Undirbúningur hryðjuverkaárásar var á lokastigi 8. nóvember 2005 19:47
Ástralska lögreglan handtók sautján grunaða hryðjuverkamenn í morgun og segist með því hafa komið í veg fyrir meiri háttar hryðjuverkaárás í landinu. Undirbúningur árásarinnar á að hafa verið á lokastigi. Starfsemi þessa hryðjuverkahóps hefur verið til rannsóknar í sextán mánuði og lét lögreglan til skarar skríða í nótt þegar fimm hundruð lögreglumenn réðust til inngöngu í tuttugu og þrjú hús í Sydney og Melbourne. Hættuleg efni, ýmiss konar vopn og tölvur voru gerðar upptækar. Ekki hefur verið gefið upp hvar átti að fremja árásirnar, eingöngu að þær hafi beinst að saklausum borgurum. Og ljóst þykir að mennirnir hafi verið í tengslum við alþjóðleg hryðjuverkasamtök. Hægt var að staðfesta tengls milli kemísku efnanna sem fundust og kemísku efnanna sem notuð voru í hryðjuverkaárásunum í London. Bálreiðir stuðningsmenn hinna grunuðu söfnuðust saman fyrir framan dómshúsið í Melbourne og tóku reiði sína út á myndatökumanni. Einn hinna grunuðu liggur mikið slasaður á sjúkrahúsi eftir skotbardaga við lögreglu. Þó að áttatíu og átta Ástralir hafi látið lífið í sprengingunum á Balí fyrir þremur árum og sprengjuárás hafi verið gerð á ástralska sendiráðið í Indónesíu í fyrra, þá hefur aldrei verið gerð hryðjuverkaárás á landsvæði Ástralíu sjálfrar. Ný löggjöf um varnir gegn hryðjuverkum tók gildi í Ástralíu á fimmtudaginn. Hún færir lögreglunni aukin völd og má vera að þess vegna hafi verið beðið með aðgerðir fram á síðustu stundu. Löggjöfin hefur verið gagnrýnd líkt og víða annars staðar, þar sem óttast er að hún gefi færi á að mannréttindi verði ekki virt. Forsætisráðherrann hefur blásið á slíkt. Hann segir að ef hann geti tryggt öryggi almennings muni hann gera það.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira