Innlent

20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu

Birgir Olgeirsson skrifar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Í skýrslu forsætisráðherra er farið yfir framlög Íslands til varnarbaráttu Úkraínu, mannúðaraðstoðar og uppbyggingar í Palestínu.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Í skýrslu forsætisráðherra er farið yfir framlög Íslands til varnarbaráttu Úkraínu, mannúðaraðstoðar og uppbyggingar í Palestínu. Vísir/Viktor Freyr

Stuðningur Íslands við Úkraínu nam 20,4 milljörðum króna frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í febrúar 2022 til september síðastliðins. Framlög og samningar um stuðning við Palestínu nema samtals um 1,76 milljörðum samkvæmt samantekt á fjárhæðum í skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025, þingskjal 255 í 231. Sú fjárhæð nær yfir nokkur ár og felur einnig í sér greiðslur á næstu árum.

Í skýrslunni, sem fjallar um eftirfylgni við 79 þingmál frá árunum 2022–2025, er farið yfir hernaðarlegan og borgaralegan stuðning við Úkraínu, mannúðaraðstoð við Palestínumenn og framlög til heimastjórnar Palestínu og enduruppbyggingar.

Hergögn, sjúkrahús og mannúðaraðstoð

Af stuðningnum við Úkraínu séu 11,9 milljarðar króna varnartengdir og 8,5 milljarðar vegna mannúðar- og efnahagsaðstoðar. Áætlað sé að stuðningurinn á öllu árinu 2026 verði 6,1 milljarður, samanborið við sex milljarða árið 2025.

Samkvæmt skýrslunni fari varnartengdi stuðningurinn einkum í sjóði sem kaupi hergögn og birgðir. Ísland hafi einnig stutt kaup á færanlegu sjúkrahúsi og lagt fé í PURL, samstarfsverkefni Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjanna um kaup á bandarískum varnarbúnaði.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu. Varnartengdur stuðningur Íslands við Úkraínu nam 11,9 milljörðum króna frá febrúar 2022 til september 2026.Forsetaskrifstofa Úkraínu

Ísland leiði ásamt Litáen samstarfshóp um sprengjuleit og sprengjueyðingu og taki þátt í þjálfun Úkraínumanna á því sviði, auk þjálfunar bráðaliða.

Mannúðar- og efnahagsstuðningur fari að mestu í gegnum Alþjóðabankann og stofnanir Sameinuðu þjóðanna. Stuðningur við orkuinnviði og kvennasamtök hafi aukist. Þá hafi stjórnvöld hafið samstarf við Emblu Medical og Future for Ukraine um stoðtæki og við Römpum upp um aðgengisrampa í Lviv.

Tjónakröfur og menningarsamstarf

Um 190 þúsund tjónakröfur hafi verið skráðar í tjónaskrá sem stofnuð var á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík árið 2023.

Ísland hafi fullgilt samning um kröfunefnd sem eigi að ákveða bætur. Þegar skýrslan var tekin saman höfðu níu ríki og Evrópusambandið fullgilt samninginn, en fullgildingu 25 ríkja þarf til að hann öðlist gildi. Ísland taki einnig þátt í undirbúningi sérstaks dómstóls um glæpi gegn friði í Úkraínu.

Þá hafi Ísland innleitt allar þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússlandi vegna stríðsins og fullgilt uppfærðan fríverslunarsamning við Úkraínu. Reglulegar heimsóknir og fundir ráðamanna hafi styrkt samskipti landanna.

Úkraínsk stjórnvöld líti á menningu sem hluta af þjóðaröryggi. Meðal samstarfsverkefna séu listasýningar á Íslandi, kynning á úkraínskum bókmenntum og sýning Steinunnar Þórarinsdóttur í Kænugarði.

Um 1,76 milljarðar vegna Palestínu

Framlögin vegna Palestínu skiptast í mannúðaraðstoð, stuðning við heimastjórnina og uppbyggingu á Vesturbakkanum og Gaza.

Á árunum 2025 og 2026 nemi framlög til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNRWA, 588,3 milljónum króna. Þá hafi 160 milljónir farið til Samhæfingarskrifstofu aðgerða í mannúðarmálum, OCHA, og 60 milljónir til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru samtals 808,3 milljónir á tveimur árum.

Í lok árs 2025 hafi Ísland jafnframt gert þriggja ára samning um stuðning við heimastjórn Palestínu í gegnum Alþjóðabankann. Framlagið sé 200 milljónir á ári, samtals 600 milljónir yfir samningstímann.

Mótmælendur Íslands Palestína söfnuðust saman fyrir utan utanríkisráðuneytið í fyrra og mótmæltu aðgerðaleysi stjórnvalda í garð hernaðar ísraela á palestínumönnum á gaza. Vísir/Anton Brink

Annar samningur við Alþjóðabankann nái yfir uppbyggingu grunninnviða á Vesturbakkanum á árunum 2024–2028. Hann feli í sér um 50 milljónir á ári, samtals um 250 milljónir á fimm árum.

Þá hafi Ísland lagt 100 milljónir króna í enduruppbyggingarsjóð Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínu, UN Horizon Fund, í september síðastliðnum. Féð nýtist til verkefna á Gaza.

Þessir liðir nema samanlagt um 1.758,3 milljónum króna. Þar eru bæði talin veitt framlög og samningsbundnar greiðslur til næstu ára. Við bætist stuðningur við UNESCO og palestínsku félagasamtökin WCLAC og PMRS, en fjárhæðir hans eru ekki tilgreindar.

Aðstoðin sögð langt frá því að mæta þörfinni

Í skýrslunni segir að þrátt fyrir vopnahlé á Gaza í október 2025 og aukna mannúðaraðstoð sé aðstoðin langt frá því að mæta þörfinni. Þar sé talið að hátt í 250 þúsund manns hafi slasast eða verið drepin frá október 2023 og eyðilegging innviða sé gríðarleg.

Ísland hafi kallað eftir óheftu aðgengi hjálpargagna og virðingu fyrir alþjóðalögum, auk þess að krefjast frelsunar gísla og afvopnunar Hamas. Stjórnvöld hafi einnig stutt alþjóðlegar yfirlýsingar um varanlegt vopnahlé, enduruppbyggingu og tveggja ríkja lausn.

Þá hafi Ísland 11. mars síðastliðinn lagt fram yfirlýsingu um meðalgöngu í máli Suður-Afríku gegn Ísrael vegna meintra brota á hópmorðssáttmálanum. Málflutningurinn snúi að túlkun sáttmálans í vopnuðum átökum, sérstaklega áhrifum á konur og börn.

Ísland hafi einnig skilað greinargerð til Alþjóðadómstólsins um skyldur Ísraels til að tryggja starfsemi Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðlegra aðila á hernumdum svæðum Palestínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×