Enski boltinn

Fréttamynd

Meistarar Man City halda í við topp­lið Arsenal

Manchester City vann 2-0 útisigur á Nottingham Forest í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla. Man City er því aðeins stigi á eftir Arsenal og með leik til góða þegar Skytturnar eiga aðeins þrjá leiki eftir af tímabilinu.

Enski boltinn
Fréttamynd

Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag

Arsenal náði fjögurra stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Tottenham, 2-3, í Norður-Lundúnaslagnum í dag. Skytturnur voru 0-3 yfir í hálfleik en Spurs hleypti mikilli spennu í leikinn í seinni hálfleik.

Enski boltinn
Fréttamynd

Stendur með Salah og skilur pirring hans

Alan Shearer kom Mohamed Salah, leikmanni Liverpool, til varnar vegna rifrildisins við Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra liðsins, í leiknum gegn West Ham United í gær. Shearer skilur pirring Salahs.

Enski boltinn
Fréttamynd

Enn ein von­brigðin fyrir United

Manchester United og Burnley skildu jöfn, 1-1, á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jóhann Berg Guðmundsson lék síðustu átján mínúturnar fyrir Burnley.

Enski boltinn
Fréttamynd

Antonio eyði­lagði endur­komu Rauða hersins

Titilvonir Liverpool eru orðnar afar veikar eftir 2-2 jafntefli við West Ham United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool var undir í hálfleik, kom til baka en Michail Antonio skoraði jöfnunarmark West Ham þegar þrettán mínútur voru eftir.

Enski boltinn
Fréttamynd

Liverpool nær sam­komu­lagi um Slot

Liverpool hefur náð samkomulagi við hollenska liðið Feyenoord um greiðslu fyrir þjálfara liðsins Arne Slot. Allt bendir til að hann taki við Rauða hernum af Jurgen Klopp í sumar.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ein­stefna í Brighton

Englandsmeistarar Manchester City máttu ekki við því að misstíga í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið sótti Brighton heim og gerðu það svo sannarlega ekki.

Enski boltinn
Fréttamynd

Krókur Liverpool á móti bragði

Portúgalskur blaðamaður segir fréttir um Hollendinginn Arne Slot sem mögulegan þjálfara Liverpool vera svar félagsins við óvæntum sögum um Portúgalann Rúben Amorim í vikunni. Aðrir segja tímaspursmál hvenær gengið verður frá samningum við Slot.

Enski boltinn
Fréttamynd

Palace á mikilli siglingu

Crystal Palace vann 2-0 sigur á Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Um er að ræða þriðja sigur liðsins í röð.

Enski boltinn