Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Cantona og Tarantino tilnefndir í Cannes Árlega fyllist franska rivíeran af kvikmyndastjörnum, blaðamönnum og forvitnum ferðamönnum þegar Cannes-kvikmyndahátíðin, Gullpálminn, hefst. Meðal þeirra kvikmynda sem tilefndar eru þetta árið eru mynd Quentin Tarantino, Inglourious Basterds, og mynd Ken Loach, Looking for Eric, en þar er knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Eric Cantona aðalnúmerið. 23.4.2009 12:15
Lindsay orðin að tannstöngli Lindsay Lohan hefur alltaf verið grönn, en slúðurpressan vestanhafs segir að ástarsorgin sem hún hefur verið í undanfarna daga hafi leikið hana svo grátt að hún sé nánast orðin að tangstöngli. 22.4.2009 21:34
Eberg: Hér er best að vera Eberg fagnar útgáfu sinnar þriðju breiðskífu, Antidote, með útgáfutónleikum í kvöld á Sódómu Reykjavík. „Hún er ljúf og notaleg," svarar tónlistarmaðurinn Einar Tönsberg, sem kallar sig Eberg, aðspurður út í hans viðbrögð við frábærum dómum sem platan hans hefur fengið fyrir utan landssteinana. Hverju megum við búast við á tónleikunum í kvöld? „Lögin af nýju plötunni verða öll spiluð og einstaka eldra lag fær að fylgja með." „Það er hörkulið að spila með mér. Nói Steinn Einarsson á trommum, Haraldur Þorsteinsson á bassa og Pétur Ben á gítar og selló. Svo kemur Barði Johannsson og tekur eitt lag með okkur. Þetta ætti að vera fínasta skemmtun," segir Eberg þegar atlið berst að tónleikunum í kvöld. Býrðu á Íslandi? „Já, ég er fluttur á klakann. Hér er best að vera," segir hann áður en kvatt er. 22.4.2009 15:13
Athafnafólk veðjar á Laugaveginn „Mig hefur lengi langað að opna barnaverslun og sérstaklega eftir að hafa hellt mér út í barneignir. Ég elska börn," svarar Ingibjörg Þovarldsdóttir athafnakona aðspurð um nýja barnafataverslun sem hún opnaði ásamt Bödda klippara á Laugaveginum. „Ég dundaði mér við að setja saman konsept í vetur og við Böddi höfum í mörg ár talað um að gera eitthvað saman. Planið var nú tískuvöruverslun. Svo sagði ég honum frá þessu fyrir tilviljun sem við Jón vorum að gæla við og hann vildi endilega vera með í leiknum." 22.4.2009 11:25
Glæsileg opnun Ragnhildar Myndlistarkonan Ragnhildur Ágústsdóttir opnaði sýningu í Galleríi Fold um liðna helgi. Þetta er önnur einkasýning Ragnhildar en hún hefur lagt stund á nám í Bandaríkjunum í fjármálafræðum með myndlist sem aukafag. 22.4.2009 00:01
Nýtt myndskeið Dylans á Amazon Tónlistarmyndband af Together Through Life, væntanlegri plötu Bob Dylans, er fáanlegt á Amazon.com. Þrátt fyrir aðdáun Steve Jobs á verkeum Dylans, ákvað Dylan að velja Amazon frekar en iTunes til þess að sýna myndskeið lagsins „Beyond Here Lies Nothing" af væntanlegum geisladiski hans. Myndskeiðið var frumsýnt í dag. 21.4.2009 22:37
Paul Newman var ótrúr eiginkonu sinni Leikarinn Paul Newman hélt framhjá konu sinni ótal oft. Þetta kemur fram í nýrri ævisögu um leikarann sem byrjað er að skrifa einungis hálfu ári eftir að hann lést af krabbameini, 83 ára gamall. Newman var giftur Joanne Woodward í 50 ár og skildi hann eftir þrjár eftirlifandi dætur. Titill bókarinnar er A Life. 20.4.2009 22:03
Bo mætir í IDOLIÐ Á föstudaginn fá fimmmenningarnir sem eftir eru í Idol stjörnuleit, þau Sylvía, Matti, Hrafna, Lísa og Anna Hlín, það erfiða verkefni að freista þess að gera lög sem Björgvin Halldórsson hefur gert vinsæl í gegnum tíðina, að sínum. Bo sjálfur mun síðan sjálfur segja áhorfendum sögu þessara laga sem keppendur velja og hvernig til kom að hann söng þau inná plötu og gerði vinsæl. Idolvefur. 20.4.2009 12:17
Gæfulítill kapitalisti Ritstjórinn Jónas Kristjánsson gagnrýnir konung poppsins, Bubba Morthens harðlega á heimsíðu sinni. Tilefnið er er yfirlýsing tónlistarmannsins á eigin heimsíðu, Bubbi.is, en þar segist hann hvetja fólk til þess að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. 19.4.2009 20:48
Elaine Paige vill syngja með piparjúnkunni Söngfuglinn Susan Boyle mun fá draum sinn uppfylltan en söngkonan ElaniePaige hefur boðið henni að syngja með henni dúett hafi hún áhuga. 19.4.2009 20:42
Sigurvegari söngkeppni ætlar í þyrluflug „Þetta var ótrúlega skemmtilegt," lýsir Kristín Þóra Jóhannsdóttir, nýkrýndur sigurvegari Söngkeppni Framhaldsskólanna, sigurtilfinningunni að sigra keppnina. Kristín Þóra er nemi í fjölbrautaskólanum á Vesturlandi og segist sjálf vera skagamaður í húð og hár. 19.4.2009 13:05
Reyndi að selja Villtu-vinna-milljarð-stjörnu Faðir Rubinu Ali, sem sló í gegn sem litla sæta stelpan í kvikmyndinni, Villtu vinna milljarð, reyndi að selja dóttur sína til Saudi Arabísks sjeiks fyrir tvö hundruð þúsund pund. 19.4.2009 10:33
Verzló vann MORFÍS í tíunda sinn Verzlunarskóli Íslands tryggði sér í gærkvöldi sigur í Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla Íslands í ellefta sinn með sigri á Fjölbrautarskóla Suðurnesja. 18.4.2009 18:13
Piparjúnkan áður verið kysst Breska hefðardaman Susan Boyle, sem sló eftirminnilega í gegn í þættinum Britain´s got talent, hefur áður verið kysst þó hún haldi öðru fram. 18.4.2009 13:37
Lærir að ganga þriðja sinni „Ég er að læra að ganga í þriðja skipti. Er kominn upp, er með fjögurra punkta staf en get lítið hreyft mig,“ segir Jóhann Sigmarsson kvikmyndagerðarmaður – sem gegnir nafninu Jonni Sigmars. 18.4.2009 07:00
Margskipt veröld Jóns Ólafssonar Liðlega þrítugur hjúkrunarfræðingur í Reykjavík gaf nýverið út frumsamda barnabók sem hefur gengið vel, en í henni bregða krakkar sér í hlutverk dýra. 18.4.2009 06:00
Fischer fyrstur á Bíódögum Bíódagar Græna ljóssins hófust á fimmtudagskvöldið með frumsýningu íslensku heimildarmyndarinnar Me and Bobby Fischer eftir Friðrik Guðmundsson. Kannski við hæfi, enda var skáksnillingurinn annálaður bíóáhugamaður. Fjöldi fólks mætti í Háskólabíó til að vera viðstatt frumsýningu myndarinnar. Myndin mæltist mjög vel fyrir meðal áhorfenda og var fagnað ákaft í lokin. Stjarna myndarinnar var svo að sjálfsögðu meðal gesta. 18.4.2009 05:30
Hannar dúkkur fyrir börn með aðskilnaðarkvíða Vöruhönnuðurinn Oddný Magnea hannar dúkkur sem líkjast mæðrum barna. Þannig verður auðveldara fyrir börn að afbera fjarvist móðurinnar. 18.4.2009 04:30
Selur sundbolinn Pamela Anderson vonast til að geta fengið tæpa þrjú þúsund dollara, eða tæplega 400 þúsund krónur, fyrir sundbolinn fræga sem hún klæddist í sjónvarpsþáttunum Baywatch. Lycra-sundbolurinn varð heimsfrægur þegar Pamela sprangaði um í honum með David Hasselhoff en hann verður áritaður af leikkonunni brjóstgóðu. 18.4.2009 04:00
Unnið að komu Puff Daddy til Íslands Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nú unnið að því á bakvið tjöldin að fá rapparann Sean John Combs, betur þekktan sem Puff Daddy eða Diddy, til landsins. 18.4.2009 03:00
Eiga von á sínu þriðja barni - staðfest Slúðrið hefur verið staðfest. Ofurmódelið Heidi Klum á von á barni með eiginmanni sínum, söngvaranum Seal. Orðrómur þessa efnis hefur verið á kreiki í nokkurntíma en söngvarinn staðfesti þetta í útvarpsviðtali í gær. 17.4.2009 22:40
Ragnheiður Gröndal á Loftleiðum í kvöld Ragnheiður Gröndal og Svavar Knútur eru á meðal þeirra listamanna sem koma fram á mikilli tónlistarveislu sem ráðgert er að halda í bíósalnum á Hótel Loftleiðum í kvöld klukkan átta. Tónleikarnir eru haldnir til styrktar Fjölskylduhjálpar Íslands. Gert er ráð fyrir að mðar verði seldir allt fram á kvöld og við innganginn. Miðasölusími er 444-5000 17.4.2009 13:59
Beckham ber að ofan - myndband Í meðfylgjandi myndbandi má sjá David Beckham beran að ofan leika í nýrri símaauglýsingu Motorola. Um er að ræða nýjan lúxus síma, sem nefnist AURA. Síminn kemur á markað í næstu viku. Gerð auglýsingarinnar má sjá hér. Hér má sjá auglýsinguna. 17.4.2009 10:27
Gunnar Eyjólfsson bræðir jafnvel hörðustu menn Gunnar Eyjólfsson hefur farið slíkum hamförum í hlutverki skipstjórans í leikverkinu Hart í bak að jafnvel hörðustu mönnum hefur vöknað um augu. Honum barst nýverið skipstjórabúningur frá huldumanni sem hann auglýsir nú eftir. 17.4.2009 07:00
Jóni Atla hrósað í Skotlandi Verk Jóns Atla Jónassonar, Djúpið, fær frábæra dóma í skoskum fjölmiðlum en verkið var frumsýnt þar ytra nýverið. Bæði Scotsman og Herald gefa því fjórar stjörnur en leikstjóri sýningarinnar er Graeme Maley. Með eina hlutverkið fer Liam Brennan en Djúpið er einleikur og segir frá manni sem berst upp á líf og dauða eftir hörmulegt sjóslys. 17.4.2009 06:00
Morfís snýst um geimferðir „Umræðuefnið verða geimferðir; Verzlunarskólinn er á móti en Fjölbrautaskólinn á Suðurnesjum er með og þetta verður hörkukeppni,“ segir Oddur Sigurðsson, formaður Morfís. Úrslitin ráðast í þessari vinsælu ræðukeppni framhaldsskólanna í kvöld í stóra sal Háskólabíós, en í þessari keppni hafa margir af helstu ræðuskörungum þjóðarinnar stigið sín fyrstu skref. 17.4.2009 05:00
Fyrirliði pókerlandsliðsins sakaður um svik og pretti „Þeir eru harðir bak við lyklaborðið þessir gæjar. Gaman ef þeir myndu labba upp að stóra frænda sínum og segja að hann sé ekki lengur fyrir-liði. Ég er brjálaður,“ segir Egill „Gillzenegger“ Einarsson einkaþjálfari sem kallar sig „Störe“ um þessar mundir. Og það sem meira er – hann hikar ekki við að titla sig landsliðsfyrirliða Íslands í póker ef svo ber undir. Sem er umdeilt. 17.4.2009 03:30
Yrsu hrósað í Independent Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur er hrósað í hástert í breska stórblaðinu The Independent. Söguþráðurinn er sagður ákaflega spennandi og lýsingar Yrsu á íslensku landslagi einstakar. 17.4.2009 03:00
Frú Rooney íhugar keisara Hin ólétta Coleen Rooney er að íhuga keisara til þess að eiginmaðurinn Wayne Rooney geti spilað mikilvæga leiki með landsliðinu í undankeppni HM í fótbolta. Coleen gengur með fyrsta barn þeirra hjóna en hún er sett þann 10.október. 16.4.2009 20:16
Sagði Miley Cyrus að búa til kynlífsmyndband Leikarinn Jamie Foxx hefur beðið Miley Cyrus afsökunar á ummælum sínum um að hún ætti að útbúa kynlífsmyndband og þroskast. 15.4.2009 22:25
Vanur drullunni - myndband Gylfi Þór Sigurðsson var í síðasta þætti rekinn úr Idol stjörnuleit eftir að hann flutti lagið Try A Little Tenderness sem er best þekkt í flutningi The Commitments. Sjá má viðtal við Gylfa kvöldið sem hann var sendur heim þar sem hann ræðir hvernig hann tekst á við dómaradrullu Selmu, Jóns og Björns Jörundar sem hraunuðu yfir Gylfa nánast öll kvöldin sem hann tók þátt í Idolinu. 15.4.2009 10:44
Ný kærasta Mel Gibson stígur fram Rússneska söngkonan Oksana Pochepa, 24 ára, stígur fram í dagsljósið í viðtali við breska fjölmiðilinn Sun þar sem hún viðurkennir að eiga í ástarsambandi við leikarann Mel Gibson. Haft er eftir Oksana, sem varð vinsæl í heimalandi sínu aðeins 13 ára gömul: „Sambandið er alvarlegt og ég vona að það standi yfir lengi." „Við erum ólík. Mel er þroskaður maður sem veit nákvæmlega hvað hann vill og ég líka. Ég veit hvað ég vil." Söngkonan, sem starfar líka sem fyrirsæta, segist hafa heimsótt Mel síðasta sumar meðan hann var við tökur á kvikmyndinni Boston. Eiginkona leikarans, Robyn Gibson, hefur farið fram á skilnað eftir 28 ára hjónaband. Skilnaðurinn verður væntanlega einn sá kostnaðarsamasti í sögunni. Robyn fer fram á að Mel greiði henni 500 milljón dali eða rúmir 64 milljarðar kr. Hér má sjá unga Rússann syngja. 15.4.2009 10:00
Þýsk poppstjarna handtekin vegna HIV smits Nadja Benaissa söngkona úr þýsku stúlknasveitinni No Angels hefur verið handtekin vegna grunsemda um að hafa smitað rekkjunauta af HIV. Það eru þýskir miðlar sem greina frá þessu í dag. 14.4.2009 21:38
Dreymir að syngja með Siggu - myndband „Nei mér hefur ekki verið líkt við Siggu Beinteins en draumurinn var alltaf að syngja bakraddir hjá henni. Mér fannst það mjög spennandi," segir Sylvía Rún Guðnýjardóttir. Óklippt viðtal við Sylvíu Rún má sjá á Facebook síðu Fólks í fréttum þar sem hún ræðir um stjörnustæla Siggu meðal annars. 14.4.2009 19:48
Stórmynd Baltasars í tökur á Íslandi eftir áramót Tökur á Víkingi, stórmynd Baltasars Kormáks hefjast á Íslandi eftir áramót. Framleiðslukostnaðurinn er á bilinu sex til tíu milljarðar króna sem að mestu verða eftir hér á landi. 14.4.2009 19:15
Krabbamein Þuríðar fer minnkandi - myndband „Þessi stelpa sýnir það að ótrúlegustu kraftaverk gerast og hvað það er dýrmætt að halda í vonina," segja foreldrar Þuríðar Örnu sem fæddist árið 2002. Þuríður hefur þurft að berjast við alvarleg veikindi síðan 25. október árið 2004 þegar hún greindist með illvíga flogaveiki og góðkynja æxli í höfði. Tveimur árum síðar var æxlið orðið illkynja. 14.4.2009 15:39
Þráir góða sæta konu - myndband „Nei ég er ekki á föstu. Ég er búinn að vera á lausu lengi," segir Mattías Arnar Þorgrímsson baksviðs í Smáralindinni aðspurður af hverju hann er ekki lofaður. Meðfylgjandi má sjá viðtalið við Matta sem var tekið eftir að hanni söng lagið Kiss From A Rose úr Batman Forever. 14.4.2009 14:05
Neydd til að hlusta á metal - myndband „Ég hlusta mikið á metal. Það var eiginlega pabbi sem kom mér inn í þennan tónlistarheim. Ég var neydd til að hlusta á þetta," sagði Alexandra Elfa Björnsdóttir baksviðs í Smáralind eftir að hún söng lagið What A Feeling úr Flashdance. Viðtalið við Alexöndru í heild sinni má sjá á Facebook síðu Fólks í fréttum þar ræðir hún um villinginn innra með henni, hvað henni finnst um að alast upp í Breiðholtinu og neðri vörina sem titrar undir álagi. 14.4.2009 11:59
Pabbi reyndi aldrei að finna mig - myndband „Ég fann hann í gegnum Facebook," segir Anna Hlín Sekulic Idolkeppandi aðspurð hvernig hún kynntist pabba sínum. „Ég á annan pabba sem ég ólst upp með. Hann er pabbi minn. Hann heitir Stefán Jónsson. Hann stóð sig 150% í stykkinu," útskýrir Anna Hlín einlæg baksviðs í Smáralindinni eftir að hún söng lagið Don´t Stop Me Now úr Shaun Of The Dead. Meðfylgjandi má sjá viðtalið við Önnu Hlín. 14.4.2009 11:15
Ricci deitar risa Leikkonan Christina Ricci og kærasti hennar Benjamin Owen sáust í hádegishléi á dögunum þar sem þau fengu sér sushi í Los Angeles. Benjamin sem er einnig leikari er í stærri kantinum og lítur út eins og risi við hlið unnustu sinnar. 13.4.2009 18:00
Hætt að drekka og dópa Súpermódelið Naomi Campbell hefur lofaði því að snerta hvorki áfengi né fíkniefni aftur. Þetta kemur fram í viðtali við fyrirsætuna í GIANT tímaritinui þar sem hún prýðir forsíðuna. Hún hefur undanfarið verið í meðferð við bæði áfengi og fíknefnum auk þess sem hún hefur verið að taka skapvandamálum sínum. 13.4.2009 16:00
Eignimaður Amy Winehouse barnaði aðra í meðferð Atvinnulaus tveggja barna móðir í Bretlandi segist vera gengin sex vikur með barn Blake Fielder Civil sem er hvað þekktastur fyrir að hafa verið giftur söngdívunni og djammdrottningunni Amy Winehouse. Það er The Sun sem segir frá í dag. 13.4.2009 11:04
Madonna vill enn ættleiða stúlkuna í Malawi Söngkonan Madonna vill enn ættleiða hina fjögurra ára gömlu stúlku Chifundo James. Poppstjarnan vill tryggja stúlkunni ástríkt og umhyggjusamt umhverfi til að alst upp í. 12.4.2009 20:00
Button brjálaður út í Richard Branson Ökuþórinn Jenson Button var allt annað en sáttur með milljónamæringin Richard Branson á dögunum þegar sá síðarnefndi veitti Jessicu Michibata, kærustu Buttons, of mikla athygli. 12.4.2009 17:15
Britain's Got Talent sló áhorfsmet Britain's Got Talent þættirnir eru afar vinsælir í Bretlandi. Ný þáttaröð hóf göngu sína í gær og sló upphafsþátturinn met þegar 11,4 milljónir fylgdust með. Rúmlega 10 milljónir Breta fylgdust með fyrsta þætti þáttaraðarinnar í fyrra. 12.4.2009 16:00