Enski boltinn

Rólegt á Old Trafford í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
David Moyes, stjóri Manchester United, hefur útilokað að félagið muni kaupa leikmenn í dag. Þá er Shinji Kagawa ekki á förum.

Lokað verður fyrir félagaskipti í Englandi klukkan 23.00 í dag en Moyes sagði á blaðamannafundi í dag að félagið myndi ekki standa í neinum viðskiptum fyrir þann tíma.

United keypti Juan Mata frá Chelsea fyrir metfé á dögunum en félagið gekk reyndar frá sölu á bakverðinum Fabio til Cardiff City auk þess sem Wilfried Zaha var lánaður til sama félags til loka tímabilsins.

Moyes sagði einnig að stefnt væri því að lána unga og efnilega leikmenn, líkt og Zaha, til annarra félaga fyrir kvöldið. Larnell Cole og Ryan Tunnicliffe hafa verið nefndir í enskum fjölmiðlum í því samhengi.

Einn þeirra sem er ekki á útleið á Old Trafford er Japaninn Kagawa, sem hefur lítið fengið að spila á tímabilinu. Það sagði umboðsmaður hans í samtali við enska fjölmiðla í dag.


Tengdar fréttir

Solskjær fær Zaha á láni frá sínu gamla félagi

Ole Gunnar Solskjær er búinn að fá það í gegn að fá vængmanninn Wilfried Zaha á láni frá Manchester United en þetta kemur fram á Sky Sports. Zaha birti mynd af sér í æfingabúningi Cardiff á samfélagsmiðli.

United samþykkir kaupverðið á Mata

Manchester United staðfesti í kvöld að félagið hafi komist að samkomulagi við Chelsea um kaup á Spánverjanum Juan Mata fyrir 40 milljónir punda - um sjö og hálfan milljarð króna.

Kagawa: Ég verð að spila meira

Japaninn Shinji Kagawa hefur ekki fengið að spila mikið með Man. Utd í vetur og við það er Japaninn eðlilega ekki sáttur.

Zaha segist aldrei hafa hitt dóttur Moyes

Þrálátur orðrómur hefur verið í gangi um að Wilfried Zaha, leikmaður Man. Utd, væri að slá sér upp með dóttur knattspyrnustjórans, David Moyes, við litlar vinsældir stjórans.

Mata byrjaði vel með Manchester United

Manchester United vann 2-0 sigur á Cardiff City á Old Traford í kvöld í fyrsta leik Spánverjans Juan Mata með United-liðinu. Ole Gunnar Solskjær þurfti því að sætta sig við tap í endurkomu sinni á Old Trafford.

Fabio kominn til Cardiff

Cardiff City hefur gengið frá kaupum á brasilíska bakverðinum Fabio frá Manchester United.

Mata mættur til Manchester

David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, var mættur til þess að taka á móti Spánverjanum sem ferðaðist frá London í þyrlu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×