Fleiri fréttir

Innlausnartímabili Alfesca er lokið

Innlausnartímabili vegna hluta í Alfesca hf. lauk á hádegi í dag 24. september. Hlutir í eigu annarra hluthafa en samstarfsaðila verða fluttir til Lur Berri Iceland ehf. og greiðsla fyrir hlutina verður innt af hendi í síðasta lagi 29. september 2009.

Seðlabankastjóri segir raunstýrivexti vera 9,5%

„Már (Guðmundsson) benti á að raunverulegir stýrivextir í dag væru innlánsvextir bankans sem nú eru 9,5% vegna þess að þeir vextir hefðu mun meiri áhrif um þessar mundir en vextir á veðlánum til fjármálastofnana.“

Bankar hafa ekki þörf fyrir lausafé frá Seðlabankanum

„Sakir rúmrar lausafjárstöðu bankakerfisins hafa bankar almennt ekki haft þörf fyrir lausafjárfyrirgreiðslu Seðlabankans. Frá aprílmánuði 2009 hafa því þeir Seðlabankavextir sem mest áhrif hafa á aðra skammtímavexti, t.d. peningamarkaðsvexti og innlánsvexti í bankakerfinu, verið vextir á innlánsreikningum bankans.“

Ólafur Ísleifsson segir hlutverk stýrivaxta orðið óljóst

Ólafur Ísleifsson lektor við Háskólann í Reykjavík segir að hlutverk stýrivaxta í íslenska hagkerfinu sé orðið óljóst. „Í núverandi gjaldeyris- og peningakerfi sem gengur út á að styðja gengi krónunnar með höftum gegna stýrivextir aukahlutverki,“ segir Ólafur.

Óbreyttir stýrivextir hjá Seðlabankanum

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að vextir lána gegn veði verði áfram 12% og vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana verði áfram 9,5%, en að daglánavextir lækki úr 16% í 14,5%.

Moody´s: Lánshæfiseinkunn ÍLS enn á neikvæðum horfum

Lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs (ÍLS) er óbreytt í Baa1 hjá matsfyrirtækinu Moody's samkvæmt nýrri skýrslu. Einkunnin er jafnframt á neikvæðum horfum líkt og lánshæfismat ríkissjóðs en mikil tengsl eru á milli einkunna Íbúðalánasjóðs og ríkissjóðs sökum baktryggingar þess síðarnefnda á skuldum þess fyrrnefnda.

Eign lífeyrissjóða í húsbréfum jókst um 98 milljarða á einu ári

Heildareign lífeyrissjóðanna í íbúðabréfum nam 334 milljörðum kr. í lok júlí og jókst um 14 milljarða kr. frá fyrri mánuði. Af tölum Seðlabankans að dæma hefur eign lífeyrissjóða frá því í ágúst á síðasta ári farið sívaxandi og hækkað um 98 milljarða kr. til loka júlí að krónutölu.

Stýrivaxtaákvörðun í dag

Peningastefnunefnd um stýrivexti Seðlabankans mun tilkynna um vaxtaákvörðun klukkan níu fyrir hádegi og síðan verður kynningarfundur klukkan ellefu, að vanda.

Bakkabræður fengu betri vaxtakjör en íslenska ríkið

Vaxtakjörin sem Bakkabræður fengu á láninu frá Existu til að kaupa Bakkavör út úr félaginu eru betri en íslenska ríkið fékk vegna Icesave og úr takti við það sem íslenskum fyrirtækjum býðst segir framkvæmdastjóri samtaka fjárfesta. Hann segir þetta örlætisgerning sem aðrir hluthafar eigi ekki að sætta sig við.

Sigrún Elsa vill að OR selji skuldabréf Magma

Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vill að Orkuveitan hefji undirbúning að sölu skuldabréfsins sem Magma gefur út fyrir 70% af greiðslu fyrir hlut félagsins í HS Orku.

Rólegt í kauphöllinni

Dagurinn var á rólegu nótunum í kauphöllinni. Úrvalsvísitalan OMX16 lækkaði um 0,1% og sendur í tæpum 805 stigum.

HB Grandi: Úthafskarfinn gaf 1,5 milljarð í sumar

Úthafskarfaveiðar HB Granda í sumar gáfu af sér um 1,5 milljarð kr. miðað við verðmæti upp úr sjó. Fjallað er um veiðarnar á heimasíðu HB Granda og þar eru þær sagðar vera ágæt búbót.

Ólafur Ragnar enn í vörn fyrir útrásina

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að íslensku bankarnir sem hrundu síðasta haust hafi ekki brotið neinar reglur. Þetta kom, fram í viðtali sem útvarpsstöð Bloomberg fréttaveitunnar tók við Ólaf Ragnar í New York í dag.

Kaupmáttur launa ekki lægri síðan árið 2002

Á sama tíma og launahækkanir hafa verið litlar hefur verðbólgan geisað, sem gerir það að verkum að kaupmáttur launa hefur minnkað hratt. Hann hefur ekki verið lægri hér á landi síðan í árslok 2002.

FME frestar lokauppgjöri Landsbankans

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að fresta lokauppgjöri milli Landsbankas og Nýja Landsbanka Íslands (NBI) til í síðasta lagi 9. október n.k. Upphafleg stóð til að þessu ætti að vera lokið eigi síðar en 30. september.

Sagex og Lindir hætt við Drekasvæðið

Orkustofnun barst síðla dags í gær erindi frá Sagex Petroleum, þar sem sameiginleg umsókn félagsins og Lindir Exploration um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu er dregin tilbaka.

Allir búast við óbreyttum stýrivöxtum

Það eru ekki bara íslenskir sérfræðingar sem búast við því að stýrivöxtum Seðlabankans verði haldið óbreyttum á morgun, erlendir kollegar þeirra spá hinu sama. Þeirra á meðal er Petter Sandgren forstjóri nýmarkaðadeildar SEB.

Skuldabréf gamla Landsbankans hafa fimmfaldast í verði

Skuldabréf gamla Landsbankans hafa fimmfaldast í verði frá bankahruni. Talið er að erlendir fjárfestar kaupi bréfin í þeirri von að þau hækki í verði, ef neyðarlögunum verður hnekkt fyrir dómstólum.

Verð á ýsu og þorski nær tvöfaldast í Bretlandi

Verð á ýsu og þorski hefur nær tvöfaldast á mörkuðunum í Grimsby og Hull. Á vefsíðunni FISHupdate segir að verðið á stærstu ýsunni hafi farið í yfir 3 pund, eða rúmlega 600 kr., fyrir kílóið sem er nær tvöfalt hærra verð en fékkst fyrir hana fyrir tveimur vikum. Verðþróunin í þorskinum hafi verið svipuð.

Hlutir í Icelandair hækkuðu um 50% í dag

Hlutir í Icelandair hækkuðu um 50% í kauphöllinni í dag sem er mesta hækkun hlutabréfa á einum degi hér á landi. Hinsvegar ber að nefna að aðeins 300 þúsund kr. viðskipti lágu að baki þessari hækkun.

Microsoft kaupir íslensku hugbúnaðarlausnina LS Retail AX

Microsoft hefur keypt íslensku hugbúnaðarlausnina LS Retail AX sem er byggð ofan á Microsoft Dynamics AX viðskiptalausnirnar. Það er íslenska fyrirtækið LS Retail ehf. sem hefur þróað lausnina sem Microsoft fær nú eignarrétt á og er þetta er ein verðmætasta hugbúnaðarsala í sögu Íslands.

Forstöðumanni hjá HR boðið á þing um fjármálalæsi

Alþjóðabankinn og Efnahags og framfarastofnunin hafa boðið Breka Karlssyni, forstöðumanni Stofnunar um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík (HR), á málþing um fjármálalæsi og rannsóknir á því í Washington 12.-13. nóvember nk. Á þinginu heldur Breki framsöguerindi og tekur síðan þátt í pallborðsumræðum.

FME áréttar skilning sinn á bankaleynd

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sett inn á heimasíðu sína frétt þar sem áréttaður er skilningur eftirlitsins á bankaleynd hvað varðar upplýsingar um fjármál lífeyrissjóða.

Þór Sigfússon víkur formlega sem formaður SA

Vilmundur Jósefsson hefur tekið við sem formaður Samtaka atvinnulífsins (SA)en Þór Sigfússon, sem verið hefur í leyfi frá formennsku í samtökunum frá 9. júlí, hefur ákveðið að víkja formlega úr sæti formanns SA.

Moody´s: Áhrif kreppunnar langvinnust á Íslandi

Hvað varðar Ísland telur Moody's að áhrif alþjóðlegu fjármálakreppunnar kunni að reynast einna langvinnust hér á landi. Sá harði skellur sem fall bankakerfisins olli hagkerfinu hafi þó verið mýkri fyrir það hversu smátt og opið hagkerfið er.

Óbreyttir stýrivextir, traust vinnumarkaðarins brotið

„Öruggt er að peningastefnunefnd bankans mun ekki telja að forsendur hafi skapast fyrir lækkun vaxta niður fyrir tveggja stafa tölu en reikna má með því að nefndin sé að funda í dag og á morgun vegna vaxtaákvörðunarinnar."

MP: Lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að fá beinar fjárfestingar

Margeir Pétursson stjórnarformaður MP Banka segir að það sé lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að fá beinar fjárfestingar inn í landið. „Annars fáum við ekki kraft að nýju í efnahagslífið," segir Margeir í samtali við norska ríkisútvarpið NRK.

Moody´s: Ísland hefur náð viðkvæmum stöðugleika

Matsfyrirtækið Moody´s segir að Ísland, Lettland og Ungverjaland hafi náð viðkvæmum stöðugleika en það sé enn of snemmt að segja til um endurreisn þeirra úr kreppunni þar sem óljóst er hvort nýlegar vísbendingar séu viðvarandi.

Lántaka Glitnis hjá Seðlabanka Evrópu á ekkert skylt við lögbrot

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja og fyrrverandi stjórnarformaður Glitnis, segir að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra sé á villigötum þegar hann segi að hugsanlega hafi Glitnir framið lögbrot þegar bankinn lagði lán bankans til íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja að veði fyrir láni hjá Evrópska Seðlabankanum.

SA: Of snemmt að fagna lokum kreppunnar

Aljóðasamtök atvinnurekenda (IOE), sem Samtök atvinnulífsins (SA) eiga aðild að, hafa sent leiðtogum G-20 ríkjanna opið bréf þar sem þeir eru hvattir til þess að bæta starfsumhverfi fyrirtækja. Samtökin segja of snemmt að fagna lokum kreppunnar þó svo jákvæð teikn hafi sést á mörkuðum og vöxtur látið á sér kræla á ný.

Kröfuhafar SPM funda um nauðasaming í dag

Fundur með kröfuhöfum Sparisjóðs Mýrasýslu verður haldinn í dag, þriðjudag, að Hilton Hotel Nordica í Reykjavík. Á fundinum verður fjallað um núverandi stöðu sparisjóðsins. Þá verður á fundinum leitað eftir meðmælum kröfuhafa með frumvarpi að nauðasamningi, sem öllum þekktum kröfuhöfum hefur áður verið kynnt.

Aðeins hluti söluverðs Haga til Kaupþings

Þegar Hagar, móðurfélag Hagkaupa, Bónuss og fleiri verslana, voru seldir úr Baugi Group til eignarhaldsfélagsins 1998 ehf. í júlí á síðasta ári fór aðeins hluti af söluverðinu beint og milliliðalaust til Kaupþings sem hafði fjármagnað kaupin á Högum.

Stjórnendur yfirskuldsettra fyrirtækja skjóta eignum undan

Margir eigendur fyrirtækja sem standa frammi fyrir gjaldþroti eða að bankarnir taki rekstur þeirra yfir eru að taka eignir út úr fyrirtækjunum og/eða taka út háar peningafjárhæðir með ýmsum hætti. Þetta sögðu helstu stjórnendur Landsbankans við kröfuhafa bankans í kynningu sem var haldin í júní síðastliðnum.

Ríkisskattstjóri skoðar hvort kvótahagnaði hafi verið skotið undan

Ríkisskattstjóri skoðar nú hvort kvótahagnaði hafi verið komið fyrir í aflandsfélögum og notaður til fjárfestinga hér á landi. Þannig hafi fyrrum kvótaeigendur geta komist hjá því að greiða fjármagnstekjuskatt. Í þeim félögum sem um ræðir skipta lægstu upphæðirnar tvö til þrjú hundruð milljónum króna.

Hátt í 70% fyrirtækja tæknilega gjaldþrota

Allt að 65 prósent fyrirtækja á Íslandi eru tæknilega gjaldþrota og geta ekki staðið við skuldbindingar sínar. Þetta fullyrtu stjórnendur Landsbankans við kröfuhafa í júní.

Lítil velta á hlutabréfamarkaði

Lítil velta var á hlutabréfamarkaðinum í dag eða aðeins nokkrar milljónir kr. Úrvalsvísitalan lækkaði lítillega eða um 0,14%.

Síldarkvóti HB Granda að komast í höfn

Nú styttist í að veiðum skipa HB Granda á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum ljúki á þessu sumri. Veiðarnar hafa verið stundaðar innan íslensku lögsögunnar og hafa þær gengið vonum framar.

Sjá næstu 50 fréttir