Palestína

Palestína

Jerúsalem (yfirlýst höfuðborg Palestínumanna þó að fæst ríki heims viðurkenni það). Mannfjöldi: 5,7 milljónir (2025). Flatarmál: 6.020 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðs­dómi

Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Hún mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem ákæran var tekin fyrir, sem snýr að landssöfnun Solaris samtakanna fyrir Palestínu árið 2024. Solaris hélt utan um fjársöfnunina og ráðstafaði fénu sem safnaðist til aðstoðar flóttafólki frá Palestínu.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fimm ríki for­dæma nýjar landtökubyggðir á Vestur­bakkanum

Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði.

Erlent
Fréttamynd

Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru

Ítamar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, hefur vakið hörð viðbrögð, bæði heima fyrir og erlendis, eftir að hafa birt myndband af heimsókn sinni á byggingarsvæði gálga sem notaður verður til að hengja Palestínumenn sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk.

Erlent
Fréttamynd

Netanjahú hafnar friðar­á­ætlun Trumps

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur hafnað að taka þátt í fimmtán punkta áætlun Bandaríkjaforseta um frið á Gasa. Friðarráð Trumps greindi frá því í síðustu viku að þegar hefði náðst samkomulag við Hamas-samtökin um afvopnun á svæðinu. 

Erlent
Fréttamynd

Hamasliðar sam­þykkja að afvopnast

Hamas-samtökin segjast ætla að byrja að afvopnast í samræmi við friðarsamkomulag sem Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag. Samkomulagið krefst þess einnig að Ísraelsher hætti árásum sínum á Gasa og fari af svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Kveiktu í tveimur moskum

Ísraelskir landtökumenn hafa kveikt í bílum, ræktarlandi og tveimur moskum á hernumda Vesturbakkanum, að sögn palestínskra embættismanna. Spenna heldur áfram að aukast á svæðinu. 

Erlent
Fréttamynd

Minnst tólf létust í á­rásum Ísraelshers

Minnst tólf létust í þremur árásum Ísraelshers á Gasa í gærnótt og dag, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Vopnahlé milli Ísraels og Hamas er enn í gildi en rúmlega þúsund Palestínumenn hafa látist í árásum Ísraelshers frá því það var undirritað í október síðastliðnum. 

Erlent
Fréttamynd

Hand­takan þyrfti að byggja á al­þjóða­lögum

Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum.

Erlent
Fréttamynd

Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og á­rásir enn nær dag­legt brauð

Minnst sex Palestínumenn fórust í árásum Ísraelshers á Gasa í dag, þar á meðal níu ára stúlka. Þá særðust yfir tólf aðrir, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Drónaárás á járnsmiðju í Sabra-hverfinu í Gasaborg varð minnst fjórum Palestínumönnum að bana, að sögn fulltrúa Shifa-sjúkrahússins sem fórnarlömbin voru flutt á.

Erlent
Fréttamynd

Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa

Starfsstjórn sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna tekur við völdum á Gasa eftir að hryðjuverkasamtökin Hamas leystu upp stjórn sína þar í dag. Samtökin hafa þó ekki sagt hvort þau ætli að afvopnast eða leyfa alþjóðlegu friðargæsluliði að taka við öryggismálum þar.

Erlent
Fréttamynd

Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vestur­bakkanum

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sakað Ísraela um þjóðernishreinsanir gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum. Rannsakendur samtakanna segja aukinn hraða á uppbyggingu landtökubyggða á Vesturbakkanum og hún sé studd af ríkinu. Þúsundir Palestínumanna hafi verið reknir af heimilum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Um­deildum vinstrimönnum meinuð koman til Bret­lands

Bresk stjórnvöld hafa meinað hinum umdeilda bandaríska áhrifavaldi Hasan Piker og frænda hans, stjórnmálaskýrandanum Cenk Uygur, komu til Bretlands. Frændurnir segja að ákvörðunin hafi verið tekin vegna gagnrýni þeirra á ísraelsk stjórnvöld. Bresk stjórnvöld segja það ekki þjóna almannahag að þeir komi til landsins.

Erlent
Fréttamynd

Frétta­flutningur RÚV um „ó­háða“ skýrslu ísraelsks rann­sóknar­hóps

RÚV flutti nýlega fréttir um að „Hamas og bandamenn þeirra beittu gísla sína kerfisbundnu og umfangsmiklu kynferðisofbeldi eftir árásirnar á Ísrael 7. október 2023. Þetta kemur fram í skýrslu sem er unnin af sjálfstæðri ísraelskri rannsóknarnefnd ... Ofbeldið einkenndist af mikilli grimmd og þjáningu og var beitt til að ógna og niðurlægja.“

Skoðun
Fréttamynd

Euro­vision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla

Eurovison, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fer fram 70. skiptið í ár en keppnin verður haldin í höfuðborg Austurríkis, Vín, og hefst á þriðjudaginn, þann 12. maí.  Tölurnar sýna greinilega að lög þess árs ná ekki til áhorfenda á sama stigi og undanfarin ár en spilunartölur Eurovision á Spotify hafa nánast helmingast.

Tónlist
Fréttamynd

Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár

Sveitarstjórnarkosningar standa yfir í Palestínu í dag, bæði á hernumda Vesturbakka en einnig ganga örfáir að kjörborðinu á Gasaströndinni. Þetta er fyrsta sinn sem kosningar eru haldnar á Gasa frá því að Hamas vann þingkosningar 2006.

Erlent