Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Elsta kona í heimi látin Hollensk kona, sem samkvæmt Heimsmetabók Guinness var elst jarðarbúa, lést í morgun 115 ára að aldri. Hendrikje van Andel-Schipper, eða Hennie eins og hún var kölluð, hafði undanfarin ár búið á hjúkrunarheimili í bænum Hoogenveen en hún lést í svefni í nótt að sögn forstöðumanns hjúkrunaheimilisins. 30.8.2005 00:01
Tugir látnir og gríðarlegt eignatjón af völdum fellibylsins Meira en fimmtíu manns létust þegar fellybylurinn Katrín skall á suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Eyðileggingin er gríðarleg og fjárhagslegt tjón vegna fellybylsins er talið nema vel á annað þúsund milljarða íslenskra króna. 30.8.2005 00:01
Líkleg valdaskipti í Noregi Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Jens Stoltenberg, leiðtogi Verkamannaflokksins, verði næsti forsætisráðherra Noregs. Samkvæmt nýrri könnun stefnir í stórsigur vinstri flokkanna í þingkosningunum í Noregi eftir tvær vikur. 30.8.2005 00:01
Annar bruninn á fimm dögum Sjö létust og þrettán slösuðust þegar mikill eldur kviknaði í íbúðarhúsi í París í Frakklandi í nótt. Þetta er í annað sinn á aðeins fimm dögum sem eldur kemur upp í íbúðarhúsi afrískra innflytjenda í borginni. 30.8.2005 00:01
Varnargarðar brustu í New Orleans Minnst 65 létust þegar fellibylurinn Katrín skall á suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Flestir þeirra sem staðfest er að hafi farist voru búsettir í einni og sömu strandsýslunni í Missisippi. Óttast er að tala látinna muni hækka þegar björgunarsveitarmenn hafa komist á öll svæðin sem urðu fyrir Katrínu. Í morgun brast flóðvarnargarður sem hélt stöðuvatninu Lake Pontchartrain við New Orleans í skefjum. Við það jukust flóðin í borginni enn frekar. 30.8.2005 00:01
Brennuvargar urðu barni að bana Lögregla í Bretlandi leitar nú tveggja manna sem réðust inn í hús og kveiktu í því með þeim afleiðingum að fjögurra mánaða barn lést og móðir þess meiddist lítillega. Mennirnir ruddust inn í íbúð mæðginanna í Newcastle, rotuðu móðurina og kveiktu svo í íbúðinni. Þegar móðirin rankaði við sér höfðu hendur hennar verið bundnar fyrir aftan bak en henni tókst að hringja í neyðarlínuna með því að nota tunguna. 30.8.2005 00:01
Vill þjóðnýta landareignir hvítra Flokkur Roberts Mugabes, forseta Simbabve, samþykkti í dag að breyta stjórnarskrá landsins svo þjóðnýta megi landareignir hvítra manna sem teknar hafa verið eignarnámi og eigendurnir hraktir á brott. Breytingin felur einnig í sér leyfi til að setja ferðabann á þá sem stjórnin flokkar sem „svikara“, það er þá sem ekki styðja forsetann. 30.8.2005 00:01
Netanyahu vill leiða Likud Benjamin Netanyahu, fyrrverandi fjármálaráðherra Ísraels, tilkynnti í dag að hann muni keppa við Ariel Sharon um leiðtogasætið í Likud-flokknum. Flokkurinn mun líklega velja sér formann fyrir lok ársins. Netanyahu verður fulltrúi harðlínumanna sem eru ósáttir við þá stefnu Sharons að rýma landnemabyggðir á Gaza og nokkrar á Vesturbakkanum til að reyna að ná sáttum við Palestínumenn. 30.8.2005 00:01
Herlög taka gildi í New Orleans Lögregla í New Orleans hefur lýst herlög í gildi til þess að reyna að koma í veg fyrir þjófnaði í kjölfar þess að fellibylurinn Katrín fór þar um og olli miklu tjóni. Frá þessu greinir <em>Sky</em>-fréttastöðin. Útgöngubann hefur tekið gildi í borginni og íbúar eru hvattir til þess að sjóða drykkjarvatn sitt þar sem yfirvöld óttast að það hafi mengast í flóðunum sem fylgdu Katrínu. 30.8.2005 00:01
Barnamorðingja leitað Tveir karlmenn réðust inn í hús í Newcastle á sunnudagskvöldið, rotuðu þar konu sem þar bjó og kveiktu svo í. Konan vaknaði skömmu síðar, bundin á höndum, en þá var mikill reykur í íbúðinni. 30.8.2005 00:01
Lofthjúpur um Enceladus Geimvísindamenn segja uppgötvanir sínar um Enceladus, eitt tungla Satúrnusar, hreint út sagt ótrúlegar. Með því að nota hið geysitæknilega geimfar Cassini-Huygens hefur þeim tekist að fá staðfest að umhverfis tunglið, sem er rétt um 500 kílómetrar í þvermál, er allþykkur lofthjúpur. 30.8.2005 00:01
Sjö innflytjendur létust í bruna Sjö innflytjendur frá Fílabeinsströndinni létust þegar niðurnítt íbúðarhús í úthverfi Parísar brann til grunna í fyrrinótt, þar af fjögur börn. 30.8.2005 00:01
Óvenjulegt innbrot í Þýskalandi Lögregla í Itzstedt í Þýskalandi glímdi á dögunum við heldur óvenjulegan og kræfan innbrotsþjóf í bænum. Tillkynning barst lögreglunni um að brotist hefði verið inn í íbúð í bænum þar sem myrkvunarhleri hafði verið skemmdur, gardínur rifnar niður og húsgögn skemmd. Við nánari eftirgrennslan fannst svo brotið fiskabúr á gólfi íbúðarinnar og fisktætlur á víð og dreif. 30.8.2005 00:01
Lestarstöð rýmd í Kaupmannahöfn Lestarstöðin Österport í Kaupmannahöfn var rýmd í dag á háannatíma vegna tösku sem enginn kannaðist við að eiga. Sprengjusveit lögreglunnar mun taka töskuna og sprengja ef engin önnur skýring finnst. Danir eru farnir að hafa vaxandi áhyggjur af hryðjuverkum og hefur öryggisgæsla á fjölförnum stöðum eins og Österport verið aukin. 30.8.2005 00:01
Mótmæltu yfirgangi stórfyrirtækja Til stympinga kom á milli lögreglu og fjölda mótmælenda við Óperuhúsið í Sydney í Ástralíu í dag, en þar fer fram ráðstefna helstu leiðtoga í alþjóðlegu viðskiptalífi á vegum viðskiptatímaritsins <em>Forbes</em>. Nokkur hundruð mótmælendur söfnuðust saman í Sydney og gengu að Óperuhúsinu þar sem þeir mótmæltu yfirgangi stórfyrirtækja í alþjóðavæðingu heimsins og stefnu Johns Howards, forsætisráðherra Ástralíu. 30.8.2005 00:01
Málefnin ráða afstöðu kjósenda Í skoðanakönnun sem Opinion hefur gert fyrir norska dagblaðið Aftenposten telja 57 prósent aðspurðra að málefni ráði mestu um hvaða flokk þeir kjósa í kosningunum til norska Stórþingsins eftir 12 daga. 30.8.2005 00:01
Hátt í hundrað látnir í hamförum Hátt í hundrað manns hafa farist af völdum fellibylsins Katrínar, sem skall á suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Eyðileggingin er gríðarleg og vatn þekur um 80 prósent borgarinnar. 30.8.2005 00:01
Aldrei kynnst neinu þessu líku Alabama er einn þeirra staða þar sem lýst hefur verið yfir neyðarástandi vegna Katrínar. Íslendingur sem þar er staddur segist aldrei hafa kynnst neinu í líkingu við rigninguna í gærkvöldi þó að hann sé staddur vel inni í landi. 30.8.2005 00:01
Dýrasti fellibylur sögunnar Talið er nær öruggt að tjónið vegna fellibylsins Katrínar sé það mesta sem orðið hefur af völdum óveðurs. Olíuverð var enn afar hátt í gær og skreið verðið á fatinu yfir sjötíu dali annan daginn í röð. 30.8.2005 00:01
Óþreyjan vex Risið á fólkinu sem leitaði skjóls á Louisiana Superdome leikvanginum undan Katrínu var orðið verulega lágt í gær. 30.8.2005 00:01
Netanyahu hjólar í Sharon Benjamín Netanyahu, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, hefur boðið sig fram gegn Ariel Sharon, núverandi forsætisráðherra, í formannskosningum í Likud-bandalaginu. 30.8.2005 00:01
Ofbeldisklám bannað Breska ríkisstjórnin hyggst leggja fram lagafrumvarp þar sem varsla ofbeldistengds kláms verður gerð refsiverð. Bretland yrði fyrst Vesturlanda sem bannaði slíkt. 30.8.2005 00:01
Handtökur vegna Hariri-morðs Fjórir menn hafa verið hnepptir í varðhald vegna morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, 14. febrúar síðastliðinn. 30.8.2005 00:01
Prinsessan verður flengd Sikhanyiso prinsessa í Svasílandi hefur komið sér í vandræði eftir að upp komst að hún hélt veislu með félögum sínum til þess að fagna því að stúlkur undir átján ára aldri mættu stunda kynlíf. 30.8.2005 00:01
Lokað vegna sprengjuótta Østerport-lestarstöðinni í Kaupmannahöfn var lokað um tveggja tíma skeið í gær vegna sprengjuótta. 30.8.2005 00:01
Allt að hundrað taldir af Óttast er að allt að hundrað manns hafi týnt lífi þegar fellibylurinn Katrín gekk yfir sunnanverð Bandaríkin í fyrradag. Margir mánuðir geta verið þangað til fólk fær að snúa aftur til heimila sinna. 30.8.2005 00:01
Hótelgistingin of ódýr Að mati samtaka hótela og veitingahúsa í Danmörku er hótelgisting í Kaupmannahöfn of ódýr. 30.8.2005 00:01
Dregur aðeins úr hraða Katrínar Aðeins er um klukkustund í að einhver öflugasti fellibylur sögunnar skelli beint á hjarta borgarinnar New Orleans í suðurhluta Bandaríkjanna. Það hefur dregið lítið eitt úr hraða fellibylsins Katrínar og er hann nú flokkaður sem fjórða stigs fellibylur á Saffire Simpson skalanum, sem er næsthæsta stigið. Katrín æðir þó enn áfram á nærri sjötíu metra hraða á sekúndu. 29.8.2005 00:01
Þriðji hver Dani óttast árás Þriðji hver Dani óttast að hryðjuverkaverkaárásir verði gerðar í landinu, samkvæmt könnun sem dagblaðið <em>Berlingske Tidende</em> segir frá í dag. 40 prósent telja eftirliti og öryggisgæslu á fjölförnum stöðum ábótavant og 75 prósent vilja að fleiri eftirlitsmyndavélar verði settar upp. Skiptar skoðanir eru meðal danskra stjórnmálamanna hversu langt eigi að ganga í því. 29.8.2005 00:01
Tveir látast í árás í Nablus Tveir Palestínumenn létust í sprengjuárás á flóttamannabúðir í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun. Ekki er enn vitað hver stóð að baki árásinni og lögreglu hefur ekki tekist að bera kennsl á hina látnu. 29.8.2005 00:01
Skutu hljóðmann frá Reuters Bandarískir hermenn í Írak skutu í gær hljóðmann frá Reuters-fréttastofunni til bana í Bagdad, höfuðborg Íraks, og særðu myndatökumann sem var með honum. Að sögn íröksku lögreglunnar var myndatökumaðurinn síðan handsamaður og færður til yfirheyrslu þar sem hann mátti dúsa í sex klukkutíma án þess að hugað væri að skotsári sem hann hlaut. 29.8.2005 00:01
Lét skjóta sér yfir landamærin Ævintýramaðurinn Dave Smith notaði heldur nýstárlega leið til að komast yfir landamærin frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Eftir að hafa veifað bandarískum passa til að sýna fram á þjóðerni sitt, fór hann inn í fallbyssu og lét skjóta sér yfir landamærin. Flugið frá borginni Tijuana í Mexíkó gekk vel og Smith lenti heilu og höldnu í San Diego eftir að hafa flogið um fimmtíu metra. 29.8.2005 00:01
Styðja hugsanlega stjórnarskrá Einn stærsti stjórnmálaflokkur súnníta segir nú koma til greina að styðja stjórnarskrána sem sjítar og Kúrdar kynntu drög að í gær. Tareq al-Hashemi, talsmaður írakska íslamistaflokksins, sagði í morgun hugsanlegt að flokksmenn styddi stjórnarskrána en þó aðeins ef komið yrði til móts við athugasemdir þeirra. Ekki hafi enn verið gengið frá stjórnarskránni og því sé tími til stefnu. 29.8.2005 00:01
Varaði við árásum í Indónesíu Forseti Indónesíu varaði landa sína í dag við hugsanlegum hryðjverkaárasum í landinu á næstu tveimur mánuðum þar sem hryðjuverkahópar á vegum al-Qaida væru enn virkir í landinu. Susilo Bambang Yudhoyono forseti sagði september og október þá mánuði sem hryðjuverkamenn létu helst til skarar skríða en síðustu ár hafa stórar árásir verið gerðar á þessu tímabili í Indónesíu. 29.8.2005 00:01
Katrín skammt frá New Orleans Fellibylurinn Katrín er nú óðum að nálgast strendur Louisiana í suðurhluta Bandaríkjanna, en allt bendir til þess að hann stefni beint á borgina New Orleans. Vindhraðinn er nú um 240 kílómetrar á klukkustund, en um einni og hálfri milljón manna hefur þegar verið skipað að yfirgefa heimili sín vegna veðurofsans. Gríðarleg umferð hefur verið út úr borginni í nótt og í morgun. 29.8.2005 00:01
Katrín að skella á New Orleans Fellibylurinn Katrín er nú við það að skella á New Orleans af fullum krafti. Óttast er að meirihluti borgarinnar geti farið á kaf í vatni og milljón borgarbúa hið minnsta hafa flúið heimili sín. 29.8.2005 00:01
Frakkar birta svartan lista Frakkar hafa birt lista yfir alþjóðaflugfélög sem fá ekki lendingarleyfi í Frakklandi. Á honum er þó aðeins að finna fimm flugfélög: Air Koryo frá Norður-Kóreu, Air Saint-Thomas frá Bandaríkjunum, International Air Service frá Líberíu og LAM Líneas aéreas de Mozambique frá Mósambík, og leiguflugfélag þaðan, Transairways. 29.8.2005 00:01
Óttast að missa húsið sitt Linda Garðarsdóttir, sem búið hefur í New Orleans í 12 ár, óttast að hún hafi þegar misst heimili sitt vegna fellibylsins Katrínar. Hún segir veðurhaminn svo mikinn að ekki sé hægt að gera sér grein fyrir afleiðingunum. 29.8.2005 00:01
Leitaði liðsinnis Landhelgisgæslu Rússneskur ferjufarþegi bað íslensku Landhelgisgæsluna að bjarga sér þegar þrjótar ógnuðu honum á leið frá Þýskalandi til Finnlands. 29.8.2005 00:01
Felldu háttsettan talibana Bandaríkjaher greindi frá því í dag að einn af leiðtogum talibana í suðurhluta Afganistans hefði verið felldur í síðustu viku. Maðurinn, Payenda Mohammed, er talinn hafa staðið á bak við fjölda árása í Uruzgan-héraði í Suður-Afganistan, en hann mun hafa stjórnað um 150 manna uppreisnarher í héraðinu. 29.8.2005 00:01
Í mál vegna illrar meðferðar Tíu ára gamall íranskur drengur hefur höfðað mál á hendur áströlskum stjórnvöldum fyrir að skaða geðheilsu hans með því að láta hann dúsa í flóttamannabúðum við illan kost í fimm ár. Shayan Badraie var í fjölmennum hópi íranskra flóttamanna sem náðu ströndum Ástralíu árið 2000 en hann hefur síðan verið í afgirtum flóttamannabúðum fjarri mannabyggðum. 29.8.2005 00:01
Katrín veldur usla í New Orleans Miðja fellibylsins Katrínar er nú um fjörutíu kílómetra austsuðaustur af New Orleans, en áhrifa hans er þegar farið að gæta óþyrmilega í borginni. Vindurinn sem fylgir bylnum finnst í allt að tvö hundruð kílómetra fjarlægð frá miðju hans, en vindhraðinn næst miðjunni er um 250 kílómetrar á klukkustund. 29.8.2005 00:01
Vonast eftir samevrópskum grunni Frakkar segjast vonast til þes að svartur listi þeirra og Belga yfir flugfélög sem þeir telja að hafi öryggismál sín ekki í lagi, verði til þess að hraða því að samevrópskur gagnagrunnur og sambærilegur listi verði gerður. Á listanum eru sem stendur fjórtán flugfélög. 29.8.2005 00:01
Katrín þriðja stigs fellibylur Miðja fellibylsins Katrínar er nú aðeins um þrjátíu kílómetra austsuðaustur af New Orleans, en áhrifa hans er þegar farið að gæta óþyrmilega í borginni. Vindurinn sem fylgir bylnum finnst í allt að tvö hundruð kílómetra fjarlægð frá miðju hans, en vindhraðinn næst miðjunni er um 200 kílómetrar á klukkustund. 29.8.2005 00:01
Rúmenar hraði umbótum Ef rúmensk stjórnvöld hraða ekki umbótum í landinu verður inngöngu þess í Evrópusambandið seinkað um ár, fram til 2008. Það er ýmislegt sem vantar upp á en embættismenn segja að meðal þess sem verði að batna sé dómskerfið, samkeppnislögin, skipulag landbúnaðarins og umhverfismál. 29.8.2005 00:01