Hermann á leið frá Portsmouth við óbreytt ástand Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. október 2008 12:45 Hermann Hreiðarsson landsliðsmaður og leikmaður Portsmouth.
Ólafur Garðarsson umboðsmaður Hermanns Hreiðarssonar, leikmanns Portsmouth, segir langlíklegast að hann sé á leið frá félaginu við óbreytt ástand. Portsmouth er í sjöunda sæti deildarinnar með tólf stig eftir sjö umferðir. Hermann hefur einungis einu sinni verið í byrjunarliði Portsmouth og þrívegis komið inn sem varamaður. Eini leikur Hermanns í byrjunarliði Portsmouth var í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í haust er liðið tapaði 4-0 fyrir Chelsea. „Ég tel það langlíklegast að hann sé á leið frá félaginu þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar," sagði Ólafur í samtali við Vísi. „Hann er búinn að reynast félaginu mjög vel auk þess sem honum og Harry Redknapp knattspyrnustjóra er vel til vina." „Það er gríðarlega mikill áhugi fyrir starfskröftum Hermanns, bæði í ensku úrvalsdeildinni og B-deildinni. Maður skyldi aldrei segja aldrei en langlíklegast er að hann verði áfram í Englandi." Hermann er samningsbundinn Portsmouth til loka tímabilsins og segir Ólafur að ólíklegt verði að teljast að félagið fari fram á greiðslu fyrir hann ef hann fer annað í janúar. Ólafur segir þar að auki að Hermann hafi engar áhyggjur af sinni stöðu í heimi knattspyrnunnar. „Nákvæmlega engar áhyggjur. Hann hefur ekki verið í betra formi í þrjú ár og hann er bara þannig maður að hann vill spila í hverri viku. Allir sem þekkja hann vita að bekkjarseta á ekki vel við hann." „Þetta hefur komið á óvart enda var Portsmouth með eina bestu vörnina í deildinni í fyrra. 23 sinnum komst Portsmouth yfir í sínum leikjum og vann alla þá leiki. En það er Redknapp sem tekur þessar ákvarðanir og ekkert við því að gera. Hann verður að verja sína stöðu en það verður Hermann einnig að gera."
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Sjá meira