Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsakar hryðjuverkaspólur sem dreift var í moskum Lögregla í Vestur-Yorkshire á Bretlandi rannsakar nú hvort myndböndum og DVD-diskum þar sem hvatt er til hryðjverka og ofbeldis hafi verið dreift í tveimur moskum í bænum Dewsbury um helgina. 9.11.2005 09:45
Hamingjusamir jafna sig fyrr á flensu Fólk sem er í hamingjusömu sambandi á auðveldara með að sigrast á flensu en þeir sem eru ósáttir í hjónabandi. Niðurstöður nýrrar rannsóknar lækna í Birmingham benda til þess að bein fylgni sé á milli hamingju í hjónabandi og þess hve fljótt fólk jafnar sig af flensu. 9.11.2005 09:30
Brown kallaður heim frá Ísrael vegna þingmáls Ferð Gordons Browns, fjármálaráðherra Bretlands, til Miðausturlanda varð heldur endaslepp því skömmu eftir að hann kom til Tel Aviv í Ísrael í gær var hann kallaður aftur heim til að taka þátt í mikilvægri atkvæðagreiðslu um lög gegn hryðjuverkum sem bera á undir breska þingið í dag. 9.11.2005 08:45
Japanar kaupa fuglakjöt af Indverjum vegna flensu Japanar hyggjast í fyrsta sinn kaupa alifuglakjöt frá Indlandi vegna fuglaflensunnar sem geisar í Asíu. Japanar hafa hingað til keypt fuglakjöt frá Taílandi og Kína en eftir að fuglaflensa greindist þar hafa yfirvöld bannað allan innflutning þaðan. 9.11.2005 08:30
Geimskutla af stað áleiðis til Venusar Geimskutlan Venus Express tók á loft frá Kasakstan í nótt. Geimvísindastofnun Evrópu hefur hannað flaugina, sem er ætlað að rannsaka yfirborð plánetunnar Venus. Geimskotið í nótt heppnaðist vel, en því var frestað um tvær vikur eftir að rannsóknir leiddu í ljós bilun í hitastilli. 9.11.2005 08:15
Unglingur gerði skotárás í gagnfræðaskóla Fimmtán ára gamall drengur hóf í gær skothríð í gagnfræðaskóla í Tennessee í Bandaríkjunummeð þeim afleiðingum að einn lést og tveir særðust alvarlega. Sá sem lést var aðstoðarskólastjóri í skólanum og annar hinna særðu var skólastjórinn. Ástæða árásarinnar liggur ekki fyrir að sögn lögreglu. 9.11.2005 08:00
Mannskæð bílsprengjuárás í Baquba Bílasprengja sprakk í Írak í dag. Sjö írakskir lögreglumenn létust og níu manns særðust, þar á meðal þrír almennir borgarar, þegar bílasprengja sprakk í sjálfsmorðsárás á lögreglusveit. Árásin átti sér stað í borginni Baquba, sem er rétt norðan við Bagdad. 9.11.2005 07:45
CIA rannsakar upplýsingaleka um leynifangelsi Bandaríska leyniþjónustan hefur hafið rannsókn á því hvernig dagblaðið Washington Post komst yfir upplýsingar um meint leynifangelsi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu. Leyniþjónustan hefur farið þess á leit að dómsmálaráðuneytið kanni hver hafi lekið upplýsingunum í Washington Post. 9.11.2005 07:30
Óeirðir áfram víða um Frakkland Útgöngubann og hert löggæsla skiluðu tilætluðum áhrifum í París í nótt. Mikið dró úr óeirðunum í borginni, en sömu sögu er ekki að segja úr öðrum borgum landsins. Í Lyon, Toulouse, Bordeux og Amiens héldu óróaseggir uppteknum hætti og þar logaði allt í óeirðum. 9.11.2005 07:09
Frakkar setja útgöngubann Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti í gær yfir neyðarástandi svo að setja mætti útgöngubann í óeirðabæjum. Villepin forsætisráðherra segir að uppræta verði misréttið sem innflytjendur megi stöðugt þola. 9.11.2005 06:45
Undirbúningur hryðjuverkaárásar var á lokastigi Ástralska lögreglan handtók sautján grunaða hryðjuverkamenn í morgun og segist með því hafa komið í veg fyrir meiri háttar hryðjuverkaárás í landinu. Undirbúningur árásarinnar á að hafa verið á lokastigi. 8.11.2005 19:47
Athugasemdir við framkvæmd kosninga Það fór eins og búast mátti við í þingkosningunum í Aserbædjan um helgina. Flokkur forsetans Ilham Alievs fagnaði sigri, en alþjóðleg eftirlitsnefnd taldi margt athugavert við framkvæmd kosninganna. 8.11.2005 19:46
Fimm stjörnu hótel í Kabúl Fjórum árum eftir að talibanastjórnin var hrakin frá völdum í Afganistan opnaði fyrsta fimm stjörnu hótelið í Kabúl. Sjálfur forsetinn, Hamid Karzai, var mættur til að fagna þessum áfanga, en viðurkenndi að það væru ýmis vandamál óleyst enn. 8.11.2005 19:45
Palestínskur unglingur drepinn Palestínskur unglingur var skotinn til bana af ísraelskum hermönnum í bænum Nablus á Vesturbakkanum í dag. Að sögn talsmanns Ísraelshers var skotið á hóp Palestínumanna sem talið var að hafi verið að reyna að koma fyrir sprengjum í vegkanti á svæðinu. 8.11.2005 17:59
Skipuleggjendur Hróarskeldurhátíðarinnar sýknaðir af skaðabótakröfu Skipuleggjendur Hróarskeldurhátíðarinnar voru í dag sýknaði í eystri landsrétti í Danmörku og þurfa því ekki að greiða aðstandendum ein fórnarlambsins bætur, sem fórst á tónlistarhátíðinni árið 2000 8.11.2005 17:06
Enginn möguleiki á sanngjörnum réttarhöldum Talsmaður lögmanna Saddams Husseins og samstarfsmanna hans sagði nú síðdegis að enginn möguleiki væri á sanngjörnum réttarhöldum á meðan öryggi manna væri ekki tryggt. Einn verjenda í málaferlunum gegn Saddam var skotinn til bana og annar særðist þegar skotið var á bíl þeirra í Bagdad í dag. 8.11.2005 16:15
Evrópuráðið hefur rannsókn á meintum leynifangelsum Evrópuráðið hóf í dag rannsókn sína á því hvort leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, starfræki leynifangelsi í Austur-Evrópu. Bandaríska dagblaðið Washington Post greindi frá þessu í síðustu viku og sagði að þar væru meintir hryðjuverkamenn í haldi þar sem þeir væru pyntaðir til sagna. 8.11.2005 14:37
Ekki miklar breytingar á hryðjuverkafrumvarpi Breska ríkisstjórnin mun ekki gera veigamiklar breytingar á umdeildum hryðjuverkalögum sem leggja á fram á breska þinginu á morgun. Þetta segir Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands. Búist hafði verið við að ríkisstjórnin myndi leggja fram málamiðlun um frumvarp vegna harðrar andstöðu við það í öllum þingflokkum en af því verður ekki. 8.11.2005 13:45
Skotið á verjendur í málaferlum gegn Hussein Einn verjenda í málaferlunum gegn Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, var skotinn til bana og annar særðist þegar skotið var á bíl þeirra í Baghdad í dag. Mennirnir voru verjendur samstarfsmanna Saddam Hussein, sem ákærðir eru fyrir glæpi gegn mannkyni. 8.11.2005 13:30
Forsetakosningar í Líberíu í dag Líberíumenn ganga í dag til seinni umferðar forsetakosninga sem eru þær fyrstu síðan fjórtán ára borgarastyrjöld í landinu lauk. Valið stendur á milli tveggja frambjóðenda, fyrrverandi knattspyrnugoðsins George Weah, sem hlaut flest atkvæði fyrri umferð kosninganna, og Ellenar Johnson-Sirleaf, hagfræðings sem menntuð er í Harvard og sækist eftir að verða fyrsta konan í leiðtogaemætti í Afríkuríki. 8.11.2005 13:00
Pólskir tannlæknar til Svíþjóðar Eins og sagt var frá í fréttum Bylgjunnar í gær telst það orðið til kosta meðal verkamanna á Austurlandi að kunna pólsku. Í framtíðinni gæti pólskukunnátta þó komið sér vel víðar. 8.11.2005 12:45
Veita leyfi til að koma á útgöngubanni Nokkuð dró úr uppþotum í úthverfum Parísar í gærkvöld eftir að frönsk yfirvöld tilkynntu að borgar- og sveitastjórnum yrði heimilt að setja útgöngubann til að stemma stigu við óeirðunum. Nóttin var þó ekki átakalaus því víða annars staðar í Frakklandi voru bílar brenndir og ráðist gegn lögreglu. 8.11.2005 11:00
Skútsiglingamenn í vandræðum Franskir og breskir björgunarmenn reyna nú að bjarga áhöfnum þriggja skútna sem lentu í óveðri vestur af Biscaya-flóa í nótt. Skúturnar voru að taka þátt í kappsiglingu milli Frakklands og Brasilíu þegar óveðrið skall á. Hefur tveimur þeirra þegar hvolft samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins og mastrið er brotið á því þriðja. 8.11.2005 10:30
Hermenn ákærðir fyrir misþyrmingar í Írak Fimm bandarískir hermenn í Írak hafa verið ákærðir fyrir að beita fanga harðræði nýlega. Frá þessu greinir Bandaríkjaher. Fimmmenningarnir eiga að hafa kýlt og sparkað í menn sem biðu þess að verða fluttir í fangelsi í landinu í byrjun september. 8.11.2005 09:45
Maður deyr af völdum fuglaflensu í Víetnam Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest að banamein manns sem lést í lok október hafi verið fuglaflensa. Hann sá fyrsti sem deyr af völdum hennar eftir að hún greindist aftur í fuglum þar í landi í haust. Maðurinn, sem var 35 ár, dó eftir að hafa borðað kjúkling með fjölskyldu sinni en ættingjar hans hafa ekki kennt sér meins eftir átið. 8.11.2005 09:30
Viagra ekki bara stinningarlyf Þýskir vísindamenn hafa komist að því að Viagra er ekki eingöngu stinningarlyf, heldur virkar einnig á blóðrásarsjúkdóminn Raynauds. Sjúkdómurinn sem hrjáir aðallega ungar konur lýsir sér í hægri blóðrás til handa og fóta sem leiða til mikils handkulda, útbrota og skjálfta. Ekkert lyf hefur dugað á sjúkdóminn hingað til. En eftir nokkra vikna inngjöf Viagra sáust batamerki á flestum konunum. 8.11.2005 09:00
De Beers gefur frá sér eignarhald í námum De Beers demantafélagið, eitt áhrifamesta félagið á demantamarkaðinum, mun í dag láta 15 % af eignarhaldi sínu í suður-afrískum demantanámum í hendur svartra fjárfesta í landinu. Þetta mun vera ein mesta uppstokkun í hundrað og sautján ára sögu félagsins. 8.11.2005 08:55
Norsk lögreglukona sektuð Norsk lögreglukona hefur verið dæmd til að greiða 850.000 norskar krónur í sekt fyrir fjárdrátt. Fjárdrátturinn átti sér stað á margra ára tímabili án þess að nokkurn grunaði, en hin 39 ára gamla kona dró að sér fé við afhendingu vegabréfa til norskra ríkisborgara. Aftenposten sagði frá. 8.11.2005 08:52
Ákærðir fyrir stríðsglæpi Fimm grunaðir hryðjuverkamenn, sem eru í haldi í hinu bandaríska Guantanamo fangelsi á Kúbu, hafa verið ákærðir fyrir stríðsglæpi og munu mæta fyrir herrétt. Þar með hafa níu manns, sem sitja í Guantanamo, sætt ákæru. 8.11.2005 08:15
Sveitarstjórnir fá leyfi til að koma á útgöngubanni Sveitastjórnir í Frakklandi hafa fengið leyfi til að setja á útgöngubann frá og með morgundeginum. Þetta er gert til að reyna að stemma stigu við óeirðunum sem geisað hafa síðustu tólf kvöld í úthverfum Parísar og víðar um landið. 8.11.2005 07:30
Fjárhagstjónið verður mikið Alþjóðabankinn telur að heimsframleiðslan dragist saman um 50.000 milljarða króna á ári verði fuglaflensan að heimsfaraldri. 8.11.2005 07:00
Snarráður flutningabílstjóri Lögreglan í Kaliforníu hafði elt bílstjóra í klukkustund á I-5 hraðbrautinni og reynt allt til að fá hann til að stoppa, þegar skjótráður flutningabílstjóri ákvað að taka málið í sínar hendur. 8.11.2005 19:47
Fujimori neitað um lausn gegn tryggingu Hæstiréttur Chile hafnaði í dag kröfu verjenda Albertos Fujimoris, fyrrverandi forseta Perús, um að hann yrði látinn laus gegn tryggingu. Fujimori var handtekinn í gær skömmu eftir að hann kom til Chiles, en hann hefur verið sakaður um mannréttindabrot og spillingu í valdatíð sinni í Perú sem stóð yfir á árunum 1990-2000. 8.11.2005 15:00
Neita að hafa aðstoðað dauðafanga við flótta Meðlimir þýskra samtaka sem berjast gegn dauðarefsingu, neita alfarið að hafa aðstoðað Charles Victor Thompson við að sleppa úr Houston fangelsi í Texas í síðustu viku. Thompson beið aftöku fyrir morð sem hann framdi árið 1998. 7.11.2005 22:31
15 handteknir vegna gruns um að vera skipuleggja hryðjuverkaárás 15 manns voru handteknir í Sydney og Melbourne í Ástralíu í dag, en talið er að fólkið hafi verið að skipuleggja stórfellda hryðjuverkaárás og þá hugsanlega í Ástralíu. 7.11.2005 21:57
Mannskæðasti hvirfilbylur í Bandaríkjunum hingað til Nú er ljóst að 23 manns fórust og meira en 200 manns særðust vegna hvirfilbylsins sem fór yfir suðvesturhluta Indiana fylkis og norðurhluta Kentuckyfylkis í Bandaríkjunum aðfaranótt sunnudags. Fjöldi heimilla eru rústir einar en íbúar í hjólhýsagörðum urðu hvað verst úti. 7.11.2005 21:37
Ríkisstjórnin veitir leyfi til að setja útgöngubann í Frakklandi Ætlunin er að gefa sveitastjórnum í Frakklandi, leyfi til að setja á útgöngubann á þeim svæðum sem hafa orðið hvað verst úti vegna óeirðanna sem hafa geysað síðastliðin 11 kvöld. Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti þetta í dag. 7.11.2005 20:32
Inflúensufaraldur gæti kostað yfir 33 þúsund milljarða Mannskæður heimsfaraldur inflúensu gæti kostað ríkustu þjóðir heims allt að 550 milljarða dollara, yfir 33 þúsund milljarða króna, að mati sérfræðinga Alþjóðabankans. Sérfræðingar funda nú í Genf í Sviss til að undirbúa varnir gegn inflúensufaraldri sem óttast er að verði skæður, til dæmis ef fuglaflensa stökkbreytist og berst í mannfólk. 7.11.2005 19:33
Franskir fjölmiðlar gagnrýna stjórnvöld Franskir fjölmiðlar eru sammála um að engar töfralausnir séu í boði vegna óeirðanna sem hafa geisað í Frakklandi síðustu 11 kvöld. Franskir fjölmiðlar segja stjórnmálamenn hafa brugðist fólki í úthverfunum síðastliðna fjóra áratugi. 7.11.2005 19:32
Segir að pyntingar viðgangist ekki Bandaríkjaforseti neitar því að pyntingar séu meðal úrræða sem gripið sé til í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Hann segir hins vegar að Bandaríkin geri allt sem hægt sé til að klekkja á þeim sem vilji þeim illt. 7.11.2005 19:23
Sprengjuárás fyrir utan lögregluvarðstöð Níu manns fórust og tíu manns særðust þegar bílasprengja sprakk í suðurhluta Bagdad í dag. Sprengjan sprakk nálægt lögregluvarðstöð en sex þeirra sem fórust voru lögreglumenn. 7.11.2005 18:14
Fyrrum forseti Perú handtekinn í dag Stjórnvöld í Chile handtóku í dag fyrrverandi forseta Perú, Alberto Fujimori, en hann hefur verið eftirlýstur fyrir spillingu og mannréttindabrot síðan hann flúði Perú árið 2000. Fujimori var handtekinn á hóteli í Santiago í Chile en hann hefur dvalist í Japan sem flóttamaður frá árinu 2000. 7.11.2005 18:06
Fuglaflensa geti kostað iðnríkin 33 þúsund milljarða Alþjóðabankinn segir að fuglaflensa gæti kostað hinar iðnvæddu þjóðir heims allt að 550 milljarða dollara, jafnvirði 33 þúsund milljarða íslenskra króna, ef hún yrði að faraldri og færi að berast á milli manna. 7.11.2005 14:45
Segir kosningar ekki hafa staðist alþjóðlegar kröfur Kosningarnar í Aserbaídjan stóðust ekki alþjóðlegar kröfur um lýðræðislegar kosningar þótt nokkrur framþróun hafi orðið frá síðustu kosningum. Þetta segir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, en fulltrúar hennar fylgdust með kosningunum sem fram fóru um helgina. 7.11.2005 14:12
Maður látinn vegna óeirðanna í París Maður sem barinn var í óeirðum í úthverfi Parísar á föstudaginn var, lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í dag. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti Frakklands. Maðurinn hafði legið í dái alla helgina, en hann er sá fyrsti sem deyr í óeirðunum sem staðið hafa yfir 11 kvöld í röð. 7.11.2005 13:45