Leitaði liðsinnis Landhelgisgæslu 29. ágúst 2005 00:01
Rússneskur ferjufarþegi bað íslensku Landhelgisgæsluna að bjarga sér þegar þrjótar ógnuðu honum á leið frá Þýskalandi til Finnlands. Verkefni varðstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar geta verið mjög fjölbreytileg eins og menn komust að í nótt. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk aðstoðarbeiðni um 112 neyðarnúmerið frá farþega í ferju sem var á leiðinni frá Rostock í Þýskalandi til Hangö í Finnlandi. Farþeginn sem var rússneskur hafði hringt í 112 og sagðist óttast um líf sitt. Það óvenjulega var að hringingin skyldi lenda á Íslandi en það kemur víst einstaka sinnum fyrir vegna svokallaðrar reikivillu í GSM-kerfinu erlendis að því að talið er. Maðurinn talaði mjög bjagaða ensku og sagðist vera staddur einhvers staðar á 7. eða 8. þilfari um borð í ferjunni en gat ekki sagt nákvæmlega hvar. Samkvæmt Landhelgisgæslunni tókst varðstjórar að fá hann til að gefa upp nafn og símanúmer og hafði síðan samband við björgunarstjórnstöðina í Turku í Finnlandi en þar var gefið samband við björgunarstjórnstöðina í Tallin í Eistlandi þar sem rússneskumælandi menn starfa. Eftir að þeir náðu tali af skipstjóra ferjunnar fór slökkvilið hennar á stúfana að leita að manninum og fann hann heilan á húfi og kom honum í öruggt skjól. Maðurinn hafði lent í útistöðum og slagsmálum við menn sem einnig voru farþegar um borð í ferjunni og taldi þá greinilega líklega til alls. Maðurinn bað fyrir þakklæti fyrir aðstoðina.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira