Fleiri fréttir

Dregur úr krafti Katrínar

Hlutar New Orleans eru á kafi í vatni eftir að fellibylurinn Katrín gekk þar yfir í dag. Hún brunar nú sem leið liggur í átt að Austurströndinni og er orðin fellibylur af stærðargráðu tvö.

Þónokkrir Íslendingar á svæðinu

Á þessu svæði, þar sem Katrín veldur usla, búa þónokkrir Íslendingar. Flestir sem búa í New Orleans eru flúnir en aðrir halda kyrru fyrir þó að Katrín sé á leiðinni til þeirra.

15 flugfélög á svartan lista

Frakkland og Belgía hafa birt lista yfir þau flugfélög sem fá ekki að lenda þar. Svissnesk yfirvöld hyggjast birta sambærilega lista í dag. Tilgangurinn er að róa almenning vegna fimm alvarlegra flugslysa undanfarið. Í einu þeirra létust 160 manns í Venesúela, flestir þeirra franskir ríkisborgarar.

Hækkar yfirborð sjávar

"Það sem gerir þennan fellibyl svo frábrugðinn öðrum er kannski fyrst og fremst staðurinn þar sem hann ber að," segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Telur möguleika sína hafa aukist

Mikil spenna ríkir í Noregi vegna þingkosninganna þar eftir tvær vikur, og ekki síður vegna stjórnarmyndunar í kjölfarið. Kjell Magne Bondevik segir í viðtali við Stöð 2 að möguleikar sínir til að halda velli sem forsætisráðherra séu að aukast en Jens Stoltenberg, leiðtogi jafnaðarmanna, hefur þótt líklegur til að velta honum úr sessi.

Lokað vegna hótunar

Flugvél var rýmd og flugvelli var lokað í Japan í gær vegna sprengjuhótunar. Vélin var að leggja af stað frá Sendai í Norður-Japan til Sapporo þegar símtal barst um að sprengja væri um borð og var vélin þá rýmd þegar í stað.

Chavez vill framsal

Hugo Chavez, forseti Venesúela, útilokar ekki að farið verði fram á framsal sjónvarpspredikarans Pat Robertson eftir að hann lýsti þeirri skoðun sinni að bandarísk stjórnvöld ættu að láta ráða Chavez af dögum.

Schröder sigurviss

Gerhard Schröder Þýskalandskanslari er bjartsýnn á að flokkur hans verði enn við völd að loknum kosningunum 18. september.

Geislavirk efni á glámbekk

Ástralskir vísindamenn hafa fundið talsvert magn geislavirkra efna í tveimur Asíulöndum sem skilin hafa verið eftir á glámbekk.

Enn mótmæla súnníar

Þúsundir súnnía mótmæltu stjórnarskrárfrumvarpi Íraks sem afgreitt var úr þinginu á sunnudaginn þvert á vilja þeirra. Óttast er að deilurnar milli þjóðarbrotanna í landinu magnist enn.

Fordæmalaust eignatjón

Tjónið af völdum fellibylsins Katrínar sem gekk á land á suðurströnd Bandaríkjanna í gær er talið geta numið allt að 1.600 milljörðum króna. Manntjón vegna óveðursins virðist hins vegar óverulegt.

Landnemabyggðum mun fækka á Gaza

Landnemabyggðum Ísraela á Vesturbakkanum fækkar þegar gengið verður frá endanlegu friðarsamkomulagi við Palestínumenn, sagði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi.

Sjálfsmorðsárás í Ísrael

Tuttugu særðust þegar palestínskur hryðjuverkamaður gerði sjálfsmorðsárás á umferðarmiðstöð í borginni Beersheba í Ísrael í morgun. Enginn hefur enn sem komið er gengist við árásinni en þetta er fyrsta hryðjuverkaárásin frá því að brotthvarfi Ísraelsmanna frá Gaza-ströndinni lauk í síðustu viku.

Hertara eftirlit með flugfélögum

Flugmálayfirvöld í Frakklandi, Belgíu og Sviss ætla á næstu dögum að fylgja fordæmi Breta og birta lista yfir þau flugfélög sem að mati stjórnvalda uppfylla ekki settar öryggiskröfur.

Súnnítar mótfallnir stjórnarskrá

Súnnítar eru enn með öllu mótfallnir drögum að stjórnarskrá Íraks sem Sjítar og Kúrdar lögðu fram í gærkvöldi. Írakska þingið gæti engu að síður samþykkt stjórnarskránna í dag og þar með greitt leiðina að þjóðaratkvæðagreiðslu í október.

Utanríkisstefna styrkir öfgamenn

Bresk utanríkisstefna og stríðið í Írak hafa hjálpað öfgamönnum úr röðum múslíma að safna nýliðum. Þetta kemur fram í skýrslu breska utanríkisráðuneytisins sem var lekið til fjölmiðla

Danir stefna að reykleysi

Síðasti danski reykingamaðurinn slekkur í síðustu sígarettunni sinni árið 2027, ef fram heldur sem horfir. Undanfarin ár hefur Dönum sem reykja fækkað jafnt og þétt og verði ekki breyting þar á verða allir hættir að reykja 2027.

Íbúar New Orleans flýja Katrínu

Íbúar New Orleans flýja nú unnvörpum en fellibylurinn Katrína stefnir þangað hraðbyri. Hún er kröfugusti fellibylurinn sem stefnir á borgina frá 1969.

63 slasast í nautahlaupi á Spáni

Sextíu og þrír slösuðust og þar af tveir alvarlega í árlegu nautahlaupi í bænum San Sebastian des los Reyes. Hlaupið er með sama sniði og nautahlaupið í Pamplona á Spáni þar sem mannýgum nautum er hleypt út á götur bæjarins innan um mannfjölda sem reynir að forða sér á hlaupum undan árásum nautanna.

Mæður í Beslan fá fund með Pútin

Rússneskar mæður sem misstu börn sín í umsátrinu og árásinni barnaskólann í Beslan þar sem 331 lét lífið, þar af helmingurinn börn segja að Pútin forsætisráðherra hafi boðað þær á fund annan semptember næstkomandi, næstum ári á eftir atburðinn.

Schröder treystir á óákveðna

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, treystir á að óákveðnir kjósendur komi honum til bjargar en miðað við gengi jafnaðarmanna í könnunum eiga þeir litla möguleika í þingkosningum í næsta mánuði.

Fréttamenn skotmörk í Írak

Fleiri fréttamenn hafa verið drepnir í Írak frá því að stríðið þar hófst í mars 2003 en voru drepnir á tuttugu árum í stríðinu í Víetnam. Sextíu og sex fréttamenn og aðstoðarmenn þeirra hafa verið drepnir í Írak, samkvæmt upplýsingum frá samtökunum Blaðamenn án landamæra.

Bresk kona myrt í fjölskylduveislu

Kona á þrítugsaldri var skotin til bana í fjölskylduveislu í suðurhluta Lundúna í gærkvöldi. Konan mun hafa haldið á ungabarni þegar hún var skotin.

Airbus risaþotan á lofti

Hundrað og fimmtíu þúsund manns söfnuðust saman í Hamborg í gær til að fylgjast með fyrstu lendingu risaþotunnar Airbus A-380 þar. Vélin hringsólaði yfir borginni í tuttugu mínútur áður en hún lenti við verksmiðju Airbus í Hamborg, þar sem risavélin verður sett saman í framtíðinni.

Fellibylur, skógareldar og flóð

Hundruð þúsunda íbúa New Orleans hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín en í allan dag hafa verslunareigendur neglt fyrir glugga  og sandpokum verið staflað til að varna skemmdum þegar fellibylurinn Katarína skellur á.

Drög að stjórnarskrá lögð fram

Drög að stjórnarskrá voru loksins lögð fram í Írak í dag, eftir endurteknar frestanir og langvarandi deilur. Forseti landsins bað almenning um að styðja stjórnarskrána sem öflugir hópast berjast þó gegn.

Fuglaflensa í Finnlandi

Yfirvöld í Finnlandi tilkynntu um helgina að líklega hefði fundist fuglaflensusmit í mávi í bænum Oulu í norðurhluta landsins. Þrátt fyrir það er talið ólíklegt að vírusinn sem fannst sé af gerðinni H5N

Bretar vissu af tengslunum

Stjórnvöld í Bretlandi voru vöruð við tengslum milli aukinnar öfgastefnu breskra múslima og stríðsins í Írak fyrir einu ári síðan. Þetta kemur í ljós í bréfi sem breska dagblaðið Observer hefur undir höndum

Flýja undan Katrínu

Íbúum New Orleans í Bandaríkjunum var í gær skipað að yfirgefa borgina vegna mikillar hættu frá fellibylnum Katrínu sem von er á að gangi yfir borgina í dag. Borgarstjórinn Ray Nagin hvatti íbúa, sem eru um hálf milljón, til að taka viðvörunum alvarlega.

Flytja grafir gyðinga

Ísraelski herinn hófst í gær handa við að grafa upp 48 grafir gyðinga á Gaza-svæðinu. Hinir látnu verða síðan fluttir til Ísrael og jarðsettir á ný. Þetta er hluti af brottflutningi landtökumanna af Gaza en vika er liðin frá því að lokið var við að rýma 21 byggð landtökumanna á Gaza-svæðinu.

Fatlaður fíll fær gervifót

Taílenski fíllinn Motola sem hoppað hefur um á þremur fótum í sex ár getur tekið gleði sína á ný því hann hefur fengið gervifót.

Sonur Sharon ákærður

Omri Sharon, sonur forsætisráðherra Ísraels Ariel Sharon, hefur verið ákærður fyrir spillingu. Hann er grunaður um að hafa haldið leyndum ólöglegum fjárframlögum í einn af kosningasjóðum föður síns með því að nota uppspunnin fyrirtæki.

Flestir blaðamenn drepnir í Írak

Fleiri blaðamenn hafa verið drepnir frá upphafi stríðsins í Írak en á þeim tuttugu árum sem átökin í Víetnam stóðu yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Blaðamenn án landamæra.

Fólk til sýnis

Í dýragarðinum í Lundúnum getur þú talað við dýrin, og sum þeirra svara þér líka. Um helgina voru til sýnis í dýragarðinum átta dýr af tegundinni homo sapiens. Þarna voru á ferðinni átta breskir sjálfboðaliðar, þrír karlar og fimm konur, klæddir í sundföt með fíkjulauf sem skýldu viðkvæmustu staði.

Fæðir barn í beinni

Framleiðendur hollenska Big Brother raunveruleikaþáttarins hafa ákveðið að einn af þátttakendunum muni fæða barn í næstu þáttaröð. Þættirnir sem njóta mikilla vinsælda víða um heim snúast um það að fylgjast með hópi af fólki sem býr í tiltekinn tíma saman í íbúð og fær ekki að fara þaðan nema vera kosið út.

Súnníar ákalla alþjóðasamfélagið

Íraskir þingmenn ákváðu í gær að vísa drögum að stjórnarskrá landsins til þjóðaratkvæðagreiðslu. Súnníar eru mjög ósáttir við inntak hennar og skora á alþjóðasamfélagið að koma í veg fyrir að hún verði samþykkt.

Kjötkveðjuhátið í Notting Hill

Kjötkveðjuhátíðin í Notting Hill í Lundúnum hófst í morgun og er búist við því að milljónir taki þátt í gleðinni um helgina. Hátíðin var fyrst haldin 1964, en var þá mestmegnis fyrir börn. Stáltunnusveit frá Trinidad hélt þá uppi gleðinni og enn þann dag í dag hefst hátíðin með stáltunnileik.

Ósætti um yfirlýsingu SÞ

Hundrað og áttatíu þjóðarleiðtogar hittast í næsta mánuði til að undirrita tímamótayfirlýsingu um framtíð Sameinuðu þjóðanna. Óvíst er að þeir hafi nokkuð að undirrita þar sem Bandaríkjamenn eru ósáttir við yfirlýsinguna og tilvísanir til þróunaraðstoðar og umhverfisverndar.

Katarina safnar kröftum

Fellibylurinn Katrina safnar nú kröftum yfir Mexíkóflóanum og býr sig undir aðra yfirreið yfir suðurströnd Bandaríkjanna.

Tuttugu og fjórir létust í flóðum

Hundruðir þorpa hafa orðið flóðum að bráð í Uttar Pradesh héraði á Norður Indlandi. Miklar rigningar undanfarna daga leiddu til þess að tvær ár flæddu yfir bakka sína með þeim afleiðingum að nærri 750 þorp fóru alveg undir vatn og 50 þorp til viðbótar eru einangruð og talið er að tuttugu og fjórir hafa látist í flóðunum.

Fórnarlamba minnst

Fyrsti varanlegi minnisvarðinn um fórnarlömb hryðjuverkaárásanna í Lundúnum í síðasta mánuði var afhjúpaður við látlausa athöfn síðdegis. Minnisvarðinn er einfaldur skjöldur í garði skammt frá Thames, en í þessum garði varð til einskonar bráðabirgðaminnisvarði strax í kjölfar hryðjuverkanna. Þúsundir lögðu þar blóm og smámuni til að votta virðingu sína.

Hamas þakka sér brottflutning

Einhver þekktasti hryðjuverkamaður Hamas-samtakanna birtist sigri hrósandi á myndbandsupptöku sem send var fjölmiðlum í gærkvöldi. Þar segir hann brotthvarf Ísraelsmanna frá Gaza afleiðingu vopnaðrar baráttu hundraða skæruliða sem hefðu fórnað sér fyrir málstaðinn.

Blair úthúðað

Múhameðstrúarmaður í útlegð frá Sádí Arabíu sem á á hættu að vera rekinn frá Bretlandi fyrir að halda úti herskárri íslamskri vefsíðu hefur nú lokað vefsíðunni. Mohammed al-Massari heldur því fram að hann hafi gert það af sjálfsdáðum og bresk yfirvöld hafi ekki haft samband við hann.

Sjá næstu 50 fréttir