Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mjólka á barmi gjaldþrots - reyna að semja við kröfuhafa Mjólka ehf. stendur frammi fyrir miklum skuldavanda og er fyrirséð að félagið geti ekki staðið undir þeim skuldbindingum sem á því hvíla ef marka má bréf sem Ólafur Magnússon framkvæmdarstjóri sendir lánadrottnum. Skuldir félagsins eru umtalsverðar og eigið fé neikvætt. Nú er leitað leiða til þess að semja við kröfuhafa og eru tvær leiðir í boði. 21.9.2009 10:37
Uppgjörstími verðbréfa breytist í dag Líkt og áður hefur verið tilkynnt færist uppgjörstími verðbréfa hjá Verðbréfaskráningu Íslands (VS) frá klukkan 9 árdegis til klukkan 12 á hádegi frá og með deginum í dag 21. september.. Þessi færsla hefur í för með sér breytingu á meðhöndlun réttinda skuldabréfa. 21.9.2009 10:11
Nýr framkvæmdastjóri Landsvaka Björn Þór Guðmundsson hefur tímabundið verið ráðinn framkvæmdastjóri Landsvaka hf. til loka maí 2010 og tekur hann til starfa í dag. 21.9.2009 10:03
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar áfram Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan september 2009 er 495,3 stig sem er hækkun um 0,65% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í október 2009. 21.9.2009 09:11
Kæra stjórnendur lífeyrissjóða vegna venslatengsla Tveir stjórnarmenn í VR kæra á morgun stjórn og stjórnendur Lífeyrissjóðs Verslunarmanna til Fjármálaeftirlitsins vegna brota á samþykktum sjóðsins og lögum um lífeyrissjóði samkvæmt kvöldfréttum RÚV. 20.9.2009 19:22
Ástþór Magnússon: Vill kaupa gullforða Seðlabanka Íslands „Við erum í þeim bissniss að kaupa gull af fólki,“ segir Ástþór Magnússon, eigandi Goldbank á Spáni en hann sendi seðlabankastjóranum Má Guðmundssyni bréf í dag þar sem hann býðst til þess að kaupa gullforða bankans. Um er að ræða tvö tonn af gulli sem íslenski Seðlabankinn á. 20.9.2009 14:00
Íslendingar treysta RÚV best Um 75% aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV. Þetta eru ríflega tvöfalt fleiri en segjast bera mikið traust til fréttastofu Stöðvar 2 (37,2%). 20.9.2009 13:17
Gríðarlegar afskriftir skulda eignarhaldsfélaga Mánuði fyrir hrun höfðu bankarnir lánað eignarhaldsfélögum upp undir þrisvar sinnum meira en þeir höfðu lánað fólki í landinu í húsnæðislán. Allt er á huldu með veð og tryggingar fyrir lánum félaganna en á síðustu vikum hafa borist fregnir af afskriftum skulda þeirra upp á nærri 85 milljarða króna. 19.9.2009 18:40
Almenni lífeyrissjóðurinn: Það var slæm hugmynd að fjárfesta í Baugi Almenni lífeyrissjóðurinn, sem rekinn var af Glitni, stóð fyrir rúmum þriðjungi af heildarlánum lífeyrissjóða til Baugs. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir að með hliðsjón af því hversu illa fyrirtækin í landinu standi sé ljóst að skuldabréfakaup í Baugi hafi ekki verið góður kostur. 19.9.2009 18:51
Hafnfirðingar tapa milljörðum vegna lóða Hundrað fyrirtæki hafa skilað inn lóðum sínum í Hafnarfirði. Kostnaður bæjarins vegna lóðaskila undanfarna mánuði og uppbyggingar á ónýttum svæðum nemur um 10 milljörðum. 19.9.2009 18:44
Icelandair: Á þriðja tug uppsagna dregnar til baka „Við vorum búnir að gera áætlun fyrir veturinn en svo kemur í ljós að það horfir betur við en við töldum,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair en flugfélagið ákvað að draga uppsagnir 24 flugmanna til baka nú á dögunum. 19.9.2009 15:07
Norskur fjárfestir kaupir hlut í MP Banka Norski fjárfestirinn Endre Røsjø og MP Banki hf. hafa náð samkomulagi um að Røsjø eignist hlut í bankanum að loknum fyrirhuguðum hluthafafundi í næsta mánuði og verði þar með virkur hluthafi við framtíðarþróun bankans. 18.9.2009 21:05
Milljarða lán Milestone til Wernersbræðra einskis virði Sex milljarða króna lán Milestone til Karls og Steingríms Wernerssona, fyrrverandi eigenda félagsins, er einskis virði í bókum þess. Lánið var veitt til félags í eigu bræðranna og var meðal annars notað til að kaupa systur þeirra út úr Milestone. 18.9.2009 18:41
Seðlabankinn styrkir eftirlit með gjaldeyrisreglum Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að endurskipuleggja og efla starfsemi gjaldeyriseftirlits innan bankans. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að markmiðið með þeim breytingum sé að styrkja eftirlit með gildandi gjaldeyrishöftum. Gjaldeyriseftirlitið verður hér eftir sjálfstæð eining innan Seðlabankans og heyrir beint undir seðlabankastjóra. 18.9.2009 14:56
Milestone úrskurðað gjaldþrota Stjórn Milestone ehf. hefur óskað eftir eftir því að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur í dag fallist á ósk félagsins og kveðið upp úrskurð um að félagið skuli tekið til gjaldþrotaskipta. 18.9.2009 14:37
Sjávarútvegurinn á góðri siglingu í kreppunni Sjávarútvegur má nokkuð vel við una þegar litið er á umsvif útflutningsfyrirtækja landsins. Velta í fiskveiðum jókst um 11% að nafnvirði frá maí og júní í fyrra til sama tímabils í ár. 18.9.2009 13:13
Seðlabankinn styrkir gengi krónu með inngripum í morgun Krónan hefur sótt í sig veðrið í morgun eftir veikingu gærdagsins og skrifast styrkingin á inngrip Seðlabankans. Nemur styrking dagsins 0,6% það sem af er degi. 18.9.2009 12:38
SI: Vinnubrögð stjórnvalda valda töfum og tjóni Samtök iðnðarins (SI) gagnrýna harðlega vinnubrögð stjórnvalda í samskiptum við erlenda fjárfesta og uppbyggingu iðnaðar sem reiðir sig á nýtingu orkuauðlinda. Stjórnvöld eru ekki samstiga og senda frá sér misvísandi skilaboð. 18.9.2009 12:01
Vilja setja 150 milljónir í atvinnulíf Suðurnesja Næstkomandi fimmtudag 24. september verður aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja haldinn í Reykjanesbæ. Á fundinum verður afgreidd tillaga fráfarandi stjórnar um að félagið leggi til allt að 150 milljónir króna til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum. 18.9.2009 11:04
Greining: Ársverðbólgan verður 8% næstu sex mánuði Greining Nýja Kaupþings gerir ráð fyrir 4% hækkun verðlags næstu 6 mánuði, þ.e. mánuðina ágúst 2009 til febrúar 2010. Verðbólgan verður því ríflega 8% á ársgrundvelli á þessu tímabili gangi spáin eftir. 18.9.2009 10:19
Íslenskar vísitölur horfnar af heimskortinu FTSE, sem heldur utan um hlutabréfavísitölur heimsins, hefur ákveðið að hætta að birta þær íslensku í daglegum gögnum sínum. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Ísland segir í frétt um málið í viðskiptablaðinu Financial Times. 18.9.2009 08:28
Íslandssjóðir stofna nýjan verðbréfasjóð Íslandssjóðir hafa sett nýjan verðbréfasjóð á markað, Veltusafn, sem hentar vel til sparnaðar í skemmri tíma. Markmið sjóðsins er að nýta tækifæri á markaði með virkri stýringu innlána, víxla og ríkisskuldabréfa en á sama tíma að skila jafnri og stöðugri ávöxtun. 18.9.2009 08:15
Velta fyrirtækja hefur minnkað um 17,6% að raunvirðim milli ára Velta fyrirtækja hér á landi dróst saman um 7,7% að nafnvirði og 17,6% að raunvirði á milli ára samkvæmt gögnum sem Hagstofan vinnur upp úr virðisaukaskattsskýrslum fyrir tímabilið maí til júní. 18.9.2009 08:07
Fyrrverandi og núverandi ríkisskattstjóri rífast fyrir dómi Skúli Eggert Þórðarsson, ríkisskattstjóri, og Garðar Valdimarsson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, takast nú á fyrir dómstólum, um túlkun skattalaga. Deilt er um hvort fyrrverandi forstjóri Straums eigi að greiða tekjuskatt vegna söluréttarsamnings, eða einungis fjármangstekjuskatt. 17.9.2009 18:41
Aðstoðarbankastjóri Kaupþings endurskoðaði aflandsfélög Kaupþing stofnaði og sá um endurskoðun á fjölmörgum félögum í skattaparadísum í gegnum endurskoðunarfyrirtæki á bresku jómfrúareyjunum. Fyrrverandi aðstoðarbankastjóri Kaupþings, sem ekki er endurskoðandi, sá einnig um endurskoðun. 17.9.2009 18:09
Ágætur dagur í kauphöllinni Það var grænt á flestum tölum í kauphöllinni í dag og hækkaði úrvalsvísitalan OMX16 um 1,25%. Stendur vísitalan í rúmum 809 stigum. 17.9.2009 15:48
Nýtt verksmiðjuhús HB Granda tekur á sig mynd Nýtt verksmiðjuhús HB Granda á Vopnafirði, sem hýsa mun fiskmjölsverksmiðju félagsins, er nú sem óðast að taka á sig mynd. 17.9.2009 15:29
Aðgerðir gegn eftirliti bíða niðurstöðu rannsóknarnefndar Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að hugsanlegar aðgerðir, eins og til dæmis málsóknir, gegn eftirlitsaðilum vegna vinnubragða þeirra í aðdragenda efnahagshrunsins í haust munu bíða eftir niðurstöðum frá rannsóknarnefnd Alþings. 17.9.2009 15:11
Byr kominn með sjálfstæða erlenda greiðslumiðlun Nú hefur Byr opnað reikninga erlendis í öllum helstu myntum, það er evrum, pundum, dollurum, norskum, sænskum og dönskum krónum, svissneskum frönkum og jenum, og er því kominn með sjálfstæða greiðslumiðlun fyrir erlend viðskipti. 17.9.2009 13:48
Lúxushús við Holmen bitbein hjá þrotabúi Baugs Meðal þeirra eigna sem þrotabú Baugs og Gaumur eignarhaldsfélag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu bítast nú um er lúxushús við Holmen í hjarta Kaupmannahafnar. Húsið er til sölu hjá fasteignasölunni Nybolig og er verðmiðinn 15 milljónir danskra kr. eða rúmlega 360 milljónir kr. 17.9.2009 13:41
Icelandair opnar nýjar höfuðstöðvar í Boston Nýjar höfuðstöðvar Icelandair í Vesturheimi eru formlega teknar í notkun í dag í Boston að viðstöddum fulltrúum borgar- og flugvallaryfirvalda auk lykilfólks úr flug- og ferðaþjónustunni í Massachusettsfylki. Hlutverk skrifstofunnar í Boston er að stýra markaðs- og sölustarfi Icelandair í Bandaríkjunum og Kanada og þar starfa um 25 manns. 17.9.2009 12:47
Dollarinn hefur lækkað nokkuð gagnvart krónunni Bandaríkjadollar hefur lækkað um tæpar 3 kr. á innlendum gjaldeyrismarkaði undanfarnar tvær vikur. Á sama tíma hefur verð evru hækkað um 2 kr. Gengi evru gagnvart dollara hefur hækkað mikið undanfarið og náði í morgun sínu hæsta gildi undanfarið ár, þegar evran var seld á 1,477 dollara. 17.9.2009 12:35
Verðbólgan á Íslandi margföld á við Evrópuríki Verðbólgan á Íslandi mældist 16,0% í ágúst og er sú langhæsta meðal ríkja evrópska efnahagssvæðisins samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Að meðaltali er verðbólgan nú um 0,6% meðal ríkja EES en -0,2% meðal ríkja evru svæðisins. 17.9.2009 12:09
Góður árangur hjá Mannviti í Ungverjalandi Verkfræðistofan Mannvit lauk því að bora fyrstu holuna í bænum Szentlörinc í suðvesturhluta Ungverjalands í síðustu viku. Holan er 1.820 metra djúp og fyrstu prófanir og mælingar á eiginleikum borholunnar gefa til kynna góðan árangur. 17.9.2009 11:52
Rekstri Verðbréfunar hf. verður hætt Stjórn Verðbréfunar hf. samþykkti á fundi sínum þann 16. september 2009 samkomulag við NBI hf. um kaup á útistandandi skuldabréfum Verðbréfunar hf. á uppgreiðsluvirði safnbréfanna. Rekstri Verðbréfunar hf. verður því hætt. 17.9.2009 11:05
Exista ræður erlendan ráðgjafa í endurskipulagningu Exista hefur ráðið til sín ráðgjafarfyrirtækið Talbot Hughes McKillop sem munu leiða vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu Exista og samningaviðræður við bæði innlenda og erlenda lánveitendur félagsins. 17.9.2009 10:57
FME: Almannahagsmunir geta réttlætt brot á þagnarskyldu Árný J. Guðmundsdóttir lögfræðingur Fjármálaeftirlitsins (FME) leggur áherslu á að eftirlitið viðurkennir að í ákveðnum tilvikum geta almannahagsmunir réttlætt það að þagnarskyldum upplýsingum væri miðlað og að þegar svo háttaði til ættu þeir sem það gerðu ekki að hljóta refsingu. 17.9.2009 08:52
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs vel undir 400 punktum Skuldatryggingaálag ríkissjóðs hefur stöðugt lækkað undanfarna mánuði og er nú komið niður í tæpa 376 punkta. Hefur álagið ekki verið lægra í meir en eitt ár eða síðan síðasta sumar. 17.9.2009 08:05
Nauðsynleg aðgerð til bjargar Bakkavör Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar, segir að kaup bræðranna á hlut Exista í Bakkavör hafi verið nauðsynleg til að bjarga Bakkavör. Ljóst sé að Exista fari í greiðslustöðvun, nauðasamninga eða jafnvel gjaldþrot á næstu vikum 16.9.2009 18:41
Mun líklega verða stærsti eigandi Alfesca á ný Ólafur Ólafsson mun að öllum líkindum tryggja sér vel yfir helmingshlut í Alfesca og verða stærsti eigandi félagsins á nýjan leik. Slíkt mun Ólafur gera í gegnum nýtt félag sem hann stofnaði í byrjun árs. 16.9.2009 18:27
Þrotabú Fons ætlar ekki að rifta Iceland Express-viðskiptum Þrotabú Fons hyggst ekki rifta 300 milljóna króna hlutafjáraukningu í Iceland Express í nóvember á síðasta ári. Aukningin varð til þess að hlutur Fons í flugfélaginu minnkaði úr 99 prósentum í 7,9 prósent. Þetta kom fram á sérstökum fundi með kröfuhöfum þrotabús Fons í dag. 16.9.2009 16:50
Gengi Century Aluminium hækkar áfram Gengi hluta í Century Aluminium hækkaði um 5% í kauphöllinni í dag og er félagið þá komið í efsta sæti hvað varðar hækkun frá áramótum en hún nemur nú 32%. 16.9.2009 15:58
Eignir tryggingarfélaga hækkuðu um tæpan hálfan milljarð Heildareignir tryggingarfélaganna námu 121,8 milljarða kr. í lok júlí og hækkuðu um 478 milljónir kr. milli mánaða. 16.9.2009 15:38
Ísland var í 16. sæti yfir aflahæstu fiskveiðiþjóðirnar Ísland var í 16. sæti listans yfir aflahæstu fiskveiðiþjóðir heims árið 2006 með heildarafla upp á 1,35 milljónir tonna. 16.9.2009 15:26
Royal Court á Guernsey heimilar málsókn gegn neyðarlögunum Umsjónarmenn þrotabús Landsbankans á Guernsey, sem eru frá Deloitte, munu hefja málsókn fyrir íslenskum dómstóli gegn neyðarlögunum fari svo að þeim takist ekki að hámarka endurheimtur fyrir innistæðueigendur bankans á eyjunni. The Royal Court á Guernsey, æðsti dómstóll eyjunnar, hefur nú heimilað umsjónarmönnunum slíka málsókn. 16.9.2009 13:54