Annar bruninn á fimm dögum 30. ágúst 2005 00:01
Sjö létust og þrettán slösuðust þegar mikill eldur kviknaði í íbúðarhúsi í París í Frakklandi í nótt. Þetta er í annað sinn á aðeins fimm dögum sem eldur kemur upp í íbúðarhúsi afrískra innflytjenda í borginni. Nær allir íbúar hússins voru afrískir innflytjendur, rétt eins og í íbúðarblokkinni sem kviknaði í á föstudaginn, þar sem sautján manns létust. Fjórir af þeim sjö sem fórust í nótt voru börn og eitt þeirra lést eftir að hafa kastað sér út um glugga í örvæntingu sinni þegar ekkert annað var til ráða. Þrettán slösuðust og þar af eru tveir enn í lífshættu. Húsið, sem er gamalt var mjög illa á sig komið og eldurinn breiddist hratt út. Það tók 130 slökkviliðsmenn vel á aðra klukkustund að ráða niðurlögum eldsins. Eldsvoðarnir tveir undanfarna fimm daga vekja enn á ný áleitnar spurningar um aðbúnað fátækra innflytjenda í París. Hýbýli þeirra eru í mörgum tilvikum vægast sagt bágborinn og ekki tilviljun að þrír stærstu eldsvoðar ársins í París hafi allir orðið í húsum afrískra innflytjenda. Upptök eldsins í nótt eru ókunn en brunamálayfirvöld í París vissu af því að mikil hætta væri á eldi í íbúðinni. Borgarstjórinn í París hefur farið fram á að húsnæðismál inntlytjenda í borginni verði tekin til algerrar endurskoðunar. Mikillar reiði gætir í hópi innflytjendanna. Afrískir innflytjendur gengu um götur og mótmæltu í kjölfar brunans á föstudaginn og búast má við enn frekari mótmælum eftir brunann í nótt.
Erlent Fréttir Mest lesið Óheppilegt ef fölsk mynd varpar sök á saklausan mann Innlent Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ Innlent „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Veður Skiptar skoðanir um umfang og kostnað vegna listaverks Ólafs í Eyjum Innlent Níu ára og með sitt eigið „Fannars bakarí“ í Njarðvík Innlent „Komið nóg af áföllum“ Innlent Hafi látið högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Á bát í Kyrrahafi þegar skjálftaflóðbylgjur skullu á Innlent Eldri borgarar sem verði fyrir ofbeldi ættingja geti hvergi leitað Innlent Ferðamaður lést við Breiðamerkursand Innlent Fleiri fréttir Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Létu sprengjum rigna á Kænugarð Segja 30 hafa látist í skotárás Ísraelshers við dreifingu neyðargagna Kanada í hóp þeirra sem hyggjast viðurkenna sjálfstæði Palestínu Sjö dáið úr hungri síðasta sólarhringinn Rannsaka tengsl þyngdarstjórnunarlyfja við bráða brisbólgu Gargaði á flokksfélaga sína Fyrsta ástralska geimflaugin flaug í fjórtán sekúndur Maxwell vill friðhelgi fyrir vitnisburðinn Vill greiða sex milljarða tryggingu til að losna úr haldi Pokrovsk riðar til falls 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir „Hann stal henni“ Bretar hyggjast viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki Færeyingar heita refsiaðgerðum gegn Rússlandi: „Eigum eftir að sjá hvernig efndirnar verða“ Gefa lítið fyrir afarkosti Trumps Ætlaði í höfuðstöðvar NFL Bandarískir trúboðar herja á einangraða ættbálka með drónum og sólarknúnum afspilunartækjum Trump um Epstein: „Hann stal fólki sem vann fyrir mig“ Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Hyggjast greiða 60 þúsund á ári fyrir öll börn undir þriggja ára Sjá meira