Herlög taka gildi í New Orleans 30. ágúst 2005 00:01
Lögregla í New Orleans hefur lýst herlög í gildi til þess að reyna að koma í veg fyrir þjófnaði í kjölfar þess að fellibylurinn Katrín fór þar um og olli miklu tjóni. Frá þessu greinir Sky-fréttastöðin. Útgöngubann hefur tekið gildi í borginni og íbúar eru hvattir til þess að sjóða drykkjarvatn sitt þar sem yfirvöld óttast að það hafi mengast í flóðunum sem fylgdu Katrínu. Talið er að að minnsta kosti 80 manns hafi farist í hamförunum, þar af 30 í húsi í Biloxi í Misssissippi sem hrundi í veðurofsanum. Björgunarsveitarmenn eiga eftir að komast á mörg þeirra svæða sem urðu fyrir Katrínu og þar sem helstu samgöngu- og samskiptaleiðir eru stórskemmdar gæti liðið þó nokkur tími þar til manntjónið verður ljóst. Í morgun brast flóðvarnargarður sem hélt stöðuvatninu Lake Pontchartrain við New Orleans í skefjum. Við það jukust flóðin í borginni enn frekar. Vatnið á götunum er sums staðar orðið 7 metra djúpt og eyðileggingin er gríðarleg. Meira en milljón manns er án rafmagns á suðurströnd Bandaríkjanna og að sögn yfirvalda gætu liðið allt að tveir mánuðir þar til rafmagnið kemst á aftur. Krafturinn í fellibylnum dvínaði eftir því sem hann gekk lengra upp á land og nú er svo komið að hann er flokkaður sem hitabeltisstormur.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira