„Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Stefán Árni Pálsson skrifar 12. september 2026 09:31 Emin Kadri ætlar sér á toppinn í hnefaleikunum. vísir/anton brink Emin Kadri Eminsson barðist í sínum fimmta atvinnumannabardaga í lok ágúst. Hann vann hann með rothöggi og er búinn að vinna alla sína atvinnubardaga.
Emin barðist við Nikita Stelmakh sem er rússneskur bardagakappi sem æfir í Finnlandi. Bardaginn fór fram í Finnlandi og var Stelmakh því hálfgerður heimamaður. „Hann fór bara allt eiginlega eftir plani. Gat eiginlega ekki farið mikið betur. Við bara brutum hann niður yfir þessar fjórar lotur og hann tók bara þessum höggum þangað til hann gat ekki tekið meira. Ég stoppaði hann þarna í fimmtu lotu með yfirhandarhægri. Ég setti hann upp yfir fjórar loturnar. Ég var að kýla þennan hægri krók í skrokkinn yfir fjórar loturnar. Fólk sá það kannski ekki ef það sá bara þetta síðasta rothögg.“ Klippa: „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Ekki neinn meðalmaður Markmið Emin eru skýr. „Að vera bestur. Það er engin ástæða til að vera að gera þetta ef ég er ekki að fara að stefna að því að vera bestur. Mér finnst það ekkert spennandi að vera bara einhver meðalmaður í þessari íþrótt. Það er alltaf heillandi að vera bestur, að bara sjá hversu langt við getum tekið þetta,“ segir Emin en hver er leiðin að toppnum? „Bara halda áfram að kýla þá niður,“ segir Emin en hann er atvinnumaður í boxi. „Eins erfitt og það er á Íslandi er ekkert sem bannar þetta enn þá. Samkvæmt lögum er þetta enn þá bannað hér en ég er samt svona manneskja sem tekur hlutina í mínar eigin hendur og tekur bara ábyrgðina á öllu af sjálfum mér og ég finn alltaf einhverjar leiðir til þess að láta þetta gerast.“ @emin_kadri Man on a mission 🇮🇸 #fyrirþig #fyp #fyrirþigsíða #foryou #fypiceland #boxing🥊 #iceguysforlife #foryouiceland ♬ original sound - Emotionallove2x Emin er ekki mjög sáttur við lög og reglur hér á landi en atvinnumannahnefaleikar eru ólöglegir hér á Íslandi. Hann tjáði sig í vikunni á skemmtilegan hátt um reglugerðina á TikTok. „Þetta bara fer svolítið mikið á móti atvinnufrelsi einstaklings. Af hverju máttu ekki stunda einhverja íþrótt sem atvinnugrein á Íslandi árið 2026? Mér finnst það ekki alveg meika nógu mikinn sens og sérstaklega þegar er að vera að stækka fjöldi iðkenda í þessari íþrótt og hvað þetta gæti gert fyrir Ísland og tækifærin sem gætu verið fyrir meðal annars mig, þá finnst mér þetta ekki alveg vera í samræmi við tímann í dag. Mér sýnist bara þetta fólk sem er að stjórna svolítið upptekið af því að bara vera að hækka skatta í landinu. Þannig að það eru ekkert rosalega miklar vonir um að þetta verði tekið fyrir eitthvað bráðlega. En við höldum bara alltaf áfram að berjast. Það sem er rétt mun verða rétt og ég trúi að einn daginn muni þetta verða að því.“ Þarf að færa fórnir Eins og áður segir er Emin öflugur á samfélagsmiðlum og greindi hann frá því hvernig hann sker sig niður fyrir vigtun fyrir bardaga. „Þetta er bara partur af þessu og hefur alltaf verið og það eru alls konar fórnir sem tengjast þessu, þessari íþrótt og meðal annars þá að skera sig niður fyrir bardaga en ég meina, sama hvaða fórnir það eru, ég myndi ekkert vilja vera að gera neitt annað.“ Emin er fæddur á Íslandi en faðir hans er Albani og móðir hans er Slóvaki. Það hefur farið fyrir brjóstið á einhverjum að Emin skarti íslenska fánanum fyrir og eftir bardaga eins og hann hefur sjálfur fengið að finna fyrir. „Ég hef alltaf fengið eitthvað svona, ég er ekki nógu mikill Albani, ég er ekki nógu mikill Íslendingur út af hinu og þessu. Og það eru alltaf einhverjir fávitar sem munu segja alltaf eitthvað: Ég get ekki verið Íslendingur út af foreldrum mínum og hinu og þessu og ég ætti ekki að vera með íslenska fánann. En mér finnst það aldrei meika neinn sens. Ég fæddist í þessu landi og öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi. Þótt ég sé mjög stoltur af því að ættir mínar séu frá Albaníu þá mun ég alltaf vera með íslenska fánann og er mjög stoltur af því að fá að alast upp við þessi tækifæri sem eru á Íslandi út af því að þetta eru ekkert annað en forréttindi.“
Box Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira