur líða betur en í það minnsta vitið þið núna hvernig mér líður," skrifaði Mata.

Juan Mata hefur spilað sjö leiki í ensku úrvalsdeildinni síðan að hann kom til United frá Chelsea. Mata lagði upp mark í fyrstu þremur leikjunum en hefur núna spilað í 352 mínútur án þess að koma að marki.

Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum með því að smella hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×